Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 43
Félagsmál VFÍ/TFÍ 41
Styrktarsjóður J.C. Möller frá 6. október 1938
I reglum um J.C. Möller-styrktarsjóðinn segir að sjóðsstjórn skuli skipuð þrernur mönnum,
einum frá VFI, einum frá kennslumálaráðuneyti (menntamálaráðuneyti) og þann þriðja
tilnefnir stofnandi sjóðsins, meðan hann lifir og óskar að nota sér réttinn, en eftir það sendi-
herra Islands eða sá fulltrúi íslands í Kaupmannahöfn er fer með málefni íslands þar. Fulltrúi
VFI er formaður sjóðsstjórnarinnar.
Að öllu jöfnu skulu rafmagnsverkfræðinemar í lokaáföngum við DTU ganga fyrir um
styrkveitingu, segja reglur sjóðsins. I ár var Hlyni Þór Olasyni, nemanda við DTU, veittur
styrkur úr sjóðnum, að ijárhæð 10.000 Dkr.
Deilda- og nefndarstörf
Mikið starf er unnið af fjölmörgum verkfræðingum í deildum og nefndum félagsins.
Meginreglan er að menn gefí kost á sér til starfa í nefndum tvö ár í senn en margir sitja
þó mun lcngur. Astæða kann að vera til að endurskoða þessi mál með það í huga að tryggja
hæfílega endurnýjun í vel flestum nefndum. Að sjálfsögðu er hér um sjálfboðaliðastarf að
ræða eins og önnur störf í þágu félagsins. Vonandi er öllum félagsniönnum ljós sú þakkar-
skuld sem Verkfræðingafélag íslands stendur í gagnvart þessum verkfræðingum.
Skýrslur fagdeilda, orðanefnda RVFÍ og BVFÍ og fastanefnda liggja frammi á fúndinum
og vísast til þeirra. Ennfremur liggja frammi skýrslur nýstofnaðra faghópa, þ.e.a.s. kvenna-
nefndar, rekstrar- og Ijármálahóps og hóps um upplýsingatækni. Margar aðrar nefndir starfa
á vegum félagsins og verður drepið á störf nokkurra þeirra hér á eftir.
Jafnréttishópur: Að tilhlutan kvennanefndar var í vetur settur á fót starfshópur til að gera
tillögur að jafnréttisstefnu Verkfræðingafélagsins.
Neyðarnefnd: í kjölfar Suðurlandsskjálftanna fór neyðarnefnd VFÍ af stað eftir nokkurt hlé
og er nú með í undirbúningi tvær ráðstefnur, aðra í maí nk. en hina í september á næsta ári.
Arshátíðarnefnd VFÍ: Verkfræðingafélag
Islands hélt hið árlega árshóf félagsins
laugardaginn 3. febrúar sl. á Hótel Sögu.
Hófíð var jafnframt 60 ára afmælishóf RVFÍ.
Arshátíðarnefnd skipuðu að þessu sinni Olafur
Pétur Pálsson, (formaður), Helga Jóhannsdóttir
og Torfi Sigurðsson. Veislustjóri var Bjarni
Þorvarðarson. Hátíðarræðu kvöldsins flutti
Geir Haarde fjármálaráðherra. Meðal gesta
voru heiðursfélagarnir Vigdís Finnbogadóttir,
Soren Langvad, Einar B. Pálsson og Haratdur
Asgeirsson.
I hófinu sæmdi formaður VFÍ Hákon Ólafs-
son þau prófessor Önnu Soffíu Hauksdóltur og
Arna Björn Jónasson, verkfræðing heiðursmerki
Verkfræðingafélags íslands. Ennfremur var
Orðanefnd RVFÍ færð 350.000 kr. viðurkenn- Aðalsteirm Guðjohnsen Jlutti hátiðarrœðu i
ing fyrir frábær störf í 60 ár. tilefni af60 ára afmœli RVFÍ. (Ljósm.
Sigrún S. Hafstein)