Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 371
Tæknigreinar 369
ingarstarfsemi sem vikur bíður upp á. Ég hefi líka gefið þessu nokkurn gaum í rannsókna
hjáverkum. Um þetta hefi ég skrifað tvö rit við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, auk
rannsóknaskýrslna. Tilraunaskáli Rb varð líka byggður úr samloku vikursteypueiningum og
cr vísað til þessara rita um eiginleika og rannsóknir á vikursteypum [1-4]
Tilraunaskáli Rb fékk nokkuð sérstaka kynningu, þegar stiklugrúppa frá ástralska sjón-
varpinu, nefnd Beyond 2000, kom og bjó til myndband er sýnir vel ýmis sérkenni steyp-
unnar og skálans. Spólan var hin ásjálegasta og var seld til helstu sjónvarpsstöðva um víða
veröld, enda sýndi hún auk hinnar fljótandi steypu íslensk náttúruundur, eldgos og
gjóskumyndun.
Húsið mitt varð samt ekki að þeirri nýjung sem stefnt var að. Meginástæður þess voru
of hátt verð á vikrinum í samanburði við nærtæk fylliefni í venjulega steypu. Verðið stafaði
hinsvegar af lítilli umsetningu og háum flutningskostnaði vegna ijarlægðar náma.
Ný og öflugri einangrunarefni höfðu líka þau áhrif að úr vikurnotkun dró. Mestu máli
skipti þó hrun hleðslusteinaiðnaðarins. Ég sé líka í því glötuð tækifæri byggingariðnaðarins.
Vönduð hlaðin vikursteinahús gátu orðið markverður þáttur í byggðalaginu, en skemmd-
irnar fældu.
Ástríða mín fyrir nýtingu vikurs varð til þess að ég gekk til liðs við félaga mina, sem
leituðu útflutningsmöguleika. Við stofnuðum Hekluvikur hf. og gerðumst brautryðjendur og
seldum skipsfarma af vikri til margra landa í hálfan annan áratug og ræddum áform um
birgðastöð og framleiðslu. Samkcppnin við erlenda léttfylliefnaframleiðcndur var þó alltaf
erftð og félagið varð fyrir áföllum. Starfsreksturinn var því látinn öðrum í té með skulda-
jöfnun. Útflutningur hefir síðan stóraukist, einkum til aðila, sem nota vikurinn við ræktun í
gróðurhúsum. Viðleitni okkar hefir því ekki verið alvcg til ónýtis.
Heimildir
[1] HÁ, Léttsteypur úr vikri, rit Rb nr. 52, 1984
[2] HÁ, Vikursteypur ný notkunarsvið, skýrsla Rb nr. 88-09,1989
[3] HÁ, Vikurmúr, skýrsla Rb nr. 91-03, 1991
[4] HÁ, Hekla Pumice in Lightweight Concrete, rit Rb nr. 66, 1994
[5] Arnór Sigurjónsson, Byggingamálaráðstefnan 1944, Reykjavík 1946
[6] Trausti Ólafsson, íb.. bls. 300-322
[7] HÁ, Loftblendi í steinsteypu, Atvinnudeild 1953
[8] Jón Sigurjónsson, Svignun einangrunarglers, Rb rit nr. 34, 1979