Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 77
Félagsmál VFÍ/TFÍ 75
námskeiðum og jafnframt að koma með nýjar hugmyndir að námskeiðum. Á vormisseri
sendi rafmagns- og tölvuhópur tölvupóst til þeirra rafmagnsverkfræðinga og tæknifræðinga
sem félögin hafa á tölvupóstfangalista. Markmiðið var að fá frá félagsmönnum tillögur að
námskeiðum á rafmagns-og tölvusviði. Viðbrögð voru vonum frantar og hefur rafmagns-
hópurinn nú fjölda lillagna til að vinna úr. Önnur leið til þess að meta hvers konar námskeið
tæknimenn vilja sækja er að kanna þátttöku á þeint námskeiðum sem haldin hafa verið lijá
EHI undanfarin ár. Byggingarhópur hefur tekið saman lista yfir þau námskeið á byggingar-
og umliverfissviði sem EHI hefúr haldið frá 1993 og þátttöku á þeim. Með því fæst yfírlit
yfír hvers konar námskeið áhugi er á að sækja og jafnframt hvaða námskeið ástæða er til að
endurtaka reglulega.
Á síðasta starfsári hélt ENSIM-nefndin átta fundi auk þess sem starfshópar hennar héldu
hver um sig jafnmarga eða fleiri fundi. Tillögum að 33 námskeiðum, auk fastra námskeiða
(AutoCad og Microstation), var skilað til EHI. Hluta námskeiðanna var frestað af kcnnara
eða féllu niður af öðrum ástæðum áður en námsskrá kom út og bauð EHÍ upp á 26 tækni-
námskeið á síðasta ári. Af þeim námskeiðum sem í boði voru, féllu sex niður vcgna ónógrar
þátttöku. Þannig voru haldin 20 tækninámskeið hjá EHÍ, þar af voru átta námskeið á bygg-
ingar- og umhverfíssviði, þrjú námskeið á véla- og iðnaðarsviði, tvö námskeið á rafmagns-
og tölvusviði og sex föst námskeið.
Oft hafa fleiri tækninámskeið verið í boði hjá EHI en á síðasta ári. En auk þeirra
námskeiða scm ENSÍM-nefndin skipuleggur hafa venjulega verið námskeið sem stofnanir
eða einstaklingar halda á vegum EHI fyrir eigið frumkvæði. Þau námskeið á byggingar-,
umhverfís-, rafmagns- og vélasviði, sem haldin voru hjá EHI á síðasta ári voru öll, nema eitt
auk fastra námskeiða, skipulögð af ENSIM-nefndinni og starfshópum hennar.
ENSÍM-nefnd
Fjóla G. Sigtryggsdóttir formaður
Mennt
Mennt, samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla, eru frjáls félagasamtök, sem að standa
skólar, fyrirtæki og félög. Samtökin voru stofnuð 27. nóvember 1998 með sameiningu
Sammenntar og Starfsmenntafélagsins og voru VFÍ og TFI meðal stofnaðila, en þau voru
áður þátttakendur í Sammennt.
Aðalfundur samtakanna var haldinn í húsakynnum Samtaka atvinnulífsins í Garðastræti
29. nóvember 2000. Á fundinum var m.a. tckin fyrir skýrsla stjórnar, rætt um uppbyggingu
samtakanna, starfsemina fyrir árið 2001 og fjárhagsstöðu. Auk venjulegra aðalfundarstarfa
voru starfsmenntaverðlaun aflient. Starfsemi Menntar er skipt í Ijóra sjálfstæða aðalverk-
efnaflokka. Þeir eru:
Evrópuverkcfni, Upplýsingamiðlun, Einstök verkefni - viðburðir og Samstarfsvettvangur
atvinnulífs og skóla.
í Evrópuverkefnum ber hæst að Mennt hefúr umsjón með starfsemi CEDEFOP á íslandi
(CEDEFOP = European Centre for the Developmcnt of Vocational Training, Evrópsk
niiðstöð um þróun starfsmennlunar). Annar stór liður í Evrópuverkefnum er Leonardo Da
Vinci-áætlunin. Mennt hefurtekið að sér vissa þætti í framkvæmd Leonardo II, eins og veriö
hefur áður með Leonardo I og Comett-áætlanir Evrópusambandsins.
Félagsfundur Menntar var haldinn 17. apríl 2000 í Menntaskólanum í Kópavogi. Á fund-
inum var fjallað um starfsemi Menntar ásamt því að Marc Willem frá CEDEFOP hélt erindi
um starfsemi stofnunarinnar og hvernig félagsaðilar Menntar gætu hugsanlega nýtt sér hana.