Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 85
Félagsmál VFI/TFI 83
Stcfna sjóðsins er að Ijölga sjóðfélögum og er stjórn sjóðsins heimilt að veita þeim sem
hafa lokið nánii úr l láskóla Islands með 90 eininga B.S. gráðu eða sambærilegu námi
inngöngu í sjóðinn auk allra verkfræðinga sem fá sjálfkrafa aðild að sjóðnum.
Iðgjöld
Vöxtur samtryggingardeildar sjóðsins varð nokkur á árinu. Iðgjöld jukust um 16% milli ára
og hækkun á hreinni eign sjóðsins varð 2,7% eða 282 milljónir króna. Hrcin eign til greiðslu
lífeyris var í árslok 2000 kr. 10.558.491.403.
Þetta var annað starfsár séreignardeildar sjóðsins. Iðgjaldagreiðslur jukust um 78% frá
fyrra ári og greiddu 400 sjóðfélagar í þennan spamað. Hrein eign deildarinnar í lok ársins
2000 var kr. 84.863.449. Nafnávöxtun séreignardeildarinnar var 1,87%, raunávöxtun var
- 0,56% og hrein raunávöxtun -2,21%.
Fjárfestingarheimildir
A síðasta ári voru gerðar breytingar á lögum um starfsemi lífeyrissjóða, meðal annars
varðandi fjárfestingaheimildir. Nú mega hlutabréf nema allt að 50% af hreinni eign og eign
í erlendum gjaldmiðlum má einnig vera allt að 50% af hreinni eign. Lengst af ársins var
eignasafn sjóðsins alveg við þessi mörk og því lítið rúm til að ijárfesta. A sama tíma var
niðursveilla á innlendum skuldabréfamarkaði og því fárra kosta völ. Við þessar aðstæður og
í Ijósi lækkunar á hlutabréfamörkuðum var mest áhersla lögð á skammtímaávöxtun.
Fjárfestingar
Bankainnistæður sjóðsins hækkuðu um 453 milljónir króna og um 405 milljónir króna
runnu til kaupa á víxlum fyrirtækja sem skráð eru á Verðbréfaþingi Islands. Erlend hlutabréf
voru keypt fyrir 384 milljónir króna, lil vörslu hjá Morgan Stanley. Innlend skuldabréf voru
keypt fyrir 50 milljónir króna. Innlend hlutabréf voru hins vegar seld fyrir um 172 milljónir
króna, en engin keypt í staðinn.
Erlend hlutabréf
Sem fyrr voru erlend hlutabréf stærsti einstaki flokkur Ijárfestinga sjóðsins og vógu
hlutabréf í vörslu Morgan Stanley þar þyngst sem fyrr. Hér verður því gerð sérstök grein
fyrir ávöxtun þeirra á síðasta ári og á þeim nærri sex árum sem liðin eru frá því að sjóðurinn
hóf slíkar ljárfestingar.
A árinu 2000 lækkaði verðgildi hlutabréfanna hjá Morgan Stanley um 25,4% í dollurum,
en vegna veikara gengis krónunnar nam lækkunin 13,7% í krónum. A sama tíma lækkaði
heimsvísitala hlulabréfa um 14,1% í dollurum eða rúmum 11 prósentustigum minna en
hlutabréfasafnið. Var þetta í samræmi við fyrri hreyfingar safnsins sem hækkar að jafnaði
meira en vísitalan þegar markaðurinn er á uppleið en lækkar meira en vísitalan þegar
markaðurinn er á niðurleið.
Þrátt fyrir þetta hefur ávöxtun hlutabréfanna til lengri tíma litið ævinlega verið meiri en
hækkun vísitölunnar og er svo enn. Þetta sést vel á mynd á næstu síðu sem nær yfir tíma-
bilið frá september 1995, þegar sjóðurinn hóf samstarfið við Morgan Stanley, til loka
aprílmánaðar 2001. Til samanburðar má líta á ávöxtun íslenskra húsbréfa á sama tímabili
sem hér hefúr verið umreiknuð í dollara. Meðalávöxtun hlutabréfanna í dollurum yfir þetta