Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 76
74 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
og ákvarðanaferli varðandi jarðgöng. Óðinn Gunnar Óðinsson hjá Þróunarstofu Austurlands
ræddi félagslega þætti við sem samgöngur hafa áhrif á. A fundinn mættu um 20 manns.
Ferðir: Skipulögð var virkjanaferð á Þjórsársvæðið í október 2000. Því miður féll ferðin
niður vegna dræmrar þátttöku.
Um miðjan mars 2001 var farin skoðunarferð til Neskaupstaðar. Mikil snjóflóðavarnar-
mannvirki hafa risið ofan byggðarinnar, mannvirki sem eru frábrugðin öðrum slíkum sem
hafa verið reist hér til þessa því þau eru hönnuð til að stöðva flóð, en ekki beina þeim
framhjá byggðinni eins og t.d. á Flateyri og á Siglufirði. Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur
lengi verið í fremstu röð íyrirtækja í sjávarútvegi. Skoðuð var stærsta frysti- og kæligeymsla
landsins sem SVN reisti sumar 2000 og auk þess voru skoðaðar framleiðslulínur fyrirtæk-
isins.
Endurmenntun — símenntun: Endurmenntun og símenntun tæknimanna eru sífellt í
umræðunni. Stjórnirnar sendu út ábendingu uni námskeið hjá endurmenntunarstofnum sem
þóttu áhugaverð. Þetta varð til þess að nægilega margir þátttakendur fengust á námskeið um
verkfundi og úttektir til þess að það var sent um Ijarfúndabúnað til Egilsstaða.
Eins bárust fregnir af hugmyndum innan háskólans um fjamám til meistaraprófs í verk-
fræði. Stjórnirnar telja það mikið hagsmunamál tæknimanna á landsbyggðinni að bæta
möguleika tæknimanna utan Reykjavíkur á meistaranámi og ekki síður endurmenntun hvers
konar. Því sendu stjórnirnar bréf í janúar 2001 til verkfræðideildar Háskólans með áskorun
um að allir möguleikar þessa máls yrðu skoðaðir nánar.
Austurlandsnefnd TFÍ/VFÍ
Kristján Guðlaugsson, formaður AVFI
Endurmenntunar- og símcnntunarncfnd TFÍ, VFÍ OG SV
Arið 2000 var fimmta starfsár Endurmenntunar- og símenntunarnefndar TFI, VFI og SV
(ENSIM). Nefndin var á starfsárinu skipuð eftirtöldum mönnum: Emil Þór Guðmundsson
TFI, Fjóla Guðrún Sigtryggsdóttir VFI, Geir Guðmundsson VFl, ísleifur Arni Jakobsson
TFI og Sveinn Víkingur Arnason SV.
Starfshópar ENSÍM-nefndarinnar eru þrír: véla- og rekstrarhópur, rafmagns- og
tölvuhópur og byggingar- og umhverfishópur. Eftirtaldir tóku þátt í starfi hópanna:
Véla- og rekstrarhópur: Bjarni Bentsson, Geir Guðmundsson, Sigurgeir Þórarinsson,
Sveinn Aki Sverrisson og Sveinn Vikingur Arnason.
Rafmagns- og tölvuhópur: Eggert Þorgrímsson, ísleifur Árni Jakobsson, ívar Már
Jónsson, Jón Þór Ólafsson, Tryggvi Ásgrímsson og Þórður Helgason.
Byggingar- og umhverfishópur: Einar Gíslason, Emil Þór Guðmundsson, Fjóla G.
Sigtryggsdóttir, Óskar Þorsteinsson, Ragnar Jónsson og Þórhildur Guðmundsdóttir.
Ivar Már Jónsson var formaður rafmagns- og tölvuhóps, Geir Guðmundsson var for-
maður véla-og rekstrarhóps og Fjóla G. Sigtryggsdóttir var formaður byggingar- og
umhverfishóps.
ENSIM-nefndin hefur umsjón með samskiptum félaganna við Endurmenntunarstofnun
Háskóla Islands (EHI) og kemur með hugmyndir að námskeiðum fyrir stofnunina, en full-
trúi frá EHI situr flesta fundi nefndarinnar. Starfshóparnir skipuleggja námskeið hver á sínu
fagsviði, finna kennara til að halda námskeiðin og aðstoða við undirbúning þeirra. Starf
hópanna miðar m.a. að því að koma á skipulögðu og samfelldu framboði af tækni-