Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 55
Félagsmál VFÍ/TFÍ 53
Viðfangsefni Orðanefndar er að koma upp íðorðasöfnum fyrir mismunandi svið byggingar-
verkfræðinnar. Grundvöllur iðorðasafns er hugtakakerfi hvers sviðs fyrir sig. Frá fornu fari
greinist byggingarverkfræði í mörg sundurleit svið, sem eiga undirstöðu víðs vegar í eðlis-
fræði, eíhafræði og náttúrufræði auk stærðfræði og margbreytilegrar tækni.
lðorð er heiti á skilgreindu hugtaki i ákveðinni grein þekkingar. A síðari árum hefur
orðið til alþjóðlegt samkomulag um það á vegum Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hvernig
hentugast sé að standa að íðorðastarfi. Af því eru sprottnar alþjóðlegar verkreglur, ISO/FDIS
704: 2000 (E) og ISO/FDIS 1087 - 1:2000 (E). Orðanefndin leitast við að leysa verkið af
hendi samkvæmt þessum verkreglum. Það er jafnframt gert á þann hátt, sem íslensk málstöð
mælti með í upphafi starfs orðanefndarinnar.
Flver þekkingargrein er fyrst og ífemst safn hugtaka. í íðorðastarfi er því öðru fremur
ijallað um hugtök og það sem í þeirn felst. Hverju hugtaki tengjast einkum þrjú alriði. Hið
fyrsta er það, sem hugtakið vísar til, raunverulegt eða ímyndað, og nefndist vísimið. Annað
atriði er skilgreining, sem lýsir einkennum vísimiðs þannig, að hún samsvarar hugtakinu á
ótvíræðan hátt. Þriðja atriðið er svo hciti hugtaksins, íðorðið. Ef búa þarf til íðorð, er
árangursríkast að búa það til að skilgreiningu lokinni.
Nýyrðagerð hér á landi hefur lengst af miðast við að búa til nýyrði án þess að huga vel
að skilgreiningu hugtaks, svo sem nú er gert ráð fyrir. Þá er alls ekki víst að hið nýja heiti
sé markvisst eða einhlítt, þótt snjallt kunni að þykja í fyrstu.
Þegar Orðanefnd byggingarverkfræðinga var stofnuð 1980, voru tilncfndir í hana þrír
mcnn, Einar B. Pálsson, Jónas Frímannsson og Pétur Ingólfsson. Fljótt kom í ljós að ef starf
ætti að vera samfellt yrðu flciri menn til að koma. Nefndin hefur sjálf útvegað nýja menn til
þess. Hún hefur að jafnaði komið saman vikulega nema um hásumarið.
Frá 1980 til 1988 vann ncfndin í einum vinnuhópi, en þá bættust við verkefni úr aflfræði
og jarðeðlisfræði, svo að bætt var við nefndarmönnum úr kennaraliði Háskóla íslands.
Nefndin hefúr síðan skipst í tvo vinnuhópa, A og B. Vinnuhópur B hefur ckki komið saman
eins reglulega og vinnuhópur A.
Þegar Orðanefnd byggingarverkfræðinga var skipuð, var Einari B. Pálssyni falið að
koma starfi hennar á laggirnar. Hann hefur verið formaður nefndarinnar síðan og janframt
ritstjóri íðorðasafna, sem nefndin vinnur að, og undirbýr efni, sem hún fjallar um á fundum.
Frá ársbyrjun 1993 hefúr Ólafur Jensson unnið samfellt með Einari að orðasafninu og annast
ritvinnslu þess. Aðrir nefndarmenn hafa fyrst og fremst starfað á nefndarfundum.
Þeir Einar og Ólafur leggja báðir til húsnæði á heimilum sínum til verksins og Ólafur auk
þess tölvubúnað sinn. Einar hefur fengið að halda vinnuherbergi sínu í húsi verkfræði- og
raunvísindadeilda Háskóla Islands, þar sem bókasafn deildanna er, og nýtur fyrirgreiðslu á
sameiginlegri skrifstofu deildanna þar í húsi.
Nítján verkfræðingar hafa tekið þátt í orðanefndarstarfínu í vinnuhópum A og B, en nú
eru í nefndinni tíu menn.
Einar B. Pálsson (1980 - A og B), Jónas Frímannsson (1980-1984 -A), Pétur Ingólfsson
(1980-1993 - A), Ólafur Jensson (1981 - A og B), Sigmundur Freysteinsson (1981-A),
Stefán P. Eggertsson (1981-1990 - A), Eymundur Runólfsson (1982 - A), Bragi
Þorsteinsson (1985 - A), Halldór Sveinsson (1985-1995 - A), Óttar P. Halldórsson
(1988-1991 - B), Ragnar Sigbjörnsson (1988 - B), Jens Bjarnason (1988-1989 - B),
Hjörtur Þráinsson (1990-1995 - B), Sigurður Brynjólfsson (1990-1994 - B), Páll
Flygenring (1992 - A), Sigurður Erlingsson (1993 - B), Gísli Valdimarsson (1994-2000
- A), Bjami Bessason (1995 - B) og Guttormur Þormar (1997 - A).