Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 214
212 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
Rúmþyngd
Hér á landi cru einkum framleiddar þrjár rúmþyngdir af EPS-einangrun, 16 kg/m3, 21 kg/m3
og 24 kg/m3. Allar gerðimar bjóðast úr tregbrennanlegu efni, efni (F), og eru þá með
sjálfkveikimark í kringum 490°C. Til samanburðar er sjálfkveikintark timburs um 260°C.
Einnig er hægt að fá plast að hærri rúmþyngd, t.d. ef verið er að sækjast eftir auknu
þrýstiþoli, en styrkur EPS eykst með aukinni rúmþyngd.
Varmaleiðni
Einangmnarplast með rúmþyngdina 15-25 kg/m3 hefur varmaleiðnina Áp = 0,037 W/m2 °C,
og er þá átt við svokallað raungildi, en það gildi miðast við einangrun sem gengið hefur
verið frá á notkunarstað. Því lægra sem varmaleiðnigildi efnis er, því betri cinangrun telst
það vera.
Rýrnun og eftirrýrnun
Rýmun á einangrunarblokkinni getur orðið allt að 1% strax að lokinni framleiðslu.
Eftirrýmun er sú rýrnun sem mæld er eftir 24 klst. þegar umfram þensluefnið gufar upp úr
steyptri einangranarblokkinni. Þessi þáttur getur varað frá einum degi til nokkurra vikna, allt
eftir hlutfalli rúmþyngdar og rúmmáls. Einangrunarplast getur rýrnað um 3 mm/m2 (< 0.3%)
fyrstu sex vikumar sem er óverulegt en á stórum óslitnum lleti getur það haft litils háttar
áhrif. Efiir 6-8 vikur við rétt geymsluhitastig verður engin rýrnun á einangrunarplasti frá
Tempm hf.
Áhrif raka
Flest efni em „hygroskopisk", þ.e. taka upp raka úr loftinu sem umlykur þau. Sambandið
milli loftraka og efnisraka er mikilvægt þegar meta skal einangrunarhæfni þcina við eðlilega
notkun, en varmaleiðni er aðeins þekkt
fyrir þurrt efni. Varmaleiðni vatns 0,55
- 0,58 W/m °C er u.þ.b. tuttugu og
fimm sinnum meiri en varmaleiðni lofts
sem er 0,024 W/m °C og er því eðlilegt,
að rakt efni leiði betur en þurrt efni.
Með auknu rakastigi verður leiðni
flestra efna meiri. Raungildi Á,p hér að
ofan miðast við rakamagn sem er 2% af
þyngd einangrunarinnar. EPS-einangmn
sem er 16 kg/m3 er með rakainnihald
um eða innan við 0,1% af þyngd frá
verksmiðju. Varmaleiðni hennar vex
almennt um 0,3% við hvert 1% í
aukningu á rakainnihaldi, eða úr úr
0,037 W/m2 °C í 0,0371 W/m2 °C.
Rakadrægni EPS-einangrunar er hins
vegar óverulcg í samanburði við mörg
önnur einangrunarefni. EPS-einangrun,