Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 321
Ritrýndar vísindagreinar 319
Grunnur fyrir gerð íhluta í CORBA umhverfi er skilgreining á skilum íhluta með
Interface Definition Language (IDL) málinu. Sama gegnir um COM enda er COM sérút-
færsla Microsoft á CORBA-staðlinum. IDL tryggir að íhlutir geti nýtt sér þjónustu hver hjá
öðrum burtséð frá því hvernig þeir eru útfærðir (t.d. í hvaða forritunarmáli þeir eru skrif-
aðir). EJB nær þessu markmiði nieð stöðluðum skilum Java-málsins. Annar undirstöðu-
þáttur í tækninni er sá, að íhlutir geti átt samskipti sín á milli hvort sem þeir eru í vist á sömu
tölvu eða á tölvum sem eru tengdar á neti. I EJB kerfum er þessu náð með Remote Method
Invocation (RMI) og Java Naming and Directory Interface (JNDI). Loks má geta þess að
íhlutirnir þurfa að fá grunnþjónustu, meðal annars varðandi uppsetningu, keyrslugang,
öryggi og framkvæmd færsluaðgerða frá tækniumhverfínu sem þeir keyra í.
Þess má geta að íhlutir styðja ekki erfðir sín á rnilli. Tiltekinn íhlutur getur engu að síður
verið samsettur úr klösum sem nýta erfðir sín á milli.
Seljendur íhluta skiptast í þróendur og dreifíaðila. Þróendur selja íhluti sem þeir hafa
þróað sjálfir en dreifíaðilar selja það sem aðrir hafa þróað. Þó nokkur markaður hefur nú
þegar myndast fyrir íhluti. Algeng notkunarsvið eru netnotkun, bókhald og bankaviðskipti.
Sem dæmi má nefna:
• ComponentSource sem býður nú upp á yfír 6000 íhluti í vefverslun. Má þar nefna íhluti
sem gerðir eru fyrir COM, Java/EJB, Visual Basic og Delphi.
http://www.componentsource.com/
• IBMSanFrancisco™ safnið sem geymir nú yfír 1000 íhluti í EJB Java fyrir margs konar
viðskiptaþarfir og ganga keyrslur á Windows NT, OS/400, AIX, Sun Solaris, HP-UX
and Reliant UNIX. I safninu er, svo eitthvað sé nefnt, íhlutur sem breytir peningaupphæð
úr gefínni mynt yfír í hvaða aðra mynt sem er.
http://www-4.ibm.com/software/ad/sanfrancisco/
• Mim Software GMbh sem framleiðir Java lausnir fyrir viðskiptakerfí.
http://www.mi msoftware. de/
íhlutbundið tilvistarskeið
Vert er að hafa samlíkingu í huga varðandi húsbyggingar. Aður fyrr var hvert hús teiknað,
útfært og byggt sem einstakt mannvirki og nánast allar einingar þcss sérsmíðaðar. Smám
saman var farið að staðla ýmsar einingar húss svo sem glugga og dyrabúnað og þessar
einingar gjarnan keyptar af þriðja aðila. Nú eru byggð einingahús reist einvörðungu úr
tilbúnum einingum. Verkþættir við byggingu hafa breyst úr almennri húsasmíði yfír í sam-
setningu og frágang. Þriðji aðili framleiðir einingar með nákvæmlega skilgreindum eigin-
leikum með þar til gerðum verkfærum og verklagi.
í OOSPICE-rannsóknarverkefninu [Woodman, 2001] hefúr verið lögð þó nokkur vinna
í að athuga hvernig ferlin í tilvistarskeiði hugbúnaðar breytast við íhlutbundna hugbúnaðar-
gerð. Þess ber að geta að rannsóknir í aðferðafræði hugbúnaðargerðar beinast nú mjög að
þróun með íhlutum. Ætla má að sumar nýjungamar eigi við hugbúnaðargerð almennt.
Hér verður framleiðsluferli íhlutbundinnar hugbúnaðargerðar2 skipt í fímm flokka:
2. Þeir sem lagt hafa hönd á plóg í OOSPICE-verkefninu við gerð þessa ferlalíkans eru þessir: Alec
Dorling, Brian Henderson-Sellers, Bruno Lefever, Christopher Hoyer, Fredrich Stallinger, Joern
Bohling, John Torgersson, Mark Woodman, Oddur Benediktsson og Terry Rout.