Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 332
330 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
Samanburður á lagnakerfum
Það kemur nokkuð á óvart að varmatap frá hefðbundnu kerfi og rör-í-rör kerfi skuli vera
svipað (tafla 6) þar sem annað kerfíð er lagt í einangrun en ekki hitt. Það virðist því sem loft-
bilið milli innra og ytra rörsins í rör-í-rör kerfum gefí nægjanlega einangrun. Ef gert væri
ráð fyrir varmatapi
Tafla 6: Varmatap [W/m] í lagnakerfum. Fyrir rör-í-rör kerfl er varmatap niður um botnplötu
gefiðfyrir eitt lagnapar.___________________ þá mætti búast við
Varmatap [W/m] / Heitt Framrásar- Bakrásar- Kalt meira varmatapi fyrir
Lagnakerfi neysluvatn vatn vatn neysluvatn rör-í-rör kerfi heldur
Hefðbundið kerfi -9,7 -8,19 -3,19 -0,0136 en kemur fram í
Rör-í-rör - lagnaaðf. 1 -11,8 -11,5 -1,70 - þcssum útreikning-
lagnaaðf. 2 -12,3 -11,6 -1,94 2,88 um. I líkaninu af
hefðbundna lagna-
kerfínu var ekki tekið tillit til varmaflutnings í gegnum veggi rörsins þar sem varmaleiðni
málma er há sérstaklega m.v. varmaleiðni einangrunar og varmatapið því í lágmarki.
Rör-í-rör kerfi, ásamt fleiri kerfum, eru óðum að taka við af hefðbundnum kerfúm.
Samkvæmt þeim útreikningum sem hér hafa verið gerðir er Ijóst að rör-í-rör kerfí eru sam-
bærileg við hefðbundin kerfi, a.m.k. hvað varðar varmatap þegar fullt rennsli er í lögnum.
Það væri fróðlegt í framhaldinu að skoða hvemig kerfín hagi sér þegar ekkert rennsli er í
lögnunum. Einnig að útvíkka rör-í-rör líkanið þannig að það taki tillit til varmataps í gegnum
botnplötu til að sjá hvaða áhrif það hefur á niðurstöðurnar. Til að fá mat á áreiðanleika
þessara niðurstaðna er nauðsynlegt, í framhaldi, að gera mælingar á þessum kerfum til
staðfestingar.
Þakkir
Grein þessi var unnin á Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (Rb) upp úr M.Sc.-ritgerð
Sonju Richter [5] sem einnig fjallaði um gólfhitakerfí. Verkefnið var styrkt af Rannís og
Orkuveitu Reykjavíkur og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.
Heimildir
[1] Samtal við Pál Valdimarsson, 2001.
[2] IST 66. Kólnunartölur bygginga og byggingarhluta, 1975.
[3] J.P. Holman. lieal Transfer. McGraw-Hill, 8.edition, 1997.
[4] A.F. Mills. Basic Heat and Mass Transfer. Prentice Hall, NJ, USA, 2.edition, 1999.
[5] Sonja Richter. Umhverf lagna í húsum - Utreikningar á varmatapi. Verkfræðideild Háskóla
íslands, 2001.