Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 66
64 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
1.2.6 Aðalfundur VFÍ
28. mars 2001 - fundargerð
Aðalfundur VFÍ árið 2001 var haldinn 28. mars, og hófst hann kl. 16:00 í húsakynnum
félagsins að Engjateigi 9 í Reykjavík.
Hákon Olafsson formaður félagsins setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna, en þeir
voru rúmlega 40 talsins.
Islenskt eldsneyti á bifreiðar: Aður en hefóbundin aðalfundarstörf hófust fluttu tveir fyrir-
lesarar erindi um íslenskt eldsneyti á bifreiðar. Prófessor Þorsteinn I. Sigfússon, formaður
NýOrku, íjallaði um notkun á vetni sem eldsneyti og Ögmundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri SORPU, fjallaði um möguleika á notkun metans sem eldsneytis. Bæði erindin voru
mjög áhugaverð og var gerður góður rómur að þeim. Að erindum loknum hófust hefð-
bundin aðalfundarstörf.
Að tillögu formanns félagsins var fundarstjóri kosinn Hafsteinn Pálsson og fundarritari
Óskar Valdimarsson.
Fundarstjóri kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort fundarmenn hefóu athugasemdir
fram að færa varðandi boðunina. Ekki komu fram athugasendir við og lýsti fundarstjóri
fundinn lögmætan.
Skýrsla stjórnar: Fyrsta mál á dagskrá var skýrsla stjómar, sem Hákon Ólafsson formaður
félagsins flutti.
Fram kom að félögum hefði fjölgað um 43 á árinu. Við bættust 59 félagar, 11 gengu úr
félaginu, sem er minnsti fjöldi úrsagna í heilan áratug og fimm létust. Heildarfjöldi félaga
er nú 1035 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Félagsgjöld hafa lækkað að raungildi um tæp 50%
fráárinu 1990.
Formaður fjallaði um útrás VFÍ á árinu, en m.a. var farin kynningarherferð á verk-
fræðistofurnar. Utrásin heldur áfram á næsta ári, með þeim hætti að nöfn allra nýrra félaga
fara í pott sem dregið verður úr og sá heppni fær ferð á kaffíhús í Evrópu. Hann fjallaði
einnig uni fjölbreytta starfsemi félagsins á árinu og nefndi þar m.a. ijórar ráðstefnur,
morgunverðarfúndi og samlokufundi. Þá var bent á árshátíðina og hið árlega golfmót.
Samlokufundimir em einstaklega vel sóttir og til stendur að bæta ijarfundarbúnað félaganna,
en þessir fundir eru allir haldnir í samvinnu við TFÍ. Tilraunir með að senda fundina út á net-
inu hafa ekki gefist vel og verður því snúið aftur til ijarfundarbúnaðar.
Utgáfumál voru ofarlega á baugi á árinu og bar þar hæst endurskoðun á Verktækni, bæði
umbroti, stækkun blaðsins og ijölgun faggreina. Verktækni er nú gefíð út mánaðarlega og er
blaðið allt viðameira. Hugmyndir hafa komið upp með að gera blaðið sjálfbært, en það
virðist ekki raunhæft markmið að sinni. Formaður þakkaði ritstjórn vel unnin störf á árinu.
Arbókin kom út með hefðbundnu sniði. Formaður lagði áherslu á uppbyggingu og viðhald
á heimasíðu félagsins.
Félagið á nú alla bygginguna að Engjateigi 9 eftir kaup á liðnu ári, eins og samþykkt var
á síðasta aðalfúndi. Allar kostnaðaráætlanir hafa staðist.
Náðst hefúr nýtingarhlutfall 0,60 á lóðinni Engjateigi 7 í stað 0,51 sem var samkvæmt
samningi. Leigutekjur em nú um 4 milljónir króna á ári og hófúst leigugreiðslur í september
2000. Eign félagsins í húsinu er um 60 milljónir króna. Vinna er hafin við uppbyggingu
hússins, en það hefur verið leigt byggingaraðilanum til 10 ára. Eignarhluti VFI snýr að