Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 232
230 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
eftirlit sem aðallega felst í því að fylgjast með aðilum sem hafa fengið heimild
Flugmálastjórnar til einhvers konar starfsemi tengdrar flugi. Fjórða ferlið er svo greining á
því hvernig til hefur tekist og hvað hægt er að læra af flugatvikum eða slysum. Hér gegnir
Rannsóknamefnd flugslysa mikilvægu hlutverki. Nánar verður ljallað um þessi ferli hér á
eftir.
Fimmta ferlið er upplýsingamiðlun og leiðbeiningarstarf. Það getur varðað öll hin ijögur
ferlin. Hér er aftur vandrataður meðalvegurinn þar sent flugöryggissvið getur ekki komið
með beinar leiðbeiningar og ráðgjöf um útfærslu á handbókum rekstraraðila, þar sem síðan
kemur til kasta flugöryggissviðs að samþykkja slíkar bækur. Skortur er á sjálfstæðum
ráðgjöfum hérlendis á þessu sviði og er það líklega vegna smæðar samfélagsins.
Með upplýsingagjöf til rekstraraðila og nemenda er reynt að koma á framfæri almennum
upplýsingum um möguleika og takmarkanir. Þar er t.d. upplýst um nýjar reglugerðir eða
breytingar á eldri reglugerðum.
Símenntun er óvíða jafnmikilvæg og í flugheiminum og stöðug þjálfun flugmanna er
mjög mikil og regluleg. Hins vegar þyrfti að koma á fleiri og öflugri námskeiðum hérlendis
sem snúa að flugöryggi almennt. Námskeiðum sem eru ekki eingöngu sniðin að því að
viðhalda réttindum. Fram til þessa hefur orðið að vísa fólki á námskeið erlendis, t.a.m. hjá
Flugöryggissamtökum Evrópu. Vonandi verður unnt að bjóða upp á námskeið hérlendis á
næstu árum og stofnun íslandsdcildar Flight Safety Foundation ýtir áreiðanlega undir það.
Aðgangsstjórnun
Aðgangsstjómun (entry control) birtist m.a. við hvers konar heimildarveitingar. Hún nær til
skráningar loftfara, útgáfu skírteina handa einstaklingum, veitingar hcimildar til reksturs
viðhaldsstöðvar og flugskóla, útgáfu flugrekendaskírteinis o.fl. Strangar alþjóðlegar kröfur
eru gerðar til allra þessara aðila og þeir verða að sýna fram á að þeir fúllnægi þeim
reglugerðum þar sem kröfúrnar er að fínna, svo og að stjómun þeirra og vinna sé að auki í
samræmi við viðteknar alþjóðlegar venjur í greininni. Eftirlitið felst í því að sjá til þess að
þeir einir fái heimildir sem uppfylla sett skilyrði. Því er framfylgt með ýmsum hætti, allt frá
yfírferð á gögnum til úttekta.
Umsækjandi þarf að koma sér upp öflugu stjómkerfi í samræmi við kröfur og reglur og
Ieggja fram rekstrarhandbók sem lýsirþví hvernig staðið erað sljórn öryggismála í rekstrinuin,
viðhaldi, þjálfun o.s.frv. Flugöryggissvið sér svo um yfirferð á bókum og gerir úttektir á
staðnum. Þetta getur verið umfangsmikið ferli fyrir flugrekendur. Sem dæmi má nefna að
það tók flugfélagið Bláfúgl eitt ár að undirbúa og ganga frá umsókn sinni til reksturs einnar
Boeing 737- fraktflugvélar í atvinnuskyni, þannig að félagið gæti sýnt fram á að það upp-
fyllti öll skilyrði JAR-OPS l. Að þessu máli var unnið í 2'A stöðugildi allan tímann og beinn
kostnaður fyrirtækisins við ferlið var um 10 milljónir króna. Sé þetta ferli borið saman við
fyrirtæki sem óskar eftir vottun á ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi sínu þá eru ferlin samkvæmt
þessu dæmi sambærileg að umfangi.
Algengustu heimildir sem flugöryggissviðið gefur eru til viðhaldsstöðva, útgáfa flug-
rekendaskírteinis til flugrekenda og starfsleyfi til flugskóla. Þá sér flugöryggissviðið um
skráningu loftfara og útgáfu einstaklingsréttinda. Við útgáfu skírteina til einstaklinga eða
áritanir í þau framfylgir flugöryggissviðið alþjóðlegum kröfum til prófa og sér um að leggja