Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 92
90 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Viðurkenning veitt fyrir stærðfríeðikennslu
I júní 2001 afhenti Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar þremur einstakl-
ingum viðurkenningu fyrirötult starf á sviði stærðfræði. Þau sem viðurkenninguna hlutu cru
Anna Kristjánsdóttir, prófessor við Kennaraháskóla íslands, Ari Ólafsson, dósent við
Háskóla íslands og Meyvant Þórólfsson, kennsluráðgjafi hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, aflienti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í
Kennaraháskóla Islands. I máli sinu greindi ráðherra frá störfum þeirra sem viðurkenningu
hlutu.
Anna Kristjánsdóttir lauk kandidatsprófi frá Danmarks lærerhojskole. Fræðasvið Önnu
er stærðfræðimenntun en auk þess hefur hún unnið að stórum verkefnum á sviði upplýs-
ingatækni. Anna hefur uni áratugaskeið verið virk í að auka hróður stærðfræðinnar, gegnum
innlent og erlent samstarf. Mönnum er t.d. í fersku minni fjöldi greina sem hún ritaði í
Morgunblaðið vegna árs stærðfræðinnar í fyrra. Hagsmunafélagið metur hve ötullcga Anna
hefur unnið að framgangi stærðfræðinnar í skólum og á opinberum vettvangi.
Ari Ólafsson er doktor í tilraunaeðlisfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og Meyvant
Þórólfsson lauk kennaraprófi og síðar framhaldsnámi frá Kennaraháskóla íslands. Ari og
Meyvant hafa unnið, bæði í samstarfi og hvor í sínu lagi, að nokkrum verkefnum til að
styrkja stöðu raunvísinda og stærðfræði í skólakerfínu. Verk þeirra hafa bæði bcinst að því
að efla kennslu á þessum sviðum og að auka áhuga ungs fólks á raunvísindanámi og störfúm
á sviði raunvísinda. Þeir hafa einnig staðið fyrir námskeiðum fyrir grunnskólakcnnara,
heimsóknum grunnskólanema til eðlisfræðiskorar HÍ, kynningum á fyrirtækjum og stofn-
unum á sviði raunvísinda og ráðgjöf til svonefndra móðurskóla í náttúruvísindum.
Hagsmunafélagið álítur þessi verkefni Ara og Meyvants afar þörf enda hefur skortur á
kennslutækjum í eðlisfræði og takmörkuð þjálfun kennara á þessu sviði hamlað mörgum
grunnskólum. I viðleitni til að verkefni Ara og Meyvants megi vaxa mun Hagsmunafélagið
á næstunni bjóða fyrirtækjum að styrkja einstaka skóla til kaupa á búnaði til verklegrar
kennslu í eðlisfræði.
r
Ahrif reiknilíkans á verk- og tæknimenntun á háskólastigi
hér á landi
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar efndi í nóvember 2001 til félagsfúndar
um reiknilíkan það sem menntamálaráðuneytið leggur til grundvallar ijármögnun
háskólastigsins. Flutt voru íjögur erindi sem skýrðu vel kosti og galla líkansins og í lok
fundarins var samþykkt ályktun til stjórnvalda. Frummælendur voru þeir Gísli Þór
Magnússon, menntamálaráðuneytinu, Sigurður Brynjólfsson, deildarstjóri verkfræðideildar
Háskóla Islands, Guðbrandur Steinþórsson, rektor Tækniskóla íslands, og Davíð
Lúóvíksson, verkfræðingur, starfsmaður Samtaka iðnaðarins. Undanfarin ár hefur menntun
í tæknigreinum nokkuð veriö til umræðu, ekki síst vegna krafna um að Tækniskólanum
verði sköpuð sambærileg rekstrarskilyrði og tíðkast í öðrum löndum. Þetta varð m.a. kveikjan
að því að menntamálaráðuneytið og aðilar á vinnumarkaðinum tóku höndum saman um að
gcra tilraun til að breyta rekstrarformi Tækniskólans. Niðurstaða þeirrar samvinnu varð þó