Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 78
76 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Á fundinn mættu rúmlega 60 manns. Þar á meðal var fulltrúi VFÍ, sem er Guðleifur M.
Kristmundsson, en hann er einnig fulltrúi í Mennt fyrir nefnd menntamálaráðuneytisins um
starfsmenntamál. Steindór Guðmundsson, formaður menntamálanefndar VFI, sat einnig
fúndinn. Eftir fundinn var rætt í menntamálanefnd VFI hvort VFI ætti að halda áfram þátt-
töku í Mennt. Samþykkt var að mæla með því við stjórnina að svo yrði.
Átta manns skipa stjóm Menntar, tveir tilnefndir af ASI, tveir af Samtökum atvinnulífsins,
tveir af Sambandi iðnmenntaskóla, einn af Samstarfsnefnd háskólastigsins og einn af
Samstarfsnefnd um menntun í iðnaði. Núverandi formaður er Ólafúr Jón Arnbjörnsson, full-
trúi Iðnmenntar. Hrönn Pétursdóttir, sem hafði frá upphafí gengt störfum framkvæmdastjóra
Menntar, hefúr nú látið af störfúm og nýr framkvæmdastjóri, Stefania Katrín Karlsdóttir, hóf
störf sl. haust. Vefslóð Menntar er www.mennt.is. Þar má finna frekari upplýsingar um
samtökin.
Formaður menntamálanefndar á sæti í Islandsnefnd FEANI sem einn af þremur full-
trúum VFI og tekur hann við formennsku þar á næsta starfsári. Gunnar Guðni Tómasson átti
sæti í TOS-hópnum („Tækni og skóli“), sem VFI og TFI skipuðu til að íjalla um hlut félag-
anna í því að styðja við kennslu í raungreinum og kynningu á tækni í grunnskólum. Hinn
fúlltrúi VFI var Guðleifur M. Kristmundsson. Hópurinn lagði fram lokaskýrslu sína til stjóma
félaganna haustið 2000. Nánar er sagt ffá starfsemi þessara nefnda í sérstökum greinargerðum.
Steindór Guðmundsson, formaður menntamálanefndar VFÍ
FEANI
íslandsnefnd FEANI
TFI og VFI eru sameiginlegir aðilar að FEANI (Evrópusamtökum verkfræðinga og
tæknifræðinga), sem m.a. hafa eftirlit með námi í verkfræði- og tæknifræði í Evrópu og gefa
út lista yfir þá skóla og það nám sem gefur rétt til að kalla sig tæknifræðinga og/eða verk-
fræðinga. Formaður hverju sinni sækir árlegan aðalfund samtakanna.
Þátttökuþjóðir eru 27, með um eina miljón verkfræðinga og tæknifræðinga. í hverju
aðildarlandi starfa landsnefndir og standa Tæknifræðingafélag íslands og Verkfræðinga-
félag Islands sameiginlega að Islandsnefnd FEANI. Félögin skiptast á formennsku í
nefndinni á tveggja ára fresti og tók TFI við formennsku á síðasta ári. Fyrir hönd TFÍ eru í
nefndinni Jóhannes Benediktsson formaður, Eiríkur Þorbjörnsson og Páll Jónsson. Fyrir
hönd VFÍ eru í nefndinni Guðleifur M. Kristmundsson, Sigurður Brynjólfsson og Steindór
Guðmundsson. Að auki er Jón Vilhjálmsson í nefndinni sem fulltrúi Eftirlitsnefndar FEANI.
Framkvæmdastjóri félaganna er ritari nefitdarinnar og hefúr hún haldið tvo fundi frá síðasta
aðalfundi.
Rekstur FEANI: Allt frá stofnun samtakanna hefúr verið mikil umræða meðal aðildarfélaga
um rekstur þess og staðsetningu. Rekstur FEANI er aðallega fjármagnaður með þátt-
tökugjöldum aðildarfélaga og greiðslu vegna viðhalds og uppfærslu EUR ING-titilsins.
Greitt er samkvæmt félagatölu einstakra landa til samtakanna og greiða VFÍ og TFÍ árlega
um kr. 100 þúsund til samtakanna. Höfuðstöðvar samtakanna hafa nýlega verið fluttar til
Brussel frá París. Með þeirri staðsetningu er ætlunin að gera samtökin áhrifameiri innan
Efnahagsbandalagsins frá því sem nú er. Auk framkvæmdastjóra eru tveir starfsmenn á
skrifstofu samtakanna.