Fréttablaðið - 10.11.2012, Side 2

Fréttablaðið - 10.11.2012, Side 2
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR2 DÓMSMÁL Leikkonan María Birta Bjarna- dóttir hefur höfðað skaðabótamál á hendur 25 ára gamalli konu sem setti auglýs- ingu í nafni Maríu inn á vefinn Einka- mál. Hún krefst hálfrar milljónar króna í bætur auk málskostnaðar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snýst málið um auglýsingu sem konan, sem María Birta þekkti, setti inn á stefnumóta- vefinn Einkamál í september í fyrra. Aug- lýsingin var í nafni Maríu og þar var boðin afbrigðileg kynlífsþjónusta af ýmsu tagi. Með fylgdi bæði mynd af Maríu og síma- númer hennar. Á einni klukkustund fékk María Birta sautján símtöl frá mönnum sem vildu þekkjast boðið. Morguninn eftir biðu hennar svo fjögur SMS-skeyti. Alls skoð- uðu yfir 300 manns auglýsinguna. María Birta kærði málið til lögreglu, sem rannsakaði það og tók skýrslu af stúlk- unni, sem gekkst við því að hafa sett inn auglýsinguna. Málið leiddi hins vegar ekki til refsingar og því ákvað María Birta að höfða einkamál. Hún telur auglýsinguna ólöglega mein- gerð gegn æru sinni og friði, enda hafi hún upplifað mikið varnarleysi, misst nokkra daga úr vinnu og orðið af tveimur flugnáms- tímum vegna andlegs áfalls og þurft að skipta um símanúmer, sem hafi tengst atvinnurekstri hennar – en María rekur verslunina Maníu. María Birta, sem fór með eitt aðal- hlutverkanna í kvikmyndinni Svartur á leik, vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hana og vísaði á lögmann sinn. Hún kvað málið þó ekki vera viðkvæmt. Hjálm- ar Blöndal, lögmaður Maríu, staðfesti að málið hefði verið höfðað en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um það. Tekist verður á um frávísunarkröfu í málinu í lok mánaðar. - sh MARÍA BIRTA BJARNADÓTTIR VIÐ HEIMILI REINFELDTS Lögreglan sá ekkert sem benti til morðs. NORDICPHOTOS/AFP SVÍÞJÓÐ Einn af lífvörðum Fred- riks Reinfeldts, forsætisráðherra Svíþjóðar, lést af skotsárum á heimili forsætisráðherrans í Stokkhólmi í gær. Skotið kom úr byssu hans sjálfs og flest bendir til þess að hann hafi svipt sig lífi. Enginn grunur er um að hann hafi verið myrtur. Annar lífvörður sem var að koma úr hádegismat kom að starfsfélaga sínum látnum. Sonur Reinfeldts er sagður hafa verið á heimilinu en lögregla hafði í gær ekki séð ástæðu til að yfirheyra neinn úr fjölskyldu for- sætisráðherrans. - gb Lífvörður lést af skotsárum: Svipti sig lífi í húsi Reinfeldts BANDARÍKIN Bradley Manning hefur boðist til þess að játa að hluta sekt í máli sínu, en neitar þó eftir sem áður að hafa veitt óvin- um Bandaríkjanna stuðning. David E. Combs, lögmaður Mannings, skýrði frá þessu á bloggsíðu sinni. Heimili dómari Manning að játa sekt að hluta getur ákæruvaldið þó engu að síður ákveðið að halda ákærum fyrir þyngstu brotin til streitu. Manning er sakaður um að hafa lekið leyniskjölum frá Bandaríkja- her til Wikileaks. Hann hefur setið í hátt í þrjú ár í einangrunarfang- elsi, en ekki er búist við að réttar- höld hefjist fyrr en á næsta ári. - gb Manning býður sátt: Reiðubúinn að játa að hluta BRADLEY MANNING Sakaður um að hafa lekið leyniskjölum til Wikileaks. NORDICPHOTOS/AFP 130 sóttu um lækkun Fiskistofa hefur móttekið alls 130 umsóknir um lækkun á sérstöku veiðigjaldi. Að sögn starfsfólks Fiskistofu mun allt verða gert til að afgreiða þær svo að lækkunin komi til framkvæmda á fyrsta gjalddaga, sem er 1. desember. Enn er hægt að sækja um lækkunina. SJÁVARÚTVEGUR Safnar fiski með hljóði Dr. Björn Björnsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni, hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni Framúr- stefnuhugmynd Sjávarútvegsráð- stefnunnar 2012. Hugmyndin byggir á lágtíðnihljóðmerki til fiskveiða – hljóði til að safna fiski saman. NÝSKÖPUN DANMÖRK Þegar múslímar fengu meirihluta í níu manna stjórn félags íbúa á svæðinu Egedals- vænge á Norður-Sjálandi var ákveðið að hafna tillögu um árleg kaup á jólatré. Samtímis var ákveðið að verja 60 þúsundum danskra króna til sérstakrar trúarhátíðar múslima. Danskir fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá þessari ákvörðun fimm manna meiri- hlutans og nú hefur einkaaðili gefið félaginu sjö þúsundir danskra króna til kaupa á jólatré sem stjórnin hefur þegið. - ibs Húsfélag í Danmörku: Meirihlutinn vildi ekki jólatré Leikkona höfðar skaðabótamál vegna falskrar auglýsingar á einkamal.is: Margir vildu afbrigðilegt kynlíf Valgerður, hugsarðu ekki stundum út fyrir boxið? „Jú, maður hugsar stundum í hring.“ Valgerður Guðsteinsdóttir er að gera það gott í hnefaleikahringnum. Hún hlaut gullverðlaun í sínum þyngdarflokki í ACBC-mótinu í Stokkhólmi um síðustu helgi. SLYS „Ég hélt að ég væri nú það þungur að ég tækist ekki á loft, en maður tókst á loft og hentist nokkra metra,“ segir Guðmundur Skarphéðinsson á Siglufirði um óhapp sem hann lenti í í óveðrinu sem geisaði víða um land í gær. Guðmundur, sem er stór og mikill maður, fór úr axlarlið og fékk nokkra skurði. „Það var nú vel sloppið. Það var krap líka og ég gat ekki fótað mig almenni- lega þegar vindhviðan kom í bakið á mér. Maður var kominn á fleygiferð þegar maður lenti úti í grjóturð og beint á kjaftinn þar. Þetta kom svolítið óvænt í bakið á manni.“ Aðspurður segir hann allt í sómanum, hann þurfi bara að jafna sig aðeins og taka því rólega um helgina. Hann var nýkominn af sjúkrahúsi þegar Fréttablaðið ræddi við hann. Vindur var 15 til 28 metrar á sekúndu norðan- og vestanlands í gær. Vindhviður náðu yfir fjöru- tíu metra á sekúndu. Snjór fylgdi veðrinu. Áfram verður vonsku- veður víða um land í dag. Búast má við að vindhviður fari yfir fjörutíu metra á sekúndu fram- an af deginum í dag. - þeb Guðmundur Skarphéðinsson á Siglufirði lenti í óhappi í óveðrinu í gær: Tókst á loft og hentist í grjóturð FRÉTTASKÝRING Hvað þarf að hafa í huga áður en haldið er utan í verslunarferð? „Við könnum þetta bara handa- hófskennt,“ segir Kári Gunn- laugsson, yfirtollvörður eftirlits- deildar Tollstjóra um tollaeftirlit í Leifsstöð. Nokkuð er um að fólk átti sig ekki á hvaða reglur gilda um hversu mikil verðmæti má hafa með sér tollfrjálst til lands- ins. Fjöldi „stikkprufa“ ræðst þó einnig af því hvaðan fólk er að koma. Nú er til að mynda að renna upp tími „verslunarferða“, hvort heldur þær eru til borga í Banda- ríkjunum eða Evrópu. „En það fer enginn í innkaupaferð til Noregs,“ bætir Kári við. „Helst að þá þurfi að líta eftir munntóbaki.“ Reglur tollsins er að finna á vefnum Tollur.is. Þar kemur fram að óheimilt sé að hafa með sér tollfrjálsan varning fyrir meira en 65 þúsund krónur. „En áfengi er ekki reiknað inn í þessa tölu,“ segir Kári. Þá má virði einstakra hluta ekki fara yfir 32.500 krónur. Þegar tollverðir skoða farang- ur fólks sem kemur til landsins þá getur fólk þurft að sýna fram á að dýr varningur, svo sem tölv- ur og snjallsímar, sem það hefur með sér hafi í raun verið keyptur hér á landi og því búið að greiða af honum toll. Öðrum kosti er varan gerð upptæk og fólki gert að greiða af henni. „Við ráðleggjum öllum að hafa með sér kvittanir fyrir dýrari hlutum sem þeir hafa með sér.“ Kári segir tollverði líka hafa leið til þess að sjá hvort iPhone-símar og sambærilegar græjur hafi í raun verið keyptar hér á landi. Apple haldi utan um skráningar- númer hverrar græju og hvar hún hafi verið seld. Því fylgir líka nokkur kostn- aður að verða uppvís að smygli, því þá þarf að borga af hlutnum tvöfalt aðflutningsgjald og 15 prósenta álag ofan á þá upphæð. „Ef gjöldin eru bara virðisauka- skattur og hluturinn kostar 100 þúsund krónur, þá bætist við verð hlutarins tvisvar sinnum 25.500 krónur og svo 15 prósenta álag á þann 50 þúsund kall,“ segir Kári. Kostnaðurinn við hlutinn væri þar með kominn upp í 157.500 krónur. „Svo er þetta náttúrlega vesen því þetta er ekkert afgreitt á staðnum og fólk missir hlutinn í einhverja daga meðan þetta fer í gegn um kerfið.“ olikr@frettabladid.is Dýr innkaup eiga að fara um rauða hliðið Viðurlög eru nokkur við smygli á tollskyldum varningi um „græna“ hliðið í Leifsstöð. Þá er varan gerð upptæk meðan unnið er úr málum. Vissara er að hafa með sér kvittanir fyrir dýrum hlutum sem fólk tekur með sér úr landi. 65.000 krónur Hámarksvirði varnings sem ferðafólk má hafa með sér til landsins án þess að greiða af því tolla og gjöld. 32.500 krónur Hámarksvirði einstaks hlutar sem fólk hefur með sér að utan. 18.500 krónur Hámarksvirði matvöru sem hafa má með sér til landsins, þar með talið sælgæti og fæðu- bótarefni. Oft hefur fólk dýra hluti með sér á milli landa Álag greiðist ofan á tvöfalt aðflutn- ingsgjald verði fólk uppvíst að því að reyna að smygla of dýrri vöru til landsins. 15% STJÓRNMÁL Niðurstöður úr próf- kjörum Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur- kjördæmi verða ljósar í kvöld. Samfylkingin er einnig með próf- kjör í Norðausturkjördæmi. Hjá Samfylkingunni berjast Katrín Júlíusdóttir og Árni Páll Árnason um fyrsta sæti í SV-kjör- dæmi. Bjarni Benediktsson og Ragnar Önundarson sækjast eftir fyrsta sæti hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Í NA-kjördæmi vill Kristján Möller 1. sætið og Sigmundur Ernir Rúnarsson 1. til 3. - þeb Spenna í Suðvesturkjördæmi: Úrslit prófkjöra verða ljós í dag SPURNING DAGSINS AÐEINS Í DAG! kíktu inn á www.pfaff.is Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 SENNHEISER HEYRNARTÓL HD-419 VERÐ ÁÐUR 9.700,- NÚ 5.800,- Opið í dag, laugardag kl. 11-16. 40% Ég hélt að ég væri nú það þungur að ég tækist ekki á loft, en maður tókst á loft og hentist nokkra metra. [...] Maður var kominn á fleygiferð þegar maður lenti úti í grjóturð og beint á kjaftinn þar. GUÐMUNDUR SKARPHÉÐINSSON ÍBÚI Á SIGLUFIRÐI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.