Fréttablaðið - 10.11.2012, Page 42

Fréttablaðið - 10.11.2012, Page 42
KYNNING − AUGLÝSINGHeimili & hönnun LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512- 5411 | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Hönnunarfyrirtækið Bility hefur sent frá sér kertastjaka og kertaklemm- ur sem varpa frá sér hlýlegu munstri á vegg. Kertastjakarnir, sem hönn- uðurinn Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir kallar kristalla vetrarins, heita Mjöll, Drífa og Snær og vísa í íslensk nöfn á snjó. Kertaklemmunum er smellt á sprittkerti og fást í átta mismunandi gerðum, þrjú vetrarljós og fimm vættir. „Munstrin eru öll úr Sjónabókinni, sem kom út árið 2009, en hún hefur að geyma munstur sem voru notuð í útsaumi, vefnaði og til ýmissa hann- yrða áður fyrr og hafa margir hönnuðir sótt innblástur í hana.“ Vörurnar fást í flestum hönnunarverslunum. Vættir og kristallar á vegg ÞAÐ ER SANNARLEGA HÆGT AÐ SPARA MEÐ SPARPERUM Margir eru eflaust að býsnast yfir því að vera neyddir í að skipta út gömlu góðu glóperunum fyrir nýjar svokallaðar sparperur. Orðið sparperur segir okkur í raun allt sem segja þarf um hvers vegna þessi breyting á sér stað. Sparperur nota um 80 prósentum minna rafmagn. Ef farið er inn á vef Orkuseturs, www.orkusetur.is, er fljótlegt að reikna út kostnaðarlækkunina sem þessu fylgir. Tökum dæmi um heimili með 25 ljósaperur. Þar af eru 15 stykki fjörutíu vatta perur og 10 stykki sextíu vatta perur. Að meðaltali er kveikt á hverri peru í 25 tíma á viku. Kostnaðurinn við lýsinguna miðað við gömlu glóperurnar er 18.720 krónur á ári en 4.914 miðað við sparperur. Mismunurinn, 13.806 krónur, er hreinn og klár sparnaður. Sparperur endast líka lengur, eða um það bil 15.000 klukkustundir, en venjulegar ljósaperur endast einungis í um 1.000 klukkustundir. Fjárfesta þarf því í um 15 glóperum til að fá fram sama endingartíma og ein sparpera veitir. Við köllum kertastjakann Árstíðir því við viljum ekki einskorða hann við eina hátíð á ári,“ segir Árný Þórarins- dóttir, önnur tveggja arkitekta sem mynda hönnunarteymið Stáss en þær Helga G. Vilmundar- dóttir hafa sent frá sér nýja jóla- vöru síðustu fjögur ár. „Okkur fannst það áskorun að búa eitthvað til sem ekki væri eingöngu tengt jólunum en yfir- bragði stjakans má breyta eftir því hvað við á. Kertastjakinn er búinn til úr álgrind og ofan í hann miðjan fellur handrennd beykiskál. Með því að setja til dæmis rauð epli, jólakúlur eða köngla í skálina má nota hann sem aðventukrans en með því að setja eitthvað allt annað í skálina, sælgæti eða popp, er stemmingin orðin önnur.“ Kertastjakinn er framleidd- ur hér á landi og segjast Árný og Helga reyna í lengstu lög að nýta innlend framleiðsluf yrirtæki. „Við erum mjög stoltar af því að geta framleitt hér heima. Skálina rennir yndislegur smiður fyrir okkur en hann hefur unnið með okkur áður og rennt litlar tréskál- ar sem falla ofan í FOLD-hilluna. FOLD-hillan er einmitt líka úr áli og hugmyndin að kertastjakan- um er af sama meiði. Í báðum til- fellum vinnum við með ál og við og látum þessi ólíku efni mæt- ast, harðan málm og mjúka nátt- úruna. Álið er mjög skemmti- legt efni og framleitt hér á landi en hefur þó ekki verið mikið nýtt í hönnunarvöru fram að þessu. Það er þó að aukast,“ segir Árný. Þær Árný og Helga eru einnig farnar að undirbúa nýjar vörur fyrir HönnunarMars sem hald- inn verður í vor og hafa því í nógu að snúast. „Við erum að undirbúa HönnunarMarsinn með fram því sem við tökum að okkur arki- tektaverkefni. Fólk gleymir því gjarnan að við erum báðar arki- tektar og heldur að við framleið- um bara jólaskraut,“ segir Árný hlæjandi. Kertastjakinn Árstíðir er fá- anlegur í svörtu og hvítu í Neta- gerðinni, þar sem Stáss er með vinnustofu. Þá má einnig forvitn- ast um Stáss á Facebook Glæný vara frá stelpunum í Stássi Arkitektarnir Helga G. Vilmundardóttir og Árný Þórarinsdóttir hafa undanfarin fjögur ár sent frá sér nýja jólavöru fyrir hver jól undir merkinu Stáss. Í ár frumsýndu þær nýjan kertastjaka á sýningu Handverks og hönnunar sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur um síðustu helgi. Í þetta skiptið á varan þó ekki bara erindi upp úr skúffunum á jólum. Rauð kerti og epli skapa jólalega stemm- ingu. Stjakinn er kallaður Árstíðir en auðvelt er að breyta yfirbragði hans eftir tilefni. Handrennd skál úr beiki fellur ofan í miðjann stjakann.Arkitektarnir Helga G. Vilmundardóttir og Árný Þórarinsdóttir hanna undir merkinu Stáss. JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS KEMUR ÚT 27. NÓVEMBER Meðal efnis í blaðinu: Jólaljósin, kökur, sætindi, skraut, föndur, matur, borðhald, jólasiðir og venjur. Atli Bergmann atlib@365.is 512 5457 Benedikt Freyr Jónsson benni@365.is 512 5411 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is 512 5427 Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Bókið auglýsingar tímanlega: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is 512 5432
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.