Fréttablaðið - 10.11.2012, Page 80

Fréttablaðið - 10.11.2012, Page 80
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR48 Þau börn sem aðhyllast spennandi bækur geta hlakkað til að lesa nýút- komna bók Iðunnar Steinsdóttur rithöf- undar Varið ykkur á Valahelli. Sagan kom út fyrir 30 árum undir heitinu Knáir krakkar. „Ég byrjaði rithöfund- arferilinn á þessari sögu,“ segir Iðunn brosandi og rekur í stuttu máli aðdrag- anda þess að hún fór út á þá braut. „Þegar ég var barn og unglingur hafði ég mjög gaman af að skrifa ritgerðir og sögur. Svo datt það alveg niður en árið 1979 fór ég í réttindanám í Kenn- araskólanum, að hluta til í bréfaskóla þannig að ég sendi inn verkefni. Þá upp- götvaði ég hvað ég átti auðvelt með að skrifa svo ég ákvað að prófa að skrifa bók í anda Blyton fyrir krakka á aldr- inum sex til tíu ára. Nú þegar sagan var orðin þrjátíu ára þurfti ég að umskrifa hana því tungumálið hefur mikið breyst með tímanum. Atburðarásin í sögunni er alveg sú sama en ég stytti hana dálít- ið, skipti bókmálinu út fyrir daglegt mál og bjó til nýjan titil.“ Úr smiðju Iðunnar eru komnar hvorki meira né minna en 32 barnabækur, 23 námsbækur, sem sumar eru unnar með öðrum, og tvær bækur fyrir fullorðna, Haustgríma og Víst er ég fullorðin. Leikritið Síldin kemur og síldin fer, sem hún samdi með systur sinni Kristínu, sló rækilega í gegn. Iðunn er líka höf- undur vinsælla dægurlagatexta eins og Bíddu pabbi, Jón er kominn heim, Ég fer í fríið og Átján rauðar rósir, auk ótal annarra. Hún á hefti sem heitir Verka- menn á grasi – kveðskapur í 60 ár – og geymir 100 texta sem hún hefur ort, flesta eftir pöntunum. Nafnið á ritinu á sína sögu. „Þegar ég var um fimm ára ákváðum við Heimir bróðir, sem var þremur árum eldri, og frændi okkar, sem var þremur árum eldri en hann, að yrkja vísur og fara með hvert fyrir annað. Bróðir minn var með kisuvísu en ég var svo meðvituð um stéttabaráttu og hóf mína á setningunni: „Verkamenn á grasi“. Strákarnir láku niður úr hlátri svo ég komst ekkert lengra. En þetta var mín fyrsta tilraun til að yrkja og mér fannst tilvalið að nefna heftið eftir henni. Nú er ég komin yfir í sálmana svo þetta er dálítið breitt svið en þegar ég fæ lag til að yrkja við þá gengur það yfirleitt vel.“ Iðunn ólst upp á Seyðisfirði, fór 15 ára í landsprófsdeild á Akureyri og MA í framhaldinu. „Ég var fimm vetur fyrir norðan en heima á sumrin, vann í kaupfélaginu, á símstöðinni og í síld og saltfiski. Flutti svo suður 1960 og byrjaði snemma að búa eins og títt var þá. 1966 fórum við hjónin með börnin þrjú til Húsavíkur, vorum þar í sex ár, í Mývatnssveit í fjögur ár og komum svo hingað suður.“ Eiginmaður Iðunnar var Björn Frið- finnsson ráðuneytisstjóri. Hann lést úr krabbameini í júlí í sumar. „Björn var 72 ára eins og ég, við vorum búin að vera par í 54 ár, þannig að það er mikið sem fer,“ segir Iðunn. „Hann var búinn að vera mikið veikur í ár svo andlátið kom ekki á óvart en þegar krabbamein- ið uppgötvaðist var það mjög óvænt, það fór svo leynt. Við áttum gullbrúðkaup í vor, þá gat hann komið heim af spítalan- um og við höfðum kaffi fyrir fjölskyld- una.“ gun@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is IÐUNN STEINSDÓTTIR: ENDURSKRIFAÐI ÞRJÁTÍU ÁRA ÆVINTÝRABÓK TUNGUMÁLIÐ HEFUR MIKIÐ BREYST MEÐ TÍMANUM RITHÖFUNDUR OG SKÁLD „Nú er ég komin yfir í sálmana svo þetta er dálítið breitt svið en þegar ég fæ lag til að yrkja við gengur það yfirleitt vel.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Merkisatburðir 1913 Járnbrautarlest er notuð til fólksflutninga á Íslandi í fyrsta sinn er verktakar nota flutningalest til að flytja blaða- menn og farþega frá Reykjavíkurhöfn að Öskjuhlíð. 1928 Vígð er brú yfir Hvítá í Borgarfirði hjá Ferjukoti, mikið mannvirki. 1949 Þjórsárbrú er vígð, 109 metra löng. 1967 Siglufjörður kemst í vegasamband allt árið við opnun Strákaganga sem eru 800 metra löng. 1984 Raforkukerfi Íslands er hringtengt þegar Suðurlína er tekin í notkun. Söguhetjur bókarinnar Varið ykkur á Valahelli eru þrír tíu ára krakkar sem fara í útilegu og lenda í dularfullum aðstæðum: -Við skulum koma inn í hellinn og kalla. Það getur verið að hann sé að villast hérna nálægt og hafi bara ekki hitt á réttu göngin. Þau fara inn í hellinn, kalla og hrópa en fá ekkert svar. -Við verðum að fara lengra, segir Lóa mjórri röddu. -Það borgar sig ekki. Ekki er betra að við förum öll að týnast hér. -Eigum við að hringja heim eftir hjálp? Ef margir koma strax og leita með sterkum ljósum þá hlýtur hann að finnast, segir Lóa. -Já, ef þeir taka líka horn eða lúðra með sér þá rennur hann ef til vill á hljóðið. -Hringdu í hvelli. Hrói tekur símann upp en nær engu sam- bandi. Þau hlaupa fram að opi og Hrói skríður upp og slær inn númerið heima hjá sér. - Æi, shit, hann er raf- magnslaus. Réttu mér þinn, segir hann. Lóa stingur hendinni í vasa en þar er enginn sími. ÚR BÓKINNI Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGU SIGURJÓNSDÓTTUR Víðimel 72. Garðar Guðmundsson Guðrún Helgadóttir Sigrún Kristín Guðmundsdóttir Torfi Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför okkar ástkæru, MARGRÉTAR TINNU G. PETERSSON Birkilundi 2, Akureyri. Selma Aradóttir Jóhann Freyr Jónsson Martin Petersson Saga Marie Petersson Guðmann Ólfjörð Guðmannsson Helga Magnúsdóttir Þorleifur Stefánsson Stefán Grétar Þorleifsson Ari B Hilmarsson Margrét Kristinsdóttir Gunnar Sólnes og aðrir aðstandendur. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Elskuleg móðir og amma, MÁLFRÍÐUR (FRÍÐA) JÓNSDÓTTIR húsmóðir, Sólheimum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 26. október. Innilegar þakkir til starfsfólks á deild A7 sem annaðist hana af alúð og umhyggju til hinstu stundar. Málfríður verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning Blindrafélagsins. Blessuð sé minning þín. Margrét Ólöf Héðinsdóttir Alexander Kristófer Gústafsson og aðrir aðstandendur. Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁLFHEIÐAR BJÖRNSDÓTTUR áður til heimilis að Hörgatúni 11, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins á Vífilsstöðum fyrir alúð og einstaka umönnun. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna S. Sigmundsdóttir Eiríkur Hjaltason Birna J. Sigmundsdóttir Kolbrún S. Sigmundsdóttir Jón Torfason Kristján P. Sigmundsson María E. Ingvadóttir barnabörn og barnabarnabörn 24 tíma vakt Sími 551 3485 Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947 ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ ÚTFA RARÞJÓNUSTA SVANFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR bæjarstjóri á afmæli í dag. „Þegar allra veðra er von er maður þakklátur fyrir góðu dagana.“ 61
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.