Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.11.2011, Síða 10

Fréttatíminn - 18.11.2011, Síða 10
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is Fjárfestu í sjóði til efri áranna Þú greiðir ekki fjármagnstekjuskatt fyrr en við sölu eigna í sjóði 50% afsláttur af söluþóknun sjóða fram til 16. desember Hagkvæm og fagleg eignastýring Hátt vægi ríkistryggðra eigna Atvinnuleysi eykst með haustinu 0,2% Vöxtur AtVinnuleysis Milli september- og októbermánaða 2011 Vinnumálastofnun Félagarnir úr Fjölbrautaskóla suðurnesja útbjuggu náttborð úr hvítri málningardós þar sem innbyggt var ljós og hleðslutæki fyrir farsíma.  Samkeppni Hugvit framHaldSSkólanema Náttborð Snilldarlausn 2011 Náttborð, sem Guðmundur Her- mann Salbergsson, Sigurður Jón Sig- mundsson, Jón Gunnar Sæmunds- son og Haukur Örn Harðarsson, nemendur í Fjölbrautaskóla Suður- nesja, hönnuðu, bar sigur úr býtum í keppninni Snilldarlausnir Marels, hugmyndasamkeppni framhalds- skólanna fyrir árið 2011, sem fór fram í þriðja sinn. Verðlaunin, sem nema 100 þúsund krónum, voru afhent af Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráð- herra, á þriðjudaginn. Hátækni- og nýsköpunarfyrirtækið Marel hefur verið bakhjarl keppninnar en einn- ig hafa Samtök atvinnulífsins stutt keppnina með myndarlegum hætti frá upphafi. Mennta- og menningar- málaráðuneytið hefur einnig sýnt keppninni mikinn stuðning og veitt kærkomna aðstoð. Framhaldsskólanemum var falið það hlutverk í Snilldarlausnum Mar- el að gera sem mest virði úr fyrir- fram ákveðnum einföldum hlut. Áður hafa þessir einföldu hlutir verið herðatré og pappakassi en í ár var það dós sem lék aðalhlutverkið í keppninni. Önnur verðlaun Frumlegasta hugmyndin: Þakrennuviðgerð Verðlaun: 50 þúsund krónur Skóli: Menntaskólinn í reykjavík Nafn: rebekka Jenný reynisdóttir Flottasta myndbandið: Dósastrengur Verðlaun: 50 þúsund krónur Skóli: Verzlunarskóli Íslands Nafn: Haukur Kristinsson og Árni steinn Viggósson Líklegast til framleiðslu: Hleðslutækjahaldari Verðlaun: 50 þúsund krónur Skóli: Menntaskólinn á Akureyri Nafn: steinar eyþór Valsson, Agnes eva Þórar- insdóttir, Harpa lind Konráðsdóttir, Kolbrún Helga Hansen og sigrún Helga Andrésdóttir einkaneyslan af stað með látum Miðað við kortaveltu í október fer einkaneysla síðasta fjórðungs ársins af stað með látum, að því er fram kemur í tölum seðlabankans. Kortaveltan var 30,1 milljarður sem er aukning um 700 milljónir frá fyrri mánuði, eða 2,4 prósent. Miðað við sama mánuð í fyrra jókst veltan um rúmlega 20 prósent. tölur um kortaveltu styðja spár um talsverðan vöxt einka- neyslu á síðasta fjórðungnum. samkvæmt tölum rannsóknarseturs verslunarinnar jókst velta með húsgögn um 5,2 prósent að raungildi í október frá sama mánuði fyrra árs, og þá jókst velta með rúm um 10,4 prósent á sama mælikvarða. Á síðustu 3 mánuðum hefur verslun með rúm aukist um 20 prósent að raungildi miðað við sama tímabil fyrra árs. -jh Aðildarviðræður eða aðlögunarferli? Hvað þýðir hugsanleg aðild Íslands að evrópusambandinu? Framsal auðlinda eða loforð um lága verðbólgu? er aðild ávísun á fullveldisframsal eða aukin áhrif okkar á ákvarðanatöku? Millilandaráðin og Við- skiptaráð Íslands standa fyrir morgunfundi um stöðuna á samningaviðræðum Íslands við esB í dag, föstudaginn 18. nóvember. stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamn- ingamaður Íslands í samningaviðræðum við esB, og Kolbeinn Árnason, formaður samningahópsins um sjávarútvegsmál, munu fara yfir stöðuna nú þegar viðræður við esB eru hafnar. Fundurinn verður í Húsi verslunarinnar á hæð 0, gengið inn norðanmegin, klukkan 8.15 - 9.45. -jh samráðsvefur fyrir Íslendinga lýðræðisvefurinn Betra Íslands var opnaður á miðvikudaginn. um er að ræða nýjan samráðsvef fyrir Íslendinga sem byggður er á sama grunni og Betri reykjavík, að því er segir í tilkynningu. tilgangur hans er að tengja saman al- menning og þingmenn, hvetja til góðrar rökræðu um landsmálin og að styrkja fulltrúalýðræðið. Á honum eru öll laga- frumvörp og þingsályktunartillögur sem nú liggja fyrir Alþingi en á vefnum gefst almenningi kostur á að láta skoðun sína á þeim í ljós og færa fram rök með þeim eða á móti. Allar ræður á Alþingi eru aðgengilegar sem einstök myndskeið og auðvelt er að deila þeim á Facebook eða öðrum samskiptamiðlum. Þegar ákveðinn fjöldi notenda styður eða er á móti þing- máli verða rök og umræður sendar sjálf- virkt inn sem umsögn til nefnda Alþingis á meðan málið er í vinnslu. - jh Atvinnuleysi mældist 6,8 prósent í október og hefur því aukist um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði þegar atvinnuleysi var 6,6 prósent. Sökum árstíðarsveiflu eykst atvinnuleysi á haustin. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi í nóvember verði á bilinu 6,9 prósent til 7,2 prósent, að því er fram kemur í tölum stofnunarinnar. Að meðaltali voru 10.918 atvinnulausir í október og fjölgaði þeim um 159 að meðaltali frá fyrri mánuði. Atvinnuleysi fer þó minnkandi þegar litið er til lengri tíma. Fyrir ári var atvinnuleysi 7,5 prósent og var við upphaf þessa árs 8,5 prósent en hæst fór það í 9,3 prósent í febrúar 2009. Atvinnuleysi hefur það sem af er ári verið að meðaltali 7,5 prósent en var að meðaltali um 8 prósent árin 2009 og 2010. -jh Þ að er gaman að segja frá því að það hefur aldrei gengið betur en einmitt nú á afmæl- isárinu,“ segir Guðmundur Arnars- son hjá Ástund en þessi verslun, sem sérhæfir sig í hestavörum, heldur upp á 35 ára afmæli sitt um þessar mundir. Guðmundur segir mestu skipta að samkeppnisstaða útflytjenda á íslenskum hestavörum hafi batnað eftir hrun þar sem íslensku vörurn- ar hafi hækkað minna. „Í erfiðleik- um og kreppu felast tækifæri. Það er aukinn útflutningur í reiðtygj- um. Ástralía er til að mynda nýjasta landið þar sem seld eru íslensk reið- tygi. Íslenski hesturinn er að hasla sér völl þar en þetta tekur auðvitað tíma,“ segir Guðmundur og bætir við að Ástund sendi nú reglulega reiðtygi, höfuðleður, múla og tauma til tólf landa en fluttar hafa verið út vörur til rúmlega tuttugu landa. „Við seljum til allra Norður- landanna, Þýskalands, Belgíu, Austurríki, Sviss, Hollands, Frakk- lands og Bandaríkjanna svo dæmi séu nefnd,“ segir Guðmundur en Ástund hefur rekið eigið söðlaverk- stæði frá árinu 1985 þar sem reið- tygi og hnakkar eru smíðaðir. Og það er ekki bara reiðtygin sem seljast út um allan heim því nú stefnir í metár í sölu hnakka. „Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki sem hefur vaxið frá byrjun. Og það gengur bara ljómandi vel,“ segir Guðmundur. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is  ÚtráS HeStamennSka Selja reiðtygi um heim allan Feðgarnir Arnar Guðmundsson og Guðmundur Arnarsson í Ástund. ljósmynd Hari Ástund heldur upp á 35 ára afmæli sitt um þessar myndir. Gríðarleg aukning hefur verið í út- flutningi á hestavörum á undanförnum árum, sérstaklega á reiðtygjum. 10 fréttir Helgin 18.-20. nóvember 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.