Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.11.2011, Blaðsíða 21

Fréttatíminn - 18.11.2011, Blaðsíða 21
kjölinn enda liggur allt Ísland þar fyrir norðan. En það þýðir ekki endilega að við förum nákvæm- lega sömu leið. Finnskur land- búnaður er til dæmis mög ólíkur þeim íslenska. Hvernig samið var við Svíþjóð og Finnland er fyrst og fremst mjög ákveðin vísbending um að það er svigrúm í viðræðum við sambandið að ná fram sér- lausnum sem henta hverju landi, eins og Evrópusambandið hefur í raun sjálft sagt.“ Stefán ítrekar að landbúnaðar- stefna Evrópusambandsins sé eitt af helstu grunnstefunum í samstarfi ESB-ríkjanna. „Það er mikil áhersla lögð á að halda úti fjölbreyttum atvinnutækifærum í dreifðum byggðum. Evrópusam- bandið hefur enga hagsmuni að því að rústa landbúnaði í nýjum aðildarríkjum. Þvert á móti er stefnan að tryggja að landbún- aður þrífist alls staðar innan ESB ekki síst með tilliti til fæðuöryggis og byggðasjónarmiða. Það þýðir hins vegar ekki að það verði ekki breytingar á rekstrarumhverfi ein- stakra búgreina, en ýmsar leiðir eru til að mæta þeim, þar á meðal þessi norðlægi stuðningur. Þá eru ónefnd þau tækifæri sem falist geta í aðild fyrir bændur, til dæmis útflutningur lambakjöts og fleiri afurða til Evrópu,“ segir Stefán. Fiskurinn enn óslægður Hinn stóri óopnaði samnings- kaflinn – og án efa sá veigamesti – snýst um fiskinn, þá miklu sameign þjóðarinnar. Hvernig skyldi Stefán meta líkurnar á því að yfirráð Íslendinga yfir þeirri dýrmætu auðlind verði tryggð til frambúðar eins og fram kemur í umboði Alþingis, sem fól ríkis- stjórninni að sækja um aðild? „Við erum að vinna að útfærslu samningsmarkmiðanna og þar eru nokkur lykilatriði sem við telj- um gefa okkur mjög sterka stöðu. Í fyrsta lagi liggur efnahagslög- saga Íslands alveg sér. Hún liggur ekki að lögsögu neins aðildarríkis Evrópusambandsins. Í öðru lagi eru 70 prósent af fiskistofnunum við Ísland stað- bundnir. Þeir halda sig innan lög- sögunnar, eru alfarið veiddir af Íslendingum og engum öðrum. Þetta eru mjög mikilvægt atriði því sjávarútvegsstefna Evrópu- sambandsins eru hugsuð fyrir aðrar aðstæður en eru hér. Hún er sniðin að kringumstæðum á borð við Eystrasaltið þar sem mörg lönd liggja að sama hafsvæði og nýta sömu stofna. Svipað og er til dæmis líka við Norðursjó og Biscaya-flóa. Þessar aðstæður kalla á sameiginlega stefnu og stjórnun en það á ekki við um okkur. Í þriðja lagi þá höfum við Ís- lendingar rekið okkar sjávarútveg betur en Evrópusambandinu hefur tekist innan sinna raða. Við erum sammála meginmarkmiðum sjávarútvegsstefnu ESB, sem lúta að sjálfbærni veiða og svo fram- vegis, en við erum að ná þeim betur heldur en aðildarríkin. Í fjórða lagi kemur svo regla Evrópusambandsins um hlut- fallslegan stöðugleika. Reglur sambandsins byggja mjög á veiði- reynslu og þar sem Íslendingar eru þeir einu sem hafa veitt stað- bundnu fiskistofnana í meira en 30 ár, þá myndum við, samkvæmt núgildandi reglum, sitja einir að þessum veiðum. Á það hefur verið bent að mögulega verði þessu reglum breytt eftir á. Þess vegna þurfum við að tryggja að það verði ekki gert að okkur forspurðum.” Stefán segir að draga megi þessi rök saman svona: „Við Ís- lendingar erum útaf fyrir okkur, með eigin stofna og umgöngumst þá vel. Aldrei áður hefur ríki sótt um aðild sem hefur svo veiga- mikla hagsmuni í sjávarútvegi og það þarf að finna lausn sem heim- ilar okkur að halda áfram að reka sjávarútveginn eins og við höfum verið að gera. Önnur erfið atriði sem þarf að taka á eru deilistofnar og fjárfestingar. Aðspurður hvort til séu innan Evrópusambandsins sambærileg fordæmi og um sérlausnir fyrir norðlægan landbúnað, segir Stefán svo vera. „Við höfum sett fram þá hug- mynd að Ísland og íslensk efna- hagslögsaga verði skilgreint sem sérstakt stjórnunarsvæði. Svipuð hugmyndafræði er til innan ESB fyrir Azoreyjar, Madeira og Kanar- íeyjar að 100 mílum og fyrir Möltu að 12 mílum. Þetta er konsept sem væri mögulegt að byggja á og þá myndum við vilja að það næði yfir alla okkar efnahagslögsögu, allar 200 mílurnar. En rétt er að benda á að vissulega eru þessar eyjar, að Möltu frátalinni, ekki sjálfstæð ríki heldur skilgreind sem svæði sem eru hluti af aðildarríkjunum.” Stefán bendir að auki á að Norð- menn hafi samið um sérlausn fyrir sinn sjávarútveg í samningnum sem var síðar felldur í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Sú lausn var að vísu tímabundin þó norsk stjórnvöld hafi sjálf litið svo á að ekki yrði haggað við henni. „Við þurfum að búa þannig um hnútanna að sú lausn sem við semj- um um verði tryggð með varan- legum hætti.“ Kaflinn um evruna grundvall- armál Auk þess að snúast um landbúnað og sjávarútveg ná samningavið- ræðurnar um aðild Íslands að ESB til fjölmargra annarra mikilvægra málaflokka. Stefán segir þátttöku Íslands í, þar á meðal, byggða- og atvinnustefnu ESB vera afar þýðingarmikla og gæti falið í sér umtalsverð sóknarfæri fyrir Ís- lendinga. Samningskaflinn um evruna er einnig grundvallarhags- munamál fyrir Íslendinga því gangi Ísland í Evrópusambandið er unnt að tengja krónuna við evruna með stuðningi Seðlabanka Evrópu sem ætti að stuðla að stöðugleika. Það er því mikið í húfi fyrir Ísland í yfir- standandi aðildarviðræðum. Síðast en ekki síst segir Stefán mikilvægt að fram fari hreinskiptin og opin umræða, sem nái til kosta og galla mögulegrar aðildar. Jón Kaldal jk@frettatiminn.is     •  •  •  •   • • •    viðtal 21 Helgin 18.-20. nóvember 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.