Fréttatíminn - 18.11.2011, Síða 24
bestu &
verstukápurnar
arionbanki.is – 444 7000
Nýr valkostur í íbúðalánum
Ingvi Örn Þorsteinsson, 35 ára.
„Ég vel blandað íbúðalán.“
Viðskiptavinum Arion banka bjóðast nú blönduð íbúðalán sem jafna sveiflur í greiðslubyrði.
Í boði er lán fyrir allt að 80% af virði eignar og er hægt að velja á milli fimm kosta þar sem óverðtryggður
hluti lánsins getur verið allt að 100%.
Við bjóðum sveigjanleika.
Óverðtryggt lán Blandað lán 1 Blandað lán 2 Blandað lán 3 Verðtryggt lán
50%
50%
25%
75%
75%
25%
100%
0%
0%
100%
Þú getur reiknað út hvernig íbúðalán hentar þér á arionbanki.is eða komið til okkar í næsta útibú.
N
ú ríkir skjálfti meðal höfunda og útgefenda
sem rýna sig rauðeyga í sölutölur og vinsældar-
lista. Bókakápurnar skipta ekki minnstu máli
þegar vekja skal athygli á ritverki og því ákvað
Fréttatíminn að skoða hvernig landið liggur
í þeim efnum. Góður hópur valinkunnra einstaklinga, sem
allir eiga það sammerkt að hafa dálæti á bókum, voru beðnir um
að tilnefna þrjár bestu bókakápurnar... og þær verstu einnig því
merking nærist jú á andstæðu sinni – og að forgangsraða. Valið
er algerlega burtséð frá efni og innihaldi; spurningin er einfald-
lega: Laðar kápan þig að lestri eða gerir þig fráhverfan honum?
Bækurnar fengu svo stig eftir kúnstarinnar reglum; 5 fyrir fyrsta,
3 fyrir annað og eitt fyrir þriðja sæti. Þá gat fjöldi tilnefninga haft
áhrif. Smekkur manna er misjafn og atkvæði dreifðust víða. Og
menn skulu hafa hugfast að fyrst og síðast er um græskulausan
samkvæmisleik í jólabókavertíð að ræða.
Bestu
Trúir þú á Töfra?
Vigdís Grímsdóttur/JPV
1 Sigrar örugglega með 20 stig og sex tilnefningar. „Litrík og galin
kona sem, kannski soldið eins og
höfundurinn sjálf-
ur, ber það með sér
að vera skemmti-
leg. Kápan er strax
búin að skapa
ákveðna stemn-
ingu. Þegar maður
sér svona bókakáp-
ur hugsar maður
með sér: „Þetta hlýtur að vera
skemmtileg bók“. Annar álits-
gjafi: „Grípandi kápa sem festist
strax í minni; augun elta mann
lengi.“ Og: „Ég er eitthvað
veikur fyrir Vigdísi Gríms
sem sprettur skyndilega
fram sem myndlistar-
maður.“ „Málverk eftir
Vigdísi prýðir forsíð-
una. Bókin sker sig
úr, litirnir sterkir og
undarlegur kraftur í
fígúrunni sem horfir
hissa á mann á for-
síðunni. Kápan er list-
ræn og djörf og dansar
á mörkum fegurðar og
kitsch.“ Og þeir kunna að
orða það álitsgjafarnir: Og: „Eigin-
lega bara mynd af Vigdísi sjálfri;
sterkar andstæður, nánast þrívídd,
hversdagsleg rithönd, ávarp, pers-
ónuleg en framandi.“
Nú fellur að. Jólabókaflóðið. Jakob Bjarnar
Grétarsson leitaði til valinkunnra einstaklinga
sem allir hafa dálæti á bókum og bað þá um að
tilnefna bestu og verstu bókakápurnar burtséð
frá efni og innihaldi. Og niðurstaðan liggur fyrir.
24 úttekt Helgin 18.-20. nóvember 2011