Fréttatíminn - 18.11.2011, Page 70
70 tíska Helgin 18.-20. nóvember 2011
Auglýsingaherferð
Marc Jacobs bönnuð
Í byrjun sumars kynnti
hönnuðurinn Marc Jacobs nýja
ilminn Oh Lola! og notaði hann
hina sautján ára leikkonu Dakota
Fanning í auglýsingaherferðina.
Fanning situr í bleiku umhverfi
með flosku ilmsins í ofurstærð
sér á milli fóta og virðist sem
þessi herferð brjóti á siðferðis-
reglum auglýsinga. Eftir tæpt ár
hefur loks verið ákveðið að banna
auglýsingarnar í Bretlandi og
segir í niðurstöðu nefndar sem
fjallaði um málið að leikkonan líti
út fyrir að vera undir sextán ára
aldri, klædd í alltof stuttan kjól og
að sitji í kynþokkafyllri stellingu
með umbúðir ilmsins sér á milli
læra, þetta sé ósiðlegt og því
ekki boðlegt. Jacobs er ekki par
sáttur við þessa ákvörðun og lét
þau orð falla að ekkert af þessum
fullyrðingum fái staðist. -kp
Gegnsæ
pils
vinsæl
G egnsæ pils virðast vera það heitasta í dag hjá helstu tískuhönnuðum
heims. Þetta „trend“ virðist
hafa náð ágætri fótfestu og hafa
margar stjörnur reynt að fylgja
því eftir. Hin gegnsæ pils ná flest
alveg niður í gólf og eru það helst
stuttbuxur sem hylja það helsta.
Hérna heima væri jafnvel of kalt
að klæðast pilsinu einu og sér og
gott væri að bæta sokkabuxum
við til að hafa undir, þrátt fyrir
að það skemmi þetta „heildar-
lúkk“ sem hönnuðurinn leggur
upp með.
Fjölskyldualbúm H&M
Jólin eru á næsta leyti og hefur tískurisinn H&M
hafið auglýsingaherferð fyrir Holyday-línunni
sem er árleg hátíðarlína frá fyrirtækinu. Í
fyrra prýddu frægar fyrirsætur þessa sömu
auglýsingaherferð ásamt fjölskyldumeðlimum
og er engin breyting á því þetta árið. Hin nítján
ára Georgia May Jagger, dóttir Rolling Stones-
söngvarans Mick Jagger, var fengin í herferðina
ásamt móður sinni Jerry Hall, en Georgia
hefur gert það gott í fyrirsætubransanum
síðustu mánuði. Breska fyrirsætan Karen
Elson tók einnig þátt í herferðinni ásamt
tvíburasystur sinni og fyrirsætan Kristen
McMenamy skemmti sér vel með sonum sínum
trend GeGnsæ pils
Ofurfyrirsætan
Rosie Hunting-
ton-Whiteley í
pilsi frá Gucci
Kóreska leikkonan Go
Jun-Hee í Gucci fötum
Leikkonan
Nikki Reed
Leikkonan Anne
Hathaway í kjól
frá Valentino
Leikkonan Ana
de la Reguera í
pilsi frá Gucci
Nýbýlavegur 12
& Grensásvegur 8
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
GANGTU Á
MUSTANG!
Herraskór í stórum stærðum
st. 42-48 Verð 15.455
st 41-46 Verð 17.995