Fréttatíminn - 02.12.2011, Síða 6
M argir líta eflaust hýru auga til fjög-urra lóða sem Reykhólahreppur áætlar að úthluta í náttúruperl-
unni Flatey á Breiðafirði. Þar eru fyrir vel
varðveitt hús sem sýna þorpsmynd 19. aldar,
hús sem mörg hver hafa gengið í gegnum
endurnýjun lífdaga og eru afar falleg. Lóð-
irnar fjórar eru við svokallaðan Tröllenda,
vinstra megin við veginn sem genginn er
frá höfninni í átt að þorpinu, meðal annars
gegnt sumarhúsi stjórnarráðsins sem byggt
var á áttunda áratug liðinnar aldar.
Deiliskipulag svæðisins hefur verið
samþykkt en þar er gert ráð fyrir að
lóðirnar verði um þúsund fermetrar að
stærð. Strangar kröfur eru gerðar um útlit
húsanna og taka ber mið af þeirri byggð
sem fyrir er. Sveinn Ragnarsson, formaður
skipulags-, bygginga-, húsnæðis- og hafnar-
nefndar Reykhólahrepps, reiknar með því
að meðal annars verði skilyrt standandi
timburklæðning eða bárujárnsklæðning í
einhverri mynd. Skipulagsefnd hefur lagt
til við hreppsnefnd að farin verði útboðs-
leið við úthlutun lóðanna í Flatey og sett lág-
marksverð á hverja lóð. „Þær verða örugg-
lega töluvert dýrar miðað við sambærilegar
byggingarlóðir annars staðar,“ segir Sveinn.
Árum saman hafa menn spurst fyrir um
byggingarlóðir í Flatey og áhuginn hefur
aukist nú eftir að úthlutun lóðanna fjögurra
spurðist út.
En ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé
komið. Eftir að skipulagið var auglýst bár-
ust sextán athugasemdir vegna lóðaúthlut-
unarinnar, frá einstaklingum sem eignir
eiga í Flatey, Vatnsveitu Flateyjar, Forn-
leifanefnd ríkisins, Breiðafjarðarnefnd og
Framfarafélagi Flateyjar. „Það er full sterkt
að orða það þannig að um andmæli gegn
framkvæmdunum sé að ræða en athuga-
semdirnar eru flestar nokkur samhljóða, til
dæmis áhyggjur af vatnsbólum og frárennsli
auk kröfu um sterka eftirfylgni með fram-
kvæmdum. Þessar athugasemdir er ekki
hægt að leggja til hliðar, þær verður að taka
til skoðunar og það er það sem við erum að
gera núna.
Húseigendur sem fyrir eru leggjast alls
ekki gegn því að þarna komi byggð en
neysluvatn er takmörkuð auðlind og gæti-
lega þarf að fara með frárennsli. Þeir vilja
því að skýr grein sé gerð fyrir því að vatn sé
takmarkað,“ segir Sveinn. Hann segir vatns-
veitu vera í Flatey en sveitarfélagið sé ekki
beinn aðili að henni. Þegar fólk er flest á
sumrin er vatn flutt með flóabátnum Baldri
út í Flatey.
„Aðalatriðið er,“ segir Sveinn, „að ígrund-
að sé áður en byrjað verður á framkvæmd-
um hvernig ljúka á málinu. Ég þori því
hvorki að svara því játandi né neitandi hvort
þessi hús muni rísa. Málið verður að skoða.
Komi fram við þá skoðun að vandamál, til
dæmis við frárennsli, verði ekki leyst nema
með mjög dýrum aðgerðum er ósennilegt
að í framkvæmdirnar verið ráðist.“
Sveinn segir að skipulagsyfirvöld í Reyk-
hólahreppi hafi verið bjartsýn á það, eftir
samþykkt deiliskipulags, að hægt yrði að
ganga frá útboðum lóðanna síðla vetrar eða
næsta vor, „en ég held,“ segir hann, „að það
muni dragast lengur en það.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Andakt á Gallery-Bar 46
Frá því Leikfélagið
Peðið var stofnað á kránni
Grand Rokk við Smiðjustíg
árið 2005 hefur félagið
sýnt fjölda verka, flest
eftir félagsmenn og auk
þess hafa félagar Peðsins
samið tónlist og söngva
þegar við á. Þannig er
það líka að þessu sinni
en jólasýning Peðsins í ár
er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn
Vilhjálms Hjálmarssonar. Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga
Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas
Tómasson. Andakt er eins konar hugleiðing um inntak jólanna en frá
óvæntum hliðum. Gamanleikurinn verður frumsýndur á Gallery-Bar
46, Hverfisgötu 46, næstkomandi sunnudag, 4. desember, klukkan 18.
Aðrar sýningar verða 11. og 18. desember og 8. janúar. - jh
Skuldatrygg-
ingarálag
hækkar
Skuldatryggingarálag á
ríkissjóð Íslands hefur
hækkað nokkuð síðustu
vikur og náði sínu hæsta
gildi á árinu síðast-
liðinn föstudag þegar
álagið stóð í 358 punktum,
eða sem svarar 3,58
prósentum. Á miðviku-
daginn hafði álagið hins
vegar lækkað aðeins, í
342 punkta, samkvæmt
gögnum Bloomberg. Til
samanburðar var álagið
280 punktar um miðjan
október. Álagið er nú á
svipuðum stað og það var
fyrir ári. Það sem veldur
þessari hækkun, segir
Greining Íslandsbanka, er
almenn hækkun á þessum
markaði vegna skulda-
kreppunnar í Evrópu en
ekki séríslenskir þættir.
Í upphafi þessa árs var
skuldatryggingarálag
á ríkissjóð 255 punktar
og hefur því hækkað um
nær 100 punkta síðan. Á
sama tíma hefur meðaltal
Vestur-Evrópuríkja
hækkað um tæplega 150
punkta, þegar Grikklandi
er ekki talið með. Það er
nú 330 punktar. - jh
Flatey á BreiðaFirði Deiliskipulag saMþykkt
Lóðirnar
verða
örugg-
lega
töluvert
dýrar.
Sextán athugasemdir
vegna fjögurra lóða
Íbúar í Flatey leggjast ekki gegn nýbyggingum en vilja skýrar reglur um vatnsból og frárennsli.
Framkvæmdir og tímasetningar ráðast eftir skoðun athugasemda, segir formaður skipulags- og
bygginga nefndar. Lagt er til að farin verði útboðsleið við úthlutun lóðanna.
Svæðið sem skipulagt hefur verið undir fjögur frístundahús í Flatey á Breiðafirði. Mynd Aðalskipulag Reykhólahrepps.
Náðu árangri með
Fréttatímanum
*Capacent nóvember 2011
**Capacent september 2011
Dreifing með Fréttatímanum er ávísun á
árangur - skilaboðin rata til sinna.
92,8% íbúa á höfuðborgarsvæðinu
segjast vita að Fréttatíminn berst á
heimilið *
65% blaðalesenda á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann í viku
hverri.**
6 fréttir Helgin 2.-4. desember 2011