Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.12.2011, Page 36

Fréttatíminn - 02.12.2011, Page 36
Á sama hátt og bestu íþróttamenn í heimi eru með þjálfara þykir orðið eðlilegt að stjórnendur séu í þjálfun V ið ákváðum allar að venda okkar kvæði í kross og þaðan kemur nafngiftin á fyrirtækinu. Okkur fannst „Vendum“ líka táknrænt þar sem talað er um að venda seglum og nýta vindinn eða meðbyr til að ná lengra. Það á einnig vel við starfsemina þar sem við sérhæfum okkur í þjálfun fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja ná auknum árangri og nýtum til þess þaulreyndar og árangursríkar aðferðir markþjálfunar,“ segir Alda Sigurðardótt- ir en hún starfaði sem aðstoðarmaður rektors við Háskólann í Reykjavík áður en hún fór í nám í stjórnendamark- þjálfun. „Ég var mjög ánægð í HR og fór í námið til að efla mig enn frekar í starfi. Í náminu upplifði ég hvað markþjálf- unin er áhrifarík og mig langaði að gefa fleira fólki tækifæri til að nýta sér þessa aðferð. Það eru forréttindi að fá að fylgjast með fólki koma hlutunum í verk út frá sínum eigin forsendum og gildum en þannig aukast líkurnar á góðum ár- angri. Vegna þess hversu áhrifarík þessi aðferðarfræði er hefur markþjálfun fest sig í sessi og þykir í dag sjálfsagður hluti í þjálfun leiðtoga- og stjórnendahæfni víða um heim.“ Að efla frumkvæði Vendum vinnur með leiðtogum, stjórn- endum og starfsmönnum að einstak- lingsmiðuðum verkefnum og einnig með stjórnendateymum og hópum sem vilja sameiginlega takast á við áskoranir og ná markmiðum sínum. „Við vinnum með fólki að því að móta markmið varðandi framtíðina og því sem það vill fá áorkað. Aðalatriðið er að vita hvert þú ert að fara og hafa löngun til að framkvæma það sem þarf til að ná þangað. Fólk sem hefur náð miklum árangri sækir ekki síður í markþjálfun en aðrir. Það sem er eftirsóknarvert krefst oftast fyrirhafnar. Fólk stendur því alltaf frammi fyrir ein- hverskonar hindrunum og stundum þarf að færa fjöll. Með því að fjarlægja hindranir og vinna með markmiðin á raunhæfan máta næst raunverulegur árangur.“ Ástæðuna fyrir því hve markþjálfun ber góðan árangur telja þær Alda, Unnur og Sigrún vera að þjálfunin er sérsniðin í hvert sinn og miðast við aðgerðir. „Þú lýkur hverjum tíma með verkefni,“ segir Unnur. „Þjálfunarferlið felur í sér framþróun. Þú ert alltaf að taka skref í áttina að markmiðinu þínu. Markþjálfinn er ekki að segja þér hvað þú átt að gera, heldur að hjálpa þér að efla styrkleika og nýta þá þekkingu og reynslu sem þú býrð yfir til að ná þeim markmiðum sem þú setur þér. Kostur- inn er að þú ert að nýta raunveruleg verkefni í að þjálfa þig og efla sem stjórn- anda eða sérfræðing. Eðli málsins sam- kvæmt er mikil áhersla lögð á trúnað í markþjálfun. Alda segir að eitt aðalverkfæri mark- þjálfans sé að spyrja kraftmikilla spurn- inga. „Það er ekki okkar að ákveða hvað er rétta leiðin fyrir þig, heldur að hjálpa þér að taka ákvörðun með því að spyrja krefjandi spurninga.“ Og Sigrún bætir við: „Markþjálfun veitir aðhald og hjálp- ar fólki að finna tilgang með því sem það er að fást við. Kveikir á hvatningunni, ef svo má að orði komast. Við vitum flest að það er gott fyrir okkur að borða hollt og fara í ræktina. En til þess að það gerist verður okkur að langa til að gera það. Finna löngun hjá sjálfum okkur því ekki nægir að láta einhvern annan segja þér hvað þú átt að gera. Oft kviknar þessi löngun í þjálfunarferlinu og sjálfs- traustið eykst. Margir stjórnendur nýta sér svo áfram aðferðir markþjálfunarinnar við stjórnun og velja að spyrja starfs- menn spurninga og hlusta í ríkara mæli, frekar en að gefa fyrirskipanir.“ Fjarlægja hindranir Að sögn Sigrúnar fá stjórnendur oft tak- markaða endurgjöf sjálfir. „Fókusinn er á að stýra fyrirtækinu og starfsfólkinu en það gleymist oft að líta á stjórnend- urna sjálfa og hvernig þeir geta þróast í að verða enn betri. Markþjálfinn veitir endurgjöf og skapar öruggt umhverfi fyrir stjórnandann til að viðra nýjar hug- myndir og hugsa upphátt. Með mark- þjálfuninni fær stjórnandinn aðstoð frá hlutlausum aðila. Á sama hátt og bestu íþróttamenn í heimi eru með þjálfara þykir orðið eðlilegt að stjórnendur séu með markþjálfa.“ Unnur tekur dæmi um golfara sem er með góða forgjöf en hefur samt tækifæri til að bæta árangur. „Þjálfari getur hjálp- að honum að bæta tæknina. Á sama hátt getum við aðstoðað stjórnendur við að efla færni sína og má því eiginlega segja að við lækkum forgjöfina í stjórnun. Að ná markmiðum og koma hlutum í verk snýst oftar en ekki bara um það eitt að fjarlægja hindranir. Hindranir skapast til dæmis vegna fordóma eða af áhyggj- um – og eiga til að vaxa okkur í augum áður en við leggjum af stað. Oft nægir að ræða málið við hlutlausan aðila til að átta sig á að maður ræður fullkomlega við viðfangsefnið.“ Stundum hafa stjórnendur svo margt á sinni könnu að það er erfitt að hafa yfirsýn. „Markþjálfinn auðveldar við- komandi þá að skerpa sýnina, finna leiðir til að forgangsraða og skapa meiri tíma til að sinna þeim verkefnum sem eru mikilvægust,“ segir Sigrún. Markþjálfun getur líka nýst nýjum stjórnendum sem hafa náð góðum árangri í sínu fyrra starfi en vilja stíga meira inn í leiðtogahlutverkið. „Leiðtog- inn þarf að leggja áherslu á að efla aðra og láta þá vaxa. Það er ekki öllum gefið nema þeir hljóti þjálfun og ekki hægt að ætlast til að það komi sjálkrafa,“ segir Unnur og Sigrún útskýrir frekar: „Þó að manneskja útskrifist með BSc. í við- skiptafræði og MSc í stjórnun þá höfum við ekki endilega tryggingu fyrir því að sá eða sú hin sama sé góður stjórnandi. Þó þú komir út með alla þekkinguna er ekki þar með sagt að þú hafir hæfnina – en markþjálfun getur hjálpað þér að nýta þekkinguna til að verða hæfari.“ Mikilvægt að líta í spegilinn Eigendur Vendum eru sammála því að áskoranir sem stjórnendur standa frammi fyrir séu fjölbreyttar og krefj- andi. „Okkar styrkur er að hafa staðið í þessum sporum sjálfar,“ en stjórnenda- þjálfarar Vendum eiga það sameiginlegt að hafa mikla reynslu af stjórnunarstörf- um úr ólíkum geirum atvinnulífsins. „Flestir stjórnendur vita hvað þeir þurfa að gera, vita í hverju þeir þurfa að bæta sig en vita kannski ekki alveg hvernig þeir ætla að fara að því. Við auðveldum þeim að finna leiðir og af því að áherslan er ávallt á aðgerðir fer viðkomandi út úr tímanum með verkfæri til að takast á við áskorunina,“ segir Alda. „Góðir stjórnendur eru sífellt að líta í spegil og skoða hvernig þeir geta orðið betri og þá um leið hvernig þeir geta laðað það besta fram í fólkinu sem vinnur með þeim. Það er svo auðvelt að gera það sama og í fyrra eða sama og allir hinir en góðir stjórnendur gera sér grein fyrir mikilvægi þess að spyrja sig stöðugt að því hvaða markmið fyrirtækið hefur tækifæri til að setja sér og finna leiðir til að ná þeim,“ segir Sigrún. Þó þær stöllur hafi stofnað fyrirtæki sitt í miðri kreppu hefur það farið vel af stað. „Sumum fannst við snarbrjál- aðar að leigja húsnæði og hoppa út í djúpu laugina á þessum tímapunkti,“ en Vendum er í stórglæsilegu húsnæði í Síðumúla 33. „Fagmennska, árangur og ástríða eru okkar gildi og við styðjumst við þau í rekstrinum,“ segir Alda. „Við leggjum mikla áherslu á fagmennsku og þegar unnið er að því að þjálfa fólk í að þora að horfast í augu við sjálft sig verðum við að sjálfsögðu að gera það sjálfar svo við erum líka í markþjálfun til að bæta okkar eigin árangur.“ Unnur bætir við: „Við förum varlega í fjármálum en þurfum á sama tíma að hafa kjark og áræði, festast ekki í smá- atriðum og láta verkin tala“. „Við viljum byggja upp til framtíðar“ segir Sigrún. „Áhuginn er mikill hjá ís- lenskum fyrirtækjum og stjórnendum og árangurinn er góður svo við höfum trú á því að markþjálfun eigi eftir að festa sig enn frekar í sessi hér á næstu árum.“  fyrirtækið Vendum þjálfar stjórnendur og leiðtoga til að ná hámarksárangri Lækka forgjöfina í stjórnun Vinkonurnar Alda Sigurðardóttir, Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Sigrún Þorleifsdóttir kynntust í námi í markþjálfun hjá Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík. Í kjölfarið stofnuðu þær fyrirtækið Vendum sem sérhæfir sig í stjórnenda- og leiðtogaþjálfun. Þær segja í viðtali við Þóru Karítas að einkenni góðra stjórnenda sé skýr framtíðarsýn, hugrekki til að horfast í augu við sjálfa sig sem og þekkja styrkleika sína og veikleika. Hvað er kraftmikil spurning? Í markþjálfun fyrir stjórnendur og sér- fræðinga eru notaðar kraftmiklar spurningar (e. powerful question), en hvað er kraftmikil spurning? Þegar þú hugsar til baka og einhver, (sama hver það var), spurði þig spurningar sem gerði það að verkum að þú ákvaðst að taka mikilvæga ákvörðun sem var þér eða fyrir- tækinu í hag. Þetta getur hafa verið spurning sem hafði þær afleiðingar að þú ákvaðst að sækja um stöðuhækkun, efla teymisvinnuna innan fyrirtækisins, efla stjórnendur og starfsmenn, auðvelda ákvarðanatöku eða annað þér sjálfum og/eða fyrirtækinu til góðs. Sú spurning sem kemur upp í hugann hjá þér, hún er svarið, það var kröftug spurning. Stjórnendaþjálf- arar og eigendur Vendum ehf: Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Alda Sigurðardóttir og Sigrún Þorleifs- dóttir. Ljósm: Hari 36 viðtal Helgin 2.-4. desember 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.