Fréttatíminn - 02.12.2011, Síða 46
Slæm vika
fyrir bankastjórann fyrrverandi Lárus Snorrason
Góð vika
fyrir knattspyrnumanninn Aron Einar Gunnarsson
Leiðin til Wembley
Miðjumaðurinn fílhrausti Aron Einar Gunn-
arsson var í lykilhlutverki hjá Cardiff sem
sló út úrvalsdeildarliðið Blackburn í átta
liða úrslitum enska deildarbikarsins
á þriðjudagskvöld. Aron Einar
lék allan leikinn og lagði upp
fyrra mark liðsins í 2-0
sigri. Cardiff mætir Crystal
Palace í undanúrslitum
en Palace leikur í
Champions-deildinni líkt
og Cardiff. Í undanúrslit-
unum spila liðin tvo leiki
og kemur í ljós eftir seinni
leikinn, sem er 23. janúar,
hvort Aron Einar fer á
Wembley.
Veit enginn af
nafnabreytingunni?
Lárus Snorrason átti ekki eina af sínum bestu vikum. Ekki
bara var bankastjórinn fyrrverandi úrskurð-
aður í viku gæsluvarðhald vegna rann-
sóknar embættis sérstaks saksóknara
á margvíslegum málefnum Glitnis, hvar
Lárus var við stjórnvölinn frá miðju ári
2007 til falls bankans haustið 2008,
heldur virðist enginn fjölmiðill taka
mark á því að Lárus er búinn
að breyta um nafn. Í
öllum fjölmiðlum var
(og er) talað um Lárus
Welding hitt og og
Lárus Welding þetta.
Sem er auðvitað ekki
rétt þar sem hann hefur
kastað Weldings-nafninu
og er nú kenndur við
föður sinn Snorra.
0,1
vikan í tölum
kögun, klögun og
dónaleg SmS
Gunnlaugur M.
Sigmundsson stendur
í meiðyrðamálaferlum
gegn bloggaranum Teiti Atlasyni
vegna skrifa þess síðarnefnda
um Kögunarmálið. Teitur
kom með krók á móti bragði
þegar hann kærði Gunnlaug
fyrir ruddalegar SMS-sendingar.
Gunnlaugur játaði sendingarnar
í aðsendri grein og iðrast en
stríðið heldur áfram.
Eiður Svanberg Guðnason
Nú væri Kögunareigandanum
líklega sæmst að falla frá öllum
málaferlum, hafa hægt um sig
í svolítinn tíma. Svo gæti hann
sagt okkur hreinskilnislega frá
því hvernig hann fór að því að að
eignast þetta fyrirtæki sem áður
var í almannaeigu. Var kannski
allt satt og rétt sem Agnes
Bragadóttir skrifaði í frægum
greinaflokki hér um árið?
Illugi Jökulsson
Getur enginn haft vit fyrir Gunn-
laugi M. Sigmundssyni? Ha?
Lára Hanna Einarsdóttir
Þetta er nú enn eitt galna málið
sem er í gangi á Íslandi. Teitur
Atlason birtir 13 ára gamla grein
úr Mogganum eftir Agnesi
Braga, skrifar nokkur orð um
augljósa hluti tengda greininni
og er lögsóttur fyrir að skaða
æru Gunnlaugs Sigmundssonar.
Teitur Atlason
Sá einhver mig í fréttunum
á Stöð2? Hvernig kom ég út?
Var þetta í lagi eða þarf ég að
láta renna í bað og opna á mér
æðarnar?
Jón Bjarnason er aðalmað-
urinn, eins og þið sjáið
Jón Bjarnason, landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðherra, átti
þessa viku skuldlaust og verður
með þessu áframhaldi maður
allra árstíða. Þótt Jóhanna
Sigurðardóttir telji tíma hans í
ríkisstjórninni liðinn telur hann
stöðu sína sterka og allt er
brjálað á Facebook.
Jónas Kristjánsson
Jón Bjarnason ráðherra er mesti
ódráttur stjórnmálanna. Fari
hann sem fyrst í stjórnarand-
stöðu. Verði henni að góðu.
Heimir Már Pétursson
Mér segir svo hugur að Jón
Bjarnason sé á leið í
Framsóknarflokkinn.
Auglýsing í blöðunum
og allt háttarlag manna
bendir til þess.
Bergsteinn Sigurðsson
Eina ástæðan fyrir því að Jón
Bjarnason heldur að hann sé
enn ráðherra er sú að Bjarni
Harðarson kann ekki að ýta á
refresh-takkann.
Njördur Sigurjonsson
Jón Bjarnason hefur mikinn
stuðning á Syðri Löngumýri -
hreinan meirihluta jafnvel?
Sigurður Bogi Sævarsson
Stuðningsmenn Jóns Bjarnason
birta stuðningsyfirlýsingu honum
til handa í blöðum í dag. Frekar
hallærislegt þegar systkini og
nánasta skyldulið ráðherrans er
haft með í þessu klappliði!
Stefán Pálsson
Fréttalestur fyrir byrjendur: Hver
sá sem segir stöðu sína vera
sterka í opinberri umræðu - er
nánast undantekningarlaust ekki
í sterkri stöðu.
Omar R. Valdimarsson
Sagt er að þjóðir eigi valdhafa
sína yfirleitt skilið. Ég er ekki
viss...
HeituStu kolin á
Framhaldsskólanemarnir
Joshua og Guðmundur
voru fljótir að bregða á
leik fyrir ljósmyndara
Fréttatímans á snævi-
þaktri Tjörninni í gær.
Þeir virtust kunna vel við
fannfergið sem veðurguð-
irnir buðu upp á.
Ljósmynd/Hari
prósent Íslendinga hafa stöðu
sakbornings í rannsóknum
embætti sérstaks saksóknara.
46 fréttir vikunnar Helgin 2.-4. desember 2011
147,8
milljónir er tap Sjálfstæðis-
flokksins á undanförnum
fjórum árum.
633
milljónir er hagnaður lög-
mannsstofunnar Logos á
árinu 2010.
36
tímar sem líða milli þess
að barni er nauðgað á
Fílabeinsströndinni sam-
kvæmt skýrslu Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
9
eru nafnlausu smáskila-
boðin sem athafnamaðurinn
Gunnlaugur M. Sigmundsson
sendi bloggaranum Teiti
Atlasyni en Gunnlaugur
hefur kært Teit fyrir
meiðyrði.
Glitnismenn í haldi
Sérstakur saksóknari fór á miðviku-
dag fram á gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir fjórum fyrrverandi starfs-
mönnum Glitnis vegna rannsóknar
á lánveitingum og hlutabréfa-
viðskiptum Glitnis í viðskiptum
tengdum FL Group og Stími. Þrjár
beiðnanna voru samþykktar og
voru þremenningarnir, þar á
meðal Lárus Welding, fyrrverandi
forstjóri, úrskurðaðir í vikulangt
gæsluvarðhald.
Minna fangelsi á Hólms-
heiði
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, for-
maður fjárlaganefndar, segir að
heimild um að byggja nýtt fangelsi
á Hólmsheiði verði ekki samþykkt
að óbreyttum forsendum. Að öllum
líkindum verði byggingin minni en
fyrirhugað var.
Tugmilljóna króna tjón í
bruna
Húsið Drífandi í Vestmannaeyjum
er mjög illa farið, ef ekki ónýtt,
eftir eldsvoða. Tjónið nemur tugum
milljóna króna. Auk Hótels Eyja var
Bókaverslun Eymundsson til húsa
í Drífanda.
Ríkislögreglustjóri afhendi
upplýsingar
Innanríkisráðuneytið hefur farið
fram á það við Ríkislögreglustjóra,
að embættið afhendi þær upp-
lýsingar sem Ríkisendurskoðun
hefur beðið um. Ráðuneytið tekur
ekki afstöðu til þess hvort ríkis-
endurskoðandi skuli víkja sæti.
Auglýsing til stuðnings
Jóni
Hundrað og fimmtíu manns, stuðn-
ingsfólk Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs, birtu heilsíðuaug-
lýsingu í dagblöðunum þar sem lýst
var yfir stuðningi við Jón Bjarnason
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra. Hann hafi ekkert það aðhafst
sem réttlætt gæti brottvikningu
úr starfi.
Skynsamlegt að draga úr
vægi verðtryggingar
Árni Páll Árnason efnahags- og við-
skiptaráðherra segir skynsamlegt
að draga úr vægi verðtryggingar.
Efnahags- og viðskiptanefnd boðar
frumvarp sem kveður á um slíkt.
Fallið frá álagningu
kolefnisgjalds
Fjármálaráðherra leggur til hliðar
áform um breikkun stofns kolefnis-
gjalds sem var í frumvarpi til laga
um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Um sjötíu missa vinnuna í
hópuppsögnum
Um sjötíu manns var sagt upp
störfum í tveimur hópuppsögnum í
nóvember. Um þrjátíu misstu vinn-
una í uppsögnum hjá iðnaðarfram-
leiðslufyrirtæki á landsbyggðinni.
Hagar keyptu í 365
Hagar keyptu um áramótin 2008-
2009 hlutafé í 365 miðlum fyrir 810
milljónir króna sem síðar var selt
til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
365 miðla.
Hagnaður Arion 13,6
milljarðar
Hagnaður Arion banka á fyrstu
níu mánuðum ársins nam 13,6
milljörðum króna samanborið við
8,9 milljarða króna á sama tímabili
í fyrra.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Aðventuferðir
til Berlínar á
frábæru verði!
Borgarferðir
9.–12. desember / 16.–19. desember
Fararstjóri: Eirik Sördal Verð á mann í tvíbýli
69.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting á 4* hóteli í 3 nætur ásamt morgunverði.
Íslensk fararstjórn.
EINSTAKTJÓLATILBOÐ!