Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.12.2011, Side 55

Fréttatíminn - 02.12.2011, Side 55
F yrir mörgum árum kom til mín gömul kona sem vildi bóka tíma árlega það sem eftir væri ævinnar. Ég taldi nú ekki þörf á því, augun hennar litu ljómandi út miðað við aldur og hún væri ekki með neina af stóru augn- sjúkdómunum sem þyrftu reglu- lega eftirfylgni. Hún hvessti á mig augunum og sagði hægt, svo jafn- vel tregur augnlæknirinn myndi skilja: „Ég missti allar tennurnar og er búin að fá nýjar. En þetta eru nú einu sinni augun, og þau get ég ekki skipt um.“ Þar með var málið útrætt. Svona röksemdafærsla fær mann til að sjá málin í nýju ljósi. Mikið er lagt upp úr tannheilbrigði og gildi þess að fara reglulega til tannlæknis. Á vef Tannlæknafélags Íslands er mælt með skoðun heil- brigðra tanna að minnsta kosti einu sinni á ári og tvisvar á ári ef um tannheilsuvanda er að ræða. Engar slíkar reglur hafa verið settar fram hér á landi um augun. Áherslumun- inn má líka sjá á vefnum, þar sem íslenskar greinar um augnheilsu, augnheilbrigði og augnheilsugæslu eru miklu færri en sambærilegar greinar um tennur, og raunar fjalla margar þeirra um það hversu oft á að fara með hunda í augnskoðun. Alþjóðlegar reglur mæla með eftir- farandi tíðni á augnskoðunum: Undir 40 ára aldri: Á 5-10 ára fresti 40-54 ára: 2-4 ára fresti 55-64 ára: 1-3 ára fresti 65 ára og eldri: 1-2 ára fresti Staðreyndin er sú að nú er hægt að gera svo miklu meira til að hindra sjónskerðingu og blindu en áður var. Þótt augnsjúkdóm- arnir séu margir má segja að stóru augnsjúkdómarnir sem allir ættu að þekkja séu þrír: Sá fyrsti er aldursbundin augnbotnahrörnun, sem margir þekkja sem kölkun í augnbotnum. Í þessum sjúkdómi skemmist hluti sjónhimnunnar þar sem skarpa sjónin er. Sjón- himnan er himnan sem þekur augað að innan, einskonar vegg- fóður úr taugavef. Annar er gláka, þar sem þrýstingur inni í auganu er oft of hár, skemmir sjóntaugina og þar með sjón. Sá þriðji er ský á augasteini, sem er eins og móða á milli glerja í augasteininum, glæru linsunni sem liggur framan til í auganu. Þessa sjúkdóma er hægt að greina snemma og oft hindra sjónskerðingu af völdum þeirra. Það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart hversu margir eiga ekki sinn augnlækni. Augnlæknar hér á landi eru nú rösklega þrjátíu talsins. Ef þú átt ekki eigin augnlækni pant- aðu tíma hjá einum þeirra og láttu fylgjast reglulega með dýrgrip- unum tveimur. Þetta eru nú einu sinni augun. Helgin 2.-4. desember 2011 Heilsa Stóru augnsjúkdóm- arnir þrír - þekkir þú þá? Jóhannes Kári Kristinsson augnlæknir Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzo sopran Orgelleikari: Lenka Mátéová Trompetleikarar: Ásgeir H. Steingrímsson & Eiríkur Örn Pálsson Slagverksleikari: Eggert Pálsson Stjórnandi: Friðrik S. kristinsson Miðaverð: 4.200 kr. Miðasala á www.kkor.is eða á www.karlakorreykjavikur.is í Hallgrímskirkju Laugardaginn 10. desember kl. 17 og 20 Sunnudaginn 11. desember kl. 17 og 20 Aðventutónleikar KARLAKÓR REYKJAVÍKUR Á aðventu 2011 Borgardekk Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á valdimar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgar-svæðinu og Akureyri og í lausa- dreifingu um allt land. Dreifing á bæklingum og fylgiblöðum með Fréttatímanum er hagkvæmur kostur.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.