Fréttatíminn - 02.12.2011, Page 86
Helgin 25.-27. nóvember 2011
É g er himneskt harður og fer í ræktina sex sinnum í viku,“ segir tónlistarmað-
urinn Herbert Guðmundsson,
fjallbrattur að vanda. Hann og
Svanur, sonur hans, verða með
lag í forkeppni Sjónvarpsins fyrir
Eurovision og Herbert ætlar
að mæta bjartsýnn í slaginn í
janúar.
„Ég hef aldrei tekið þátt í
svona áður og aldrei fundist
ég vera svona Eurovision-gæi.
Þannig að þetta er frekar óvænt,“
segir Herbert.
Herbert og Svanur gáfu á dög-
unum út plötuna Tree of Life og
hafa fylgt henni eftir af nokkrum
krafti. Herbert segir þá vera á
kafi í að undirbúa dansplötu og
þaðan kemur Eurovision-lagið
þeirra. „Mér fannst vera svo
mikil Eurovision-lykt af grunn-
inum af einu laganna þannig að
við fórum að vinna eitthvað í því.
Ég datt inná svona svakalega
góða melódíu og heyrði strax að
það var svona Eurovision-fílíngur
í þessu. Ég leitaði svo til Örlygs
Smára, sem er náttúrlega snill-
ingur og hann gerði rosalega
fína útgáfu sem við sendum inn.
Ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd
þessa lags.“
Herbert segist vera meira en
til í að leggja á sig langt ferða-
lag til Aserbaídsjan fari svo að
lagið hans beri sigur úr býtum
hér heima. „Já, já. Ég er til í allt
enda hef ég gaman að öllu sem
ég geri. Og það er svo gaman að
geta starfað við tónlist.“
Feðgarnir fóru nýlega til Kali-
forníu þar sem þeir spiluð tónlist
sína í þrjár vikur við góðar undir-
tektir að sögn Herberts sem var
leystur út með gjöf, forláta Sam-
sung-snjallsíma, þegar hann hélt
heim á leið. „Við bjuggum þarna
hjá manni sem heitir Darren
Goodman og þegar við vorum
að fara vildi hann endilega gefa
mér þennan síma. Hann hlýtur
að hafa verið svona ánægður
með mig eða eitthvað,“ segir
Herbert og hlær. -þþ
Aldrei fundist hann
vera Eurovison-gæi
herbert horfir harður til aserbaídsjan
Herbert syngur alltaf á ensku og
naut sín því í botn við hljóðnemann
í Kaliforníu. „Maður er alltaf með
ættjarðarvinina á bakinu tuðandi
yfir að maður syngi á ensku en
þarna kom það sér mjög vel.“
Fékkstu ekki
Fréttatímann
heim?
Fréttatímanum er dreift
á öll heimili á höfuðborgar-
svæðinu. Ef þú fékkst ekki
blaðið heim, láttu okkur
þá vita með tölvupósti á
dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á
frettatiminn.is
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
mánudaginn 5. desember, kl. 18
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes S. Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Jólauppboð
í Galleríi Fold
Uppboð nr. 70