Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 26.04.2013, Blaðsíða 24
Í Íslendingar ganga til alþingiskosninga á morgun, laugardag. Á kjörskrá eru 237.957 kjósendur og hefur þeim fjölgað um 10.114, eða 4,4 prósent, frá þingkosningunum árið 2009. Þeir sem kjósa í fyrsta skipti til alþing­ is eru 18.670, eða 7,8 prósent af kjósenda­ tölunni. Kjósendur með lögheimili erlendis eru 12.757. Margir Íslendingar hafa leitað út fyrir landsteinana í leit að betri lífskjörum undanfarin ár. Því hefur kjós­ endum ytra fjölgað um 2.833 frá síðustu alþingiskosning­ um, eða um 28,5 prósent. Alls eru 15 listar í framboði en 11 listar bjóða fram í öllum kjördæmum. Sumum þykir raunar nóg um þann fjölda en hann er merki um að lýðræðið virki, sýnilegt tákn þess að þeir sem telja sig hafa eitthvað fram að færa í þágu þjóðar hafa tækifæri til þess. Auk Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna, sem sumir kalla fjórflokkinn, bjóða sjö stjórn­ málasamtök fram lista í öllum kjördæmum, Björt framtíð, Dögun, Flokkur heimilanna, Hægri grænir, Lýðræðisvaktin, Píratar og Regnboginn. Þess utan eru í boði listar Alþýðufylkingarinnar og Húmanistaflokks­ ins í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og listi Sturlu Jónssonar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þá býður Landsbyggðarflokkurinn fram í Norðvesturkjördæmi. Frambjóðendur stjórnmálaflokka og stjórnmálasamtaka hafa undanfarnar vikur kynnt sig og stefnumál sín. Skoðanakann­ anir hafa sýnt að mikil hreyfing hefur verið á fylgi. Það þarf ekki að koma á óvart eftir þær efnahagslegu hamfarir sem urðu hér haustið 2008 sem leiddu til falls þáverandi ríkis­ stjórnar og þingkosninga í kjölfarið, vorið 2009. Ýmislegt sem fylgdi í kjölfar hrunsins er enn óleyst. Um þau mál hefur kosninga­ baráttan meðal annars snúist. Á kjördegi er valdið í höndum kjósenda. Sá réttur er ómetanlegur en ekki sjálfgefinn. Fjöldi þjóða býr ekki við þau lýðréttindi að geta valið sér valdhafa heldur býr við skoð­ anakúgun og margháttað ófrelsi, svo ekki sé talað um hreina valdníðslu. Í stjórnarskrá okkar eru hins vegar skýr ákvæði um að allir skuli vera jafnir fyrir lögunum og njóta mannréttinda. Það er lýðræðislegur réttur hvers manns að taka þátt í störfum stjórn­ málaflokka og annarra frjálsra félagasam­ taka. Í því lýðræði sem við búum við felst að ríkisvaldið á uppsprettu hjá þjóðinni og meðferð þess valds sætir eftirlits hennar. Kjósendur líta því annars vegar til liðins kjörtímabils þegar þeir gera upp sinn hug gagnvart einstökum flokkum eða stjórn­ málamönnum en horfa hins vegar til fram­ tíðar í ljósi stefnu og loforða þeirra sem bjóða fram þjónustu í þágu þjóðarinnar. Þeir sem kjöri ná bera pólitíska ábyrgð meðan þeir þjóna og ekki síst ef þeir leita endurkjörs. Þátttaka í alþingiskosningum hér á landi hefur almennt verið góð. Frá árinu 1983 hefur átta sinnum verið gengið til þing­ kosninga. Þátttaka í þessum kosningum hefur verið frá 83,6 til 90,1 prósent. Minnst var kosningaþátttakan á þessu tímabili árið 2007 en mest árið 1987. Þegar kosn­ ingaþátttaka minnkaði um rúmlega fjögur prósentustig milli áranna 2003 og 2007 óttuðust sumir að sama þróun ætti sér stað hér á landi og í mörgum öðrum vestræn­ um lýðræðisríkjum, að kosningaþátttaka minnkaði. Svo var ekki, að minnsta kosti ekki hvað þingkosningar varðar, því þátt­ takan var 85,1 prósent í síðustu alþingis­ kosningum. Ýmislegt bendir til þess að þátttaka verði góð núna. Mun fleiri hafa til dæmis kosið utan kjörfundar nú en var á sama tíma fyrir fjórum árum. Mikilvægt er að kjósendur noti lýðræðis­ lega rétt sinn, mæti á kjörstað og taki af­ stöðu. Sá réttur er dýrmætur. Kosningarnar snúast um framtíð okkar allra, hvernig þing­ ið verður skipað og ríkisstjórn í framhaldi þess. Áherslur þeirra sem bjóða sig fram eru mismunandi og stefnumál um margt ólík. Það er kjósandans að vega og meta. Alþingiskosningar Nýta ber lýðræðislegan rétt Valdið er hvers kjósanda Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Þungur kross að bera Sá sem er eitt sinn kallaður af guði býr við það að köllun guðs víkur ekki frá honum. Gunnar Þorsteinsson, löngum kenndur við Krossinn, hefur hug á að endurheimta trúfélagið sitt. Sumir á bomsum... Ég held mínu striki. Ég er fighter. Egill Ólafsson er alltaf í stuði og lætur ekki slá sig af laginu þótt eitthvað hafi verið um afbókanir á honum sem söngvara eftir að hann tók sæti á lista Lýðræðisvaktarinnar. Er Emotional Rescue rispuð? Ég spyr hann nokkurra spurninga yfir þetta tímabil og hann svarar eins og biluð plata. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Seflossi, er í eldlínunni eins og oft áður. Nú vegna þess að hann þykir frekur til fjörsins í nauðungaruppboðum. Svona lýsti Arnheiður Aldís Sigurðardóttir, sem er að missa húsið sitt, samskiptum sínum við sýslumann í DV. Stækur rommfnykur Það er dálítil kosningalykt af þessu. Snæbjörn Steingrímsson, fram­ kvæmda stjóri SMÁÍS, telur að opnun skráarskiptasíðunnar Thepiratebay undir .is léni sé einhvers konar kosningabrella af hálfu Pírata sem eru öðrum fremur upp­ teknir af frelsi á netinu. Síðan var áður með sænskt lén. Hver skilur ekki Gunnar? Þetta er einhver misskilningur hjá Ármanni blessuðum. Flokksbræðurnir Gunnar I. Birgisson Ármann Kr. Ólafsson, hafa oft eldað grátt silfur. Nú telur Ármann íþróttafélagið HK sæta pólitískum ofsóknum Gunnars. Stælum vísað frá Þetta segir okkur það að Visa, [...] get[i] ekki tekið sér neitt alræðisvald um það hverjir megi stunda viðskipti. Ólafur Vignir Sigurvinsson fagnaði úrs­ kurði Hæstaréttar um að stóru greiðslu­ kortafyrirtækin verði að opna greiðslugáttir Datacell til WikiLeaks að nýju.  Vikan sem Var Jafnaðarmenn stöndum saman! Baráttugleði um allt land Kosningamiðstöðvar Samfylkingarinnar eru opnar um allt land á kjördag, rjúkandi kosningakaffi og gómsætt meðlæti. Nánar á heimasíðu Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands, xs.is 414 2200 Akstur á kjördag Sextíu vændismál Um sextíu mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem snúast um kaup á vændi. Þrír vændis- kaupendur hafa verið ákærðir og búast má við fleiri ákærum. Sjö konur hafa verið yfirheyrðar og leikur grunur á mansali í einhverjum tilvikum. Seðlabankastjóri tapar Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur og sýknaði Seðlabanka Íslands af kröfum Más Guð- mundssonar seðlabankastjóra sem vildi ógilda ákvörðun um launalækkun hans. Kjararáð lækkaði laun Más í framhaldi af því að lög voru sett sem kváðu á um að laun stjórnenda hjá ríkinu væru ekki hærri en laun forsætisráðherra. Langtímafjárfesting á Fjöllum Kínverski auðjöfurinn Huang Nubo, sem vildi kaupa Grímsstaði á Fjöllum, sagði í fyrsta sinn að jarðarkaup á Íslandi væru langtímafjárfesting. Innan tíðar opnist siglingaleiðir um norðurslóðir þegar ísinn bráðnar og landareignir hækki í verði. Ný Vestmannaeyjaferja Innanríkisráðherra kynnti bæjaryfir- völdum í Vestmannaeyjum áætlun um hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyja- ferju. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir mögulegt að loka þurfi Landeyjahöfn þar til nýja ferjan verður tilbúin. Karl Vignir í dómsal Aðalmeðferð í máli Karls Vignis Þor- steinssonar vegna kynferðisbrota gegn fjórum einstaklingum fór fram í vikunni. Réttarhöldin voru lokuð. Karl Vignir hefur setið í varðhaldi frá janúarbyrjun en hann var kallaður til yfirheyrslu eftir að hann játaði í Kastljósi kynferðisbrot gegn börnum um áratuga skeið. Fella tré í Öskjuhlíð Um eitt hundrað grenitré í Öskjuhlíð verða felld á næstunni þar sem þau ógna flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli. Um er að ræða allt að 25 metra há tré og eru þau hin elstu í Öskjuhlíðarskóg- inum. Starfsmenn Flugmálastjórnar gróðursettu trén á fimmta áratug síðstu aldar. Þau hafa nú, sökum hæðar sinnar, skapað hættu fyrir flugvélar í aðflugi og flugtaki. Tveir milljarðar í arð HB Grandi, eitt stærsta útgerðarfélag landsins, samþykkti á aðalfundi sínum að greiða hluthöfum hátt í tvö milljarða í arð vegna síðasta árs. Heildarhagn- aður á árinu var 2,4 milljarðar og lagði stjórn in til að stærsti hlutinn yrði greiddur í arð. Stjórnarformaður HB Granda sagði á fundinum að veiðigjöld eigi eftir að íþyngja rekstrinum á komandi árum. Einangraðir Seyðfirðingar Um sjötíu Seyðfirðingar gengu yfir Fjarðarheiði til að mótmæla lélegum samgöngum. Eini vegurinn til og frá Seyðisfirði er yfir heiðina og í vetur hefur hún margoft verið ófær dögum saman. Fjöldi Seyðfirðinga sækir daglega vinnu eða nám yfir heiðina og með fjöldagöngunni vildu þeir þrýsta á um að hafist verði handa við gerð ganga undir Fjarðarheiði. Vart mælanlegur munur á D og B Vart er mælanlegur munur á fylgi Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknarflokksins í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið 17.-23. apríl. Sjálfstæðisflokkinn mælist með 24,8% og bætir við sig 0,4 prósentustigum frá síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokks- ins mælist 24,4% og minnkar um 3,7 prósentustig. Munurinn á milli flokkanna er innan skekkjumarka. Vetur og sumar frusu saman Vetur og sumar frusu saman nánast um allt land í fyrrinótt. Samkvæmt þjóð- trúnni veit það á gott sumar. Skátar fjölmenntu í skrúðgöngur Sumardagurinn fyrsti hefur verið há- tíðisdagur hjá íslenskum skátum um áratuga skeið og engin breyting var á því í gær. Skrúðgöngur skáta voru víða í til- efni dagsins – og létu skátarnir kuldann sem víða var ekkert á sig fá. Nauthólsvík laus við saurgerla Saurgerlamengun er ekki lengur yfir viðmiðunarmörkum í Nauthólsvík. Því er í góðu lagi að stinga sér til sunds þar á nýjan leik. FRéttiR vikunnaR Mikilvægt er að kjósendur noti lýðræðislega rétt sinn, mæti á kjörstað og taki afstöðu. 24 viðhorf Helgin 26.-28. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.