Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Side 26

Fréttatíminn - 26.04.2013, Side 26
810 fjarvistir voru skráðar á Árna Johnsen, þingmann Sjálf­ stæðisflokksins í Suðurkjör­ dæmi, á því kjörtíma bili sem nú er að ljúka. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðaustur­ kjördæmi, kemur næstur með 749 fjarvistir skráðar. + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + ++ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + ++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++ H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Dala-Brie er kominn i nýjar umbúðir og er enn jafngóður a agðið. L júfur og mildur hvítmygluostur sem hentar við ö tækifæri. Flour úr Dölunum Við treystum heilbrigðiskerfinu fyrir lífi barnanna okkar Læknana heim É g hef sagt frá því hér, í þessum pistli, að sonur minn, sem nú er fimm ára, höfuðkúpubrotnaði þegar hann var fimm mánaða. Brotið var alvarlegt og blæddi inn á heilann með þeim afleiðingum að hann lamaðist öðru megin í líkamanum og fékk flogaköst. Hann var í lífshættu í tvo langa sólarhringa áður en við hjónin gátum andað léttar. Ári síðar var hann útskrifaður frá lækninum og úr- skurðaður heilbrigður þrátt fyrir að eyða væri á heilanum á því svæði sem blæðingin var. Nú, bráðum fimm árum síðar, hefur komið í ljós að höfuðkúpan hefur aldrei gróið. Innst inni hef ég alltaf vitað að ekki væri alveg eðlilegt hvernig höfuðkúpan hefur afmyndast á því svæði sem brotið var. Læknir hans fann ekk- ert athugavert við svæðið þegar hann útskrifaði hann frá sér þeg- ar drengurinn var eins og hálfs árs. Ástæðan er sú, að tilfelli sem þessu eru svo ógurlega sjaldgæf, að ólíklegt er að þau hafi nokkru sinni sést á Íslandi. Mér fannst afmyndunin hins vegar aukast eftir því sem drengurinn óx og loks hafði ég mig í að fara með drenginn aftur til sérfræðingsins – sem þá sá að ekki var allt með felldu. Hann vísaði okkur til annars sérfræðings, sem þekkt betur til höfuðkúpubrota. Sá hafði margra ára reynslu af stórum spítala í Svíþjóð og sá því undir eins hvers eðlis var. Nokkrir samspilandi þættir höfðu gert það að verkum að gatið í höfðinu á drengnum stækkaði eftir því sem höfuð hans stækkaði og því var nokkuð stórt gat á höfuðkúpunni og á því svæði er heilinn óvarinn fyrir hnjaski. Ef þessi læknir hefði ekki snúið aftur heim eftir áralangt starf í Svíþjóð er ekki víst að gatið hefði uppgötvast. Og þó svo væri, er ekki víst að hægt hefði verið að framkvæma aðgerðina hér á landi. Læknirinn vildi bregðast við undir eins eins og í dag er drengurinn í stórri aðgerð þar sem tekið verður bein úr höfuðkúp- unni og grætt í gatið. Einnig verður heila- himnan löguð til, en hún er orðin ónýt á þessu svæði. Hugsanlega verður tekin beinhimna úr höfðinu, en ef það er ekki hægt fær hann gervi-beinhimnu í staðinn. Undir beinið verður sett plata úr sykri, sem eyðir sér á um það bil ári. Skrúfurnar sem notaðar verða til að festa beinið, eru einnig úr sykri. Læknirinn hefur framkvæmt fjölda slíkra aðgerða áður á börnum í Svíþjóð. Hann segir jafnframt aðgerðina ekki lífs- hættulega þótt hún sé nokkuð mikið inn- grip. Ég er samt hrædd. Ég þarf að leggja líf sonar míns í hendur íslensks heilbrigð- iskerfis. Ég get ekkert gert nema að bíða – og biðja – og þakkað fyrir að þessi tiltekni læknir ákvað að snúa aftur heim. Við þurfum fleiri lækna aftur heim. Ég get ekkert gert nema að bíða – og biðja – og þakkað fyrir að þessi til- tekni læknir ákvað að snúa aftur heim. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is sjónarhóll VikAn í tölum 24 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals um 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, sumardaginn fyrsta. Markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. 100 krónum minna fæst að meðaltali fyrir kílóið af slægðum þorski á mörkuðum en í fyrravetur. Síðustu vikur hafa gjarnan fengist 200­250 krónur fyrir kílóið að meðaltali, en í fyrravetur var það oft 100 krónum hærra. Línufiskur hefur þó skilað talsvert hærra verði, en meðaltölin bera með sér. 5 ár voru liðin í gær frá því að Reyk­ hólavefurinn, reykholar.is, var settur á laggirnar. „Það er einstaklega mikilvægt bæði fyrir íbúa hreppsins og þá brottfluttu, rétt eins og fyrir sveitarfélagið sjálft, að hafa svona virkan og lifandi vef,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps. 92 prósent hlutur í Skeljungi verður seldur. Hjónin Svanhildur Nanna Vigfús­ dóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, eigendur hlutarins, hafa ákveðið að selja allan hlut sinn í olíufélaginu. Viðræður við fram­ takssjóðinn SÍA II, sem er rekinn af sjóðsstýringarfyrirtækinu Stefni, eru langt komnar og búið er að semja um helstu atriði mögulegs samnings. 26,7 prósent mældist vera fylgi Sjálf­ stæðisfokksins í skoðanakönnun sem MMR birti í gær. Fylgi Framsóknar­ flokksins mældist 22,4 prósent, Samfylkingarinnar 13 prósent, VG 11,6 prósent, Bjartrar framtíðar 7,7 prósent og Pírata 7,5 prósent. Aðrir flokkar voru undir 5 prósent. Fylgi við ríkisstjórnina mældist 32,6 prósent. 26 viðhorf Helgin 26.­28. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.