Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Page 30

Fréttatíminn - 26.04.2013, Page 30
Kjósendur ganga að kjör- borðinu á laugardaginn. Samfylkingin hefur stýrt ríkisstjórn frá 2009 og leitt það vandasama verk- efni að koma þjóðarbúinu á réttan kjöl eftir banka- hrunið sem var afleiðing af stjórnarstefnu Sjálf- stæðisflokks og Fram- sóknarflokks. Þeir einka- væddu bankana í hendur flokksgæðinga án þess að byggja upp nægilegar almannavarnir gagnvart þeirri óhugnanlegu svika- myllu krosseignatengsla, innherjasvika og blekk- inga með hlutabréfaverð sem leiddi efnahagslegar hörmungar yfir þjóðina. Hér eru nokkrar góðar ástæður til að kjósa Samfylkinguna: Þjóðargjaldþroti afstýrt Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við þjóðarbúinu þegar fjárlagahall- inn var 216 milljarðar, verðbólga og stýrivextir voru 18%, atvinnuleysi 9%, skuldatryggingarálag 1500 stig, sam- dráttur landsframleiðslu var 6,5% – sá mesti í 64 ár – og orðspor þjóðarinnar og lánstraust á alþjóðavettvangi var í rúst. Ríkisstjórnin skilar allt öðru og betra búi fjórum árum síðar: verðbólga er innan við 4%, stýrivextir 6%, atvinnuleysi 5%, skuldatryggingaálag 130 stig, hag- vöxtur 1,6% og lánstraust og orðspor endurreist. Fjárlagahallinn stefnir í að verða innan við 4 millj- arðar á þessu ári. Kaup- máttur launa hefur aukist að undanförnu og mælist nú svipaður og fyrri hluta árs 2006. Velferð og menntun í forgangi Samfylkingin er velferð- arflokkur og við munum forgangsraða fjár- veitingum til að byggja upp á ný í heilbrigðis- málum, menntamálum og velferðaþjónustu, með áherslu á umbætur í al- mannatryggingakerfinu, sem munu skila bættum kjörum eldri borgara og öryrkja á nýju kjörtímabili. Samfylkingin er í forystu fyrir bygg- ingu nýs Landspítala til að bæta þjón- ustu við sjúklinga, bæta starfsaðstöðu og sameina á einum stað starfsemi sem nú fer fram í 17 byggingum í borgarland- inu. Það eitt mun spara tæpa 3 milljarða í rekstrarkostnað á einu ári. Við munum auka framlög til háskóla og framhaldsskóla og forgangsraða sérstaklega í þágu verk-, tækni- og list- náms; takast á við brotthvarf strax í grunnskóla með markvissum aðgerð- um og auka áherslu á nemendamiðað menntakerfi sem hefur það höfuðmark- mið að virkja það besta í hverjum nem- anda. Allir geta lært ef þeir fá til þess viðeigandi stuðning. Evrópusamvinna í þágu heimila og fyrirtækja Samfylkingin er Evrópuflokkurinn. Við viljum klára aðildarviðræður við ESB og styðjum aðild með fyrirvara um samþykkt þjóðarinnar í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Aðild skapar tækifæri til að taka upp nýjan gjaldmiðil sem myndi bæta til frambúðar kjör íslenskra heimila og fyrirtækja í krafti verulegrar lækkunar vaxtakostnaðar, afnáms verð- tryggingar og lægri verðbólgu. Græn atvinnustefna Samfylkingin er grænn flokkur sem kemur hlutum í verk. Við höfum á kjör- tímabilinu haft forystu um að samþykkja Rammaáætlun, sem er ein stærsta verndaráætlun sögunnar, við stýrðum stefnumótun um eflingu græna hag- kerfisins og höfum tryggt fjármagn til að hrinda þeirri stefnu í framkvæmd með 1 milljarðs króna fjárveitingu strax á þessu ári. Samfylkingin leggur áherslu á þjóðar- eign auðlinda og heildstæða auðlinda- stefnu, þar sem þjóðin fái sanngjarna hlutdeild í arði af nýtingu auðlindanna. Þess vegna höfum við haft forgöngu um að útgerðin greiðir nú í fyrsta sinn eðli- legt veiðigjald af fiskveiðiauðlindinni. Á þessu ári renna allt að 13 milljarða tekjur af veiðigjöldum í ríkissjóð, sem varið er til fjölbreyttrar atvinnuuppbygg- ingar um land allt. Við höfum tryggt ríflega 60% hærri fjárveitingar í samkeppnissjóðina: Rann- sóknasjóð og Tækniþróunarsjóð sem mun nýtast til nýsköpunar í öllum helstu atvinnugreinum. Jafnrétti í reynd Samfylkingin er jafnréttisflokkur, fyrsti flokkurinn sem valdi konu til að leiða ríkisstjórn, fyrsti flokkurinn sem valdi jafnmargar konur og karla í ráðherra- embætti. Við höfum nú skorað launamun kynjanna á hólm með jafnlaunaátaki sem beinist að því að hækka laun stétta, ekki síst í heilbrigðis- og menntageir- anum. Af þessum ástæðum og mörgum fleiri er Samfylkingin skýrasti kosturinn fyrir þá sem vilja ábyrga efnahagsstjórn, aukið vægi heilbrigðis- og menntamála í traustu velferðarkerfi, fjölbreytt atvinnu- líf og stöðugan gjaldmiðil. Kjósum rétt- látt og gott samfélag. X-S! Fáðu góð ráð við oFnæmi neutral.is Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum fráDönsku astma- og ofnæmissamtökin ÍS LE N SK A S IA .I S N AT 6 27 19 0 1. 20 13 Velferð og menntun í forgang Kjósum réttlátt samfélag Skúli Helgason Þingmaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar í 3. sæti Reykjavíkurkjördæmis norður Samfylkingin er Evrópuflokkurinn 30 viðhorf Helgin 26.-28. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.