Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 26.04.2013, Qupperneq 34
Ég er búin að búa í kössum í tíu ár og hef flækst um á leigu- markaðn- um sem er alveg svakaleg- ur. Fárán- legur. Þórður Björn Sigurðsson Saman getum við tryggt þjóðinni nýja stjórnarskrá og lýðræðisumbætur S jöfn Rafnsdóttir bjó í Svíþjóð um langt árabil þar sem hún starfaði sem hárgreiðslukona. Þegar kreppa skall á Svíaríki missti hún allt sitt og var nánast á götunni árið 1993. Hún mátti ekkert eiga í fimmtán ár en kann ekki að gefast upp og hefur nú komið sér fyrir á litlum skika í grennd við Hellu. Hún hefur beðið eftir byggingarleyfi í á þriðja ár og hefst á meðan við í tveimur tólf feta gámum. Árið 2004 lést dóttir Sjafnar, Eva Björk Eiríksdóttir, eftir tveggja áratuga erfið veikindi. Sjöfn fylgdi dóttur sinni hvert fótmál í baráttunni og gaf henni nýra sem virkaði þó ekki sem skyldi. Hún hefur fengið sinn skammt af mótlæti en segist aldrei gefast upp. Henni ofbýður svo ástandið í samfélaginu að hún ákvað að taka sæti á lista Lýðræðisvaktarinnar í Suðurkjördæmi til þess að reyna að láta gott af sér leiða. Röddina segir hún þannig að hún geti ekki rifið mikinn kjaft en hún láti þeim mun meira til sín taka á lyklaborð- inu sem hún hamrar á í gámnum sínum umkringd þremur stórum hundum. „Ég gat ekki setið þegjandi og horft upp á hvernig menn leika sér að örlögum annarra og fá bara að halda því óhindrað áfram. Þetta ranglæti er eitt af því sem fékk mig til þess að kasta mér á lyklaborð- ið,“ segir Sjöfn ákveðin. „Ég á eftir að fara í að aðgerð á raddböndum og get ekki mikið verið með í því að hrópa á torgum en reyni að aðstoða eins og ég get. Ég valdi Lýðræðisvaktina vegna þess að þar er fólk sem stendur fyrst og fremst Með eitt nýra og stálhnefann á lofti Hárgreiðslumeistarinn Sjöfn Rafnsdóttir hefur marga fjöruna sopið á lífsleiðinni. Hún varð gjald- þrota í Svíþjóð í kreppunni þar og sér engan mun á ástandinu þar þá og því sem fólk er að upplifa á Íslandi núna. Hún missti dóttur sína eftir áralöng og erfið veikindi og telur heilbrigðiskerfið hafa brugðist sér. Hún er nú hætt að klippa mennska hausa og snyrtir hesta með tilþrifum á Hellu. Þar býr hún í tveimur gámum þar sem hún fær ekki byggingarleyfi. Hún er með eitt nýra og stálhnefa sem hún steytir á móti ranglæti heimsins. upp gegn óréttlætinu og ég fékk alveg nóg þegar þjóðinni var sýnd vanvirð- ing með meðhöndlun nýju stjórnar- skrárinnar á Alþingi. Það var dropinn sem fyllti mælinn.“ Missti aleiguna 1993 Sjöfn fluttist til Svíþjóðar 1989 og bjó í Stokkhólmi í hartnær átján ár. „Ég fór illa út úr kreppunni í Svíþjóð á sínum tíma þegar ég missti heimilið mitt og þetta er ég að endurupplifa núna hérna heima. Ég keypti 1989 og var búin að missa allt 1993. Það sem er í gangi á Íslandi núna er bara endur- tekning á öllu því sem gekk þá yfir Svía.“ Sjöfn starfaði náið með neytenda- samtökum í Svíþjóð og með hópum sem börðust gegn eignaupptöku þá. „Með neytendasamtökunum kom ég að gerð skuldaeyðingarlaga sem voru sett í Svíþjóð í apríl 1994 og tók virkan þátt í baráttunni gegn því hvernig farið var með fólk á þessum tíma. Þannig að ég veit hvað fólk er að fara í gegnum hér núna og þetta er bara nákvæmlega eins.“ Sjöfn segir markvisst níðst á „heiðarlegu fólki sem fremur þann glæp að kaupa sér húsnæði fyrir sig og börnin sín. Ég var þarna ein með tvö börn og veit hvað það er að lenda í klónum á hrægömmum. Í mínu tilfelli var þetta fimmtán ára straff þar sem ég mátti ekkert eignast. Ég gat heldur ekki sótt um skuldaeyðingu af þeirri einföldu ástæðu að ég var með veikt barn sem var orðið átján ára og það var ekki tekið með í reikninginn. Það hryggir mig alveg ótrúlega hvernig farið er með fólk hérna og ef ég get hjálpað einhverjum með mínu framlagi þá er ég til í slaginn.“ Býr í tveimur gámum Sjöfn hefur komið sér fyrir á litlum skika við Hellu þar sem hún hefur í á þriðja ár stefnt að því að koma sér upp heimili. Það hefur ekki gengið sem skyldi og hún hefst því við í tveimur tólf feta gámum þar til rofar til í kerfinu. „Ég kýs að vera svona og ég kýs að búa svona og er bara enn í sveitinni að sleikja sárin. Maður hefur samt lært maður getur verið sáttur ef maður veit að maður hefur gert eins vel og maður gat og aðstæður buðu upp á,“ segir Sjöfn sem sækir vatnið í brunn en er með það sem mestu máli skiptir í gám- inum. „Ég er með rafmagn og internetteng- ingu og það er æðislegt. Þetta gefur mér bara tækifæri til að njóta hlutanna á annan hátt en áður og horfa öðruvísi á það sem maður leit áður á sem sjálfsagðan hlut.“ Biðin eftir byggingarleyfi hefur þó reynst öllu lengri en Sjöfn reiknaði með í upphafi. „Stjórnsýslan í þessu landi er í þvílíku ólagi að ég er búin að bíða í tvö ár eftir byggingar- leyfi og vona að þetta fari að ganga. En upp- gjöf er ekki til í mínum orðaforða þannig að ég flutti hingað á byggingarsvæðið í þessa tvo gáma og þetta er þriðji veturinn minn í þeim. Þetta er búið að vera ansi skemmtilegt, lærdómsríkt og rosalegt. Það var til dæmis ansi magnað hérna um árið þegar það voru 50 metrar á sekúndu. Þá var ég búin að skorða mig hérna með hundunum mínum, alveg ákveðin í því að nú færi gámurinn. Það gekk svo mikið á að ég fann tveggja metra skjólvegg, sem ég var með hérna, í tætlum tugi metra úti á túni. Þetta var svakalalegt.“ Risarotþró í loftköstum „Ég má bara ekkert gera hérna fyrr en leyfið kemur þótt ég sé löngu komin með lögbýlis- rétt. En svona eru skipulagsmálin og það er alltaf eitthvert nýtt fólk að taka við. Ég keypti mér stærstu rotþró sem um getur en mátti Framhald á næstu opnu 34 viðtal Helgin 26.-28. apríl 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.