Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Síða 36

Fréttatíminn - 26.04.2013, Síða 36
Saman getum við tryggt arð af auðlindum og haldið þeim í þjóðareigu Saman getum við farið í öflugar aðgerðir í þágu heimilanna Andrea Ólafsdóttir 1. sæti Suðurkjördæmi Ólöf Guðný Valdimarsdóttir 1. sæti Reykjavík norður Gísli Tryggvason 1. sæti Norðausturkjördæmi G. Dadda Ásmundardóttir 1. sæti Norðvesturkjördæmi Þórður Björn Sigurðsson 1. sæti Reykjavík suður Margrét Tryggvadóttir 1. sæti Suðvesturkjördæmi ekki einu sinni grafa hana. Hún fór alltaf af stað í veðrinu og eftir að ég var búin að eltast við hana og hlaupa á eftir henni í heilt ár fékk ég leyfi til að grafa hana niður. Hún var þá búin að brjóta niður girðingar hérna og hvaðeina.“ Þessar hrakningar allar draga þó hvergi úr Sjöfn sem heldur áfram óbuguð. „Ég lít bara á þetta sem tækifæri og ég er ekkert búin að gefast upp á því að koma mér upp þaki yfir hausinn á mér. Ég tel mig bara heppna að hafa tekist, eftir fimmtán ára straff og að mega ekki eiga neitt, að kaupa mér landskika. Ég á líka mjög góða að og er að koma mér hér fyrir en það er auðvitað skelfilegt að bjóða fólki upp á guð, gaddinn og götuna þegar búið er að hirða af því heimilin.“ Sjöfn átti tvö börn Evu Björk og Svein Rafn Eiríksson. Sveinn Rafn er fæddur 1979 en Eva Björk var tveimur árum eldri en hún lést fyrir níu árum. Veikindi Evu Bjarkar voru erfið og Sjöfn var á stöðugu flakki á milli Svíþjóðar og Íslands. „Ég skráði lögheimilið mitt hérna 2005, fór til Svíþjóðar og keypti mér 14 tonna trukk og setti allt dótið okkar í hann og sigldi með hann hingað heim með Norrænu. Ég kom með trukkinn hingað í júní 2006 og dótið mitt hefur verið í honum síðan þá. Ég er búin að búa í kössum í tíu ár og hef flækst um á leigumarkaðnum sem er alveg svaka- legur. Fáránlegur. Með allt stóðið mitt, fram og til baka og þar á meðal þrjá stóra hunda.“ Sorgleg sjúkrasaga Eva Björk var sex ára þegar hún veiktist af sykursýki og við tók rúmlega tuttugu ára barátta við erfið veikindin. „Þegar maður er búinn að vera inn og út af sjúkrahúsum í Sví- þjóð og á Íslandi í tvo áratugi, búa þar bara mánuðum ef ekki árum saman þá veit maður hvernig á ekki að gera hlutina.“ Eva Björk bjó ein á Íslandi síðustu ár sín og var þá orðin blind. „Hún kom nú einhvern tíma fram í sjónvarpinu, þessi elska , og sagði frá veikindum. Tók meira að segja úr sér gerviaugað í beinni útsendingu. Kjör öryrkja eru ömurleg og það er skelfi- legt hvernig farið er með þá. Ranglætið er hróplegt en maður heldur að þetta sé allt í lagi, sem það er ekki, fyrr en maður lendir sjálfur í þessu.“ Sjöfn vandar heldur ekki heilbrigðis- kerfinu kveðjurnar þótt hún segist hafa fulla samúð með heilbrigðisstarfsfólki sem sé hart keyrt við erfiðar aðstæður. „Ég gaf henni nýra og þeir klúðruðu því. Íslendingar voru náttúrlega að spara og það vantaði eina rannsókn í viðbót.“ Ógæfan dundi síðar á Evu Björk á meðan verkfall hamlaði heimahjúkrun. „Þá rak hún tána í rúmið sitt og ég fékk svo hringingu frá sjúkrahúsinu hér heima og þá var búið að taka af henni þrjár tær. Í framhaldinu þurfti af taka af henni fót fyrir neðan hné.“ Sjöfn fór vitaskuld rakleitt heim til Íslands þegar hún fékk hringinguna en Eva Björk átti ekki afturkvæmt af spítalanum. „Það var svo mikil mannekla að einhverju sinni var hlaupið frá henni og hún skilin eftir ein. Þá datt hún og á stubbinn og fékk sjúkrahúss- bakteríu í hann og svo rak bara hvert ólánið annað þar til yfir lauk. Maður dauðvorkennir samt þessum færu læknum sem við eigum vegna þess að þeir hafa engan tíma.“ Dekrar við hrossin Sjöfn er hætt að eiga við hárið á höfði fólks og unir sér nú vel við snyrtingar á hestum. „Ég er búin að skipta um kúnnahóp og þetta er mjög skemmtilegt á annan hátt. Merarnar rífast um mig þegar ég kem í stóðið. Þær slást meira að segja. Þetta er allt í lagi á meðan þetta eru lítil folöld en þá bakka þau bara til mín þegar ég kem með bursta og þau vilja snyrtingu.“ Leikar æsast hins vegar þegar hrossin vaxa úr grasi og þá er ekkert gefið eftir. „Ég á þá fullt í fangi enda bara með tvær hendur.“ Og stundum er hestahárgreiðslan hættulegt starf. „Ein var eitthvað hálf fúl út í mig einu sinni þegar ég var búin að vera lengi að klippa hana. Hún rykkti í mig, rauk af stað og ég flækti höndina í þessu öllu saman þannig að það þurfti að skipta um liði í henni fyrir bragðið. En ég fékk bara stál- hnefa í staðinn,“ segir Sjöfn sem er einkar lagið að horfa á björtu hliðarnar. Sjöfn segir hesta ekki svo hégómlega að hársnyrtingarnar séu fegrunaraðgerðir. „Þetta er bara spurning um að láta hest- unum líða vel. Sérstaklega á þessum tíma þegar þeir eru að missa vetrarhárin. Þá klæj- ar og ég er með sérstaka bursta, greiði þeim og nudda. Merarnar fá svo alltaf sérstaka meðferð. Þær vilja svona smá nudd og eru ósköp þakklátar fyrir þetta,“ segir Sjöfn sem efast ekki um að dekur hennar hafi góð áhrif á andlega heilsu dýranna. „Ég stend í þessu bara úti á túni og það eru alger forréttindi að fá að vera innan um þessi dýr.“ Með járnhnefann á lofti Þótt samvistir Sjafnar við skepnurnar úti í náttúrunni hafi róandi áhrif á hana gefur hún ekkert eftir í baráttunni fyrir betri heimi og hikar ekki við að byrsta sig ef svo ber undir og steyta járnhnefann. „Ég neita að gefast upp. Og þegar heilbrigðismál, hús- næðismál og málefni öryrkja eru annars vegar þá er ég öllum hnútum kunnug og ef ég get sagt eitthvað eða gert eitthvað til að koma fólki til hjálpar þá er ég tilbúin. Þess vegna lét ég tilleiðast og tók 4. sæti á lista Lýðræðisvaktarinnar í Suðurkjördæmi og finnst ég hafa valið rétt. Alveg hiklaust,“ segir hestasnyrtirinn með járnhnefann. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Sjöfn Rafnsdóttir lætur til sín taka í gámunum á Hellu. Ljósmynd/Hari 36 viðtal Helgin 26.-28. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.