Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Page 47

Fréttatíminn - 26.04.2013, Page 47
Kjósum íslenskan landbúnað! Íslenskir bændur framleiða fjölbreyttar búvörur sem eru þekktar fyrir gæði og ferskleika. Metnaður bænda stendur til þess að sjá þjóðinni fyrir sem mestu af þeim matvælum sem hún þarfnast og hægt er að framleiða innanlands. Landbúnaðurinn er hornsteinn byggðanna og hefur víðtæk margfeldisáhrif á atvinnusköpun um allt land. Á næstu árum er mikilvægt að búa svo í haginn að íslenskur landbúnaður vaxi og dafni. Mál sem brenna á bændum Kíktu á bondi.is og kynntu þér málin frekar Bætum kjörin Bændur hafa glímt við afleiðingar efnahagshrunsins eins og aðrir landsmenn. Seinagangur við úrlausn skuldamála hefur letjandi áhrif á framþróun atvinnugreinarinnar. Flest aðföng sem notuð eru í landbúnaði hafa hækkað mikið í verði undanfarin ár. Búrekstur á víða undir högg að sækja þrátt fyrir mikla hagræðingu síðustu ár. Eflum nýsköpun og þróun Þekking, reynsla, sérhæfing og fagmennska er búmannsháttur 21. aldar. Nýjar búgreinar og fjölbreyttar áskoranir krefjast aukinnar þekkingar, rannsókna og þróunar. Betur borgið utan ESB Bændasamtökin hafa ítrekað andstöðu sína við inngöngu Íslands í Evrópusambandið og telja að hagsmunum landsins sé betur borgið utan ESB. Tollverndin stendur vörð um innlenda matvælaframleiðslu Stuðningur við íslenskan landbúnað byggir annars vegar á greiðslum úr ríkissjóði og hins vegar tollvernd. Tollar eru liður í opinberri stefnu stjórnvalda gagnvart innlendum landbúnaði og eru mikilvægir til að jafna samkeppnisstöðu íslenskrar búvöruframleiðslu gagnvart erlendri framleiðslu. Treystum grunnþjónustu í dreifbýli Bændasamtökin hafa ítrekað vakið máls á því að bæta þurfi úr þeim ójöfnuði sem íbúar dreifbýlis búa við. Viðhaldi og þjónustu vega í dreifbýli er ábótavant, fjarskipti eru víða ekki í lagi og dreifikerfi raforku þarf að bæta. Höfnum innflutningi á hráu, ófrosnu kjöti Vísindamenn hafa bent á að staða sjúkdóma í íslenskum búfjárstofnum sé í mörgu tilliti einstök og verðmæti sem beri að verja með öllum tiltækum ráðum. Ýmis sýkingarhætta er fyrir hendi ef flutt er inn hrátt, ófrosið kjöt og getur hún ógnað heilbrigði dýra og manna. Nýtum auðlindir og tryggjum fæðuöryggi Það er hverri þjóð nauðsyn að reka öflugan landbúnað. Nýjar áskoranir blasa við matvælaframleiðendum um allan heim sem þurfa að bregðast við aukinni eftirspurn eftir mat. Íslenskir bændur vilja nýta auðlindir landsins með sjálfbærni að leiðarljósi. 4.200 lögbýli eru í ábúð 4.800 manns starfa í landbúnaði 11.000 störf tengjast landbúnaði Heildarverðmæti búvöruframleiðslunnar árið 2010 var 33,9 milljarðar króna. 2,12% af útgjöldum ríkisins renna til landbúnaðarins. Heildarútgjöld hins opinbera til landbúnaðar voru 16 milljarðar króna árið 2011. Árið 2011 voru tekjur af útflutningi búvara og sölu á gistingu og þjónustu við erlenda ferðamenn í sveitum 8,3 milljarðar króna. Töluvert er flutt inn af búvörum til Íslands. Árið 2012 voru flutt inn til landsins Frá árinu 2008 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 45,5%. Íslenskar búvörur hafa almennt hækkað minna en aðrar neysluvörur. Íslendingar verja 13% heildarútgjalda sinna til kaupa á matvörum en meðaltal ESB-ríkja er tæp 14%. Við verjum lægri hluta útgjalda okkar til matvælakaupa en Finnar, Svíar og Norðmenn. Útgjöld neytenda til kaupa á íslenskum búvörum, án grænmetis, eru um 5,4% heildarútgjalda. Allt grænmeti, bæði innflutt og innlent, er 0,8% af heildarútgjöldum. Heimild: Eurostat, 2013. Fjöldi lögbýla og bænda Verðmæti landbúnaðarframleiðslu Ríkisútgjöld til landbúnaðar Verðmæti útfluttra búvara Innflutningur á búvörum Innlend matvælaframleiðsla heldur aftur af verðbólgu Útgjöld Íslendinga til matvælakaupa 1.111 tonn af erlendu kjöti 163 tonn af ostum 10 tonn af mjólkurdufti 64 tonn af jógúrt

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.