Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.04.2013, Page 78

Fréttatíminn - 26.04.2013, Page 78
 Þórarinn Leifsson KLárar barnaLeiKrit Drengur missir ríkisfang Það hefur enginn þorað að taka af skarið ennþá. Þórarinn Leifsson hefur getið sér gott orð fyrir hressilegar barnabækur sínar um Bókasafn ömmu Huldar og Leyndarmálið hans pabba. Hann er að leggja lokahönd á leikritið Útlenski drengurinn sem fjallar á gamansaman hátt um ósköp venjulegan íslenskan dreng sem lendir í því að yfir- völd telja hann vera útlending. Drengurinn missir ríkisfangið og bíður örlaga sinna á skólabókasafninu. Leikritið verður leiklesið í Tjarnarbíói á sunnudagsköld klukkan 18 í tengslum við barnamenningarhátíð en Þórarinn vonast til þess að það komist á svið fyrr en síðar. „Þetta sprettur af áhuga mínum á þessari grunnhugmynd um ríkisfangið. Hvað það sé fyndið að þú hafir sérstakan rétt þegar þú fæðist á einhverjum tilteknum stað. Það er eiginlega absúrd. Að sá sem fæddist í Reykjavík hafi eitthvað meiri rétt á að búa í Reykjavík en til dæmis einhver sem fæddist í Jóhannesarborg,“ segir höfundurinn. „Ég er að leika mér með þessa hugmynd.“ Dóri DNA, Þorsteinn Bachmann, María Heba Þorkelsdóttir, Arndís Hrönn Egils- dóttir, Stefán Jónsson og Magnea Björk Valdimarsdóttir leiklesa verkið undir stjórn Vigdísar Jakobsdóttur og Þórarinn útilokar ekki að þessi hópur taki sig saman um að sviðsetja verkið. „Þetta er á lokastigi. Okkur vantar bara einhvern sem þorir að setja þetta upp sem alvöru leikrit,“ segir Þórarinn sem er ófeiminn við að fara óhefðbundnar leiðir og hneyksla dálítið í leiðinni. „Ég geri svolítið grín að helgislepjunni sem er yfir íslenskum gildum og það hefur enginn þorað að taka af skarið ennþá.“ Þórarinn segir leikarana hins vegar hæst ánægða með verkið og telur líklegt að hópurinn gangi sjálfur í málið og komi Útlenska drengnum á svið. -þþ Þórarinn Leifsson leikur sér með hugmyndina um ríkisfang og þau forréttindi sem slíku fylgja stundum í Útlenska drengnum. Ljósmynd/Hari  Guðrún schevinG thorsteinsson barnaLæKnir í opnar búð Rekur verslun af hugsjón og ást Guðrún Scheving Thorsteinsson barnalæknir heillaðist mjög af sænsku Indiska-búðunum þegar hún bjó í Stokkhólmi. Litríkar vörur Indiska er það sem hún saknaði helst frá Svíaríki þegar heim var komið og hún fékk því þrjár vinkonur sínar til liðs við sig og þær opna Indiska- verslun á Íslandi í byrjun maí. G uðrún Scheving Thorsteinsson barna-læknir var tíður gestur í verslunum Indiska í Stokkhólmi þau átta ár sem hún bjó í Svíþjóð. Verslanakeðjan ætti að vera mörgum Íslendingnum kunn en Indiska rekur fjölda verslana í Svíþjóð og teygir sig víðar, meðal annars til Noregs og Finnlands. „Fólk á alveg sínar uppáhalds Indiska-búðir en þær eru allar litríkar, fallegar og skemmtilegar,“ segir Guðrún sem opnar Indiska-búð í Kringl- unni þann 8. maí ásamt vinkonum sínum þeim Sigríði Rögnu Jónsdóttur, Dagbjörtu Guð- mundsdóttur og Sigrúnu Andersen. Indiska selur sænska hönnun, fatnað, hús- búnað, skartgripi og húsgögn sem sækja fyrir- myndir í indversk handverk og hluti hagnaðar- ins rennur til góðgerðamála. Sigríður Ragna bjó um skeið á Indlandi þar sem hún kynntist handverki þarlendra og heillaðist af Indiska í heimsóknum sínum til Guðrúnar í Stokkhólmi. Þær stöllur fengu síðan Sigrúnu og Dag- björtu til liðs við sig. Þær búa báðar yfir mikilli reynslu af verslunarrekstri en Dagbjört hefur meðal annars komið að rekstri verslana Top shop, Dorthy Perkins, Oasis. Með hjálp Sig- rúnar og Dagbjartar náði hópurinn samningi við Indiska í Svíþjóð og draumur Guðrúnar um Indiska-búð á Íslandi er því við það að rætast. „Þegar ég kom heim var Indiska eiginlega það sem ég saknaði mest frá Svíþjóð,“ segir Guðrún. „Mér fannst þetta vanta hérna og trúi því að Indiska geti bætt íslenska verslunar- menningu.“ Guðrún segist fyrst og fremst hafa heillast af litadýrðinni og fegurð hönnunarinnar auk þess sem hún kunni vel að meta hversu vistvænt fyrirtækið er. „Þessi samfélagslega ábyrgð höfðar til mín og manni líður alltaf voðalega vel þegar maður kaupir í Indiska vitandi að um leið er maður að leggja inn hjá þeim sem minna mega sín.“ Guðrún kom heim frá Svíþjóð fyrir tveimur og hálfu ári og opnaði lækna- stofu þar sem hún hefur meira en nóg að gera. Hún er stjórnarformaður Indiska á Íslandi en sér ekki fram á að gera starfað mikið í versluninni. „Ég er á fullu í barnalækningunum og er enn að vinna aðeins úti í Svíþjóð og er með annan fótinn þar en ef það vantar aðstoð í búðinni þá stekk ég til. Í það minnsta til að byrja með. Dagbjört og Sigrún sinna mest rekstrarþættinum en við Sigríður komum kannski meira inn með hugsjónina,“ segir Guðrún en þær stöllur voru farnar að þreifa fyrir sér með leyfi til að opna Indiska hérna áður en Guðrún flutti heim. Þannig að í maí rætist áralangur draumur barnalæknisins. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Guðrún Scheving Thorsteinsson barnalæknir segist hafa hellt sér út í verslunar- rekstur Indiska af hugsjón og ást en hún er þó ekki alveg ókunnug rekstri, dóttir Davíðs Scheving Thorsteinsson sem löngum var kenndur við Sól. Vinkonurnar fjórar, Sigríður Ragna Jónsdóttir, Dagbjört Guð- mundsdóttir, Sigrún Andersen og Guðrún Scheving Thor- steinsson ætla sér að bæta íslenska verslunarmenningu með indverskum áhrifum. Slegist við þjóðina Ísafjarðarmálið svokallaða setti samfé- lagið á annann endan í upphafi ársins 2006 og því lauk með að tveir ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, sáu sér þann kost vænstan að hætta störfum. Fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson var blaða- maður á DV á þessum tíma og skrifaði mastersritgerð sína í bókmenntafræði við Háskóla Íslands um málið. Forlagið hefur nú gefið ritgeriðna út á rafbókar- formi undir titlinum Í slagsmálum við þjóðina. Jakob hefur klippt og skorið ritgerðina til en í bókinni heyrast tvær meginraddir, Mikaels og hans sjálfs. Jakob segist þó leitast við að skoða málið utan frá sem bókmenntafræðingur í bók sem höfundurinn sjálfur segir alla blaðamenn þurfa að lesa. Víkingahrellir á förum Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri DV, hefur gengið vasklega fram frá hruni í umfjöllun um ýmsa vafasama gjörninga útrásarvíkinganna svoköll- uðu í aðdraganda hrunsins. Ingi Freyr hefur leitt umfjöllun DV um slík mál og iðulega verið með hælana þar sem aðrir komast ekki með tærnar. Ingi Freyr er nú á förum en hann ætlar að fylgja konu sinni, Sigrúnu Hallgríms- dóttur, til Svíþjóðar þar sem hún hyggur á sérfræðinám í barnalækn- ingum. Þau fara nú á sunnudag. Þeir sem enn burðast með vafasamar beinagrindur fjármálagjörninga í lestinni ættu þó að fagna varlega þar sem Ingi Freyr mun halda áfram að skrifa í DV að utan. Svartar og sykurlausar erfðavenjur Óvirkir alkóhólistar sem þjappa sér saman undir merkjum AA-samtakanna og halda sér þurrum með gagnkvæmum stuðningieru margir hverjir með böggum hildar ef ekki hreinlega bálreiðir eftir að eigendur Café París fóru þess á leit að félagar slepptu því að halda framhaldsfundi sína á staðnum og halda þannig dýrum sætum og borðum í gíslingu tómrar kaffidrykkju sem skilar ekki miklu í kassann. Bubbi Morthens er sá AA-maður sem látið hefur hæst í sér heyra en margir óvirkir furða sig á yfirlýsingagleði félaga sinna og þykir sem grunnstoðir samtakanna, erfðavenjurnar númer 11 og 12 hafi gufað upp. Samkvæmt venjunum eiga félagar að halda samtökunum utan við „deilur og dægurþras“ auk þess sem í „fjölmiðlum ættum við alltaf að gæta nafnleyndar.“ 78 dægurmál Helgin 26.-28. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.