Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 6
filmur eða 35 mm. filmur. Við er-
um einuig að fá ágæt hljóðupp-
tökutæki.
Nú ætla öll stærri kvikmynda-
félögin að fara að framleiða kvik-
myndir sínar bæði á 16 mm. og
35 min. filmum. Teija þau, að í
strjálbýli og kauptúnum, þar sem
bíó eru ekki, eigi mjófilman mikla
framtíð fyrir sér og jafnvel í einka-
íbúðum. Nú er hægt að útvega
sýningarvélar -fyrir mjófilmur og
með góðum hljóðtækjum fyrir að-
eins 4000 krónur, svo að það er
mjög sennilegt, að kvikmyndasýn-
ingar verði algengar í sveitum og
einstökum heimilum áður en langt
um líður“.
íslenzkir mormónar í Ameríku
— Dvaldirðu eingöngu í Kali-
forníu, meðan þú varst í Banda-
ríkjunum?
„Nei, ég lauk námi í mynda-
töku við „Institute of Photograph“
í New York. Að því búnu ókum
við, ég og konan mín, í gamla
Chevranum sem ég átti, yfir þver
Bandaríkin frá austri til vesturs.
Það var löng leið, en afar skemmti-
legt ferðalag. Mjög víða hittir
máður fyrir Vestur-íslendinga, sem
fagna manni vel.
Viðkomum til dæmis í kaupstað-
inn Spanish Forth, sem er skammt
fyrir sunnan Salt Lake City og
er á stærð við Akureyri. Þar búa
eitthvað um 800 manns af íslenzku
4
bergi brotnir. Eru þeir afkomend-
ur 16 fyrstu íslenzku útflytjend-
anna, er voru frá Vestmannaeyjum
og Landeyjum.
Eldra fólkið talar íslenzku ágæt-
lega, en það yngra yfirleitt lítið,
þótt það skilji málið. Mér var sagt,
að fyrst hefði verið litið niður á
íslendingana þar í byggðárkginu.
En það fór brátt af, enda létu þeir
ekki troða sér um tær og kom þá
stundum í Ijós, að þeir voru engir
veifiskatar þegar til kastanna kom.
Fólk þetta er mormónatrúar, en
það er rétt að taka það fram, að
nú orðið eru mormónar einkvænis-
menn, þótt upphaflega hafi þeir
leyft fjölkvæni. Þar hefur nýlega
verið reist glæsilegt minnismerki
yfir hina sextán ættferður og nöfn
þeirra letruð á fótstall þess“.
í Kalifomíu
— Svo hefurðu farið til Los
Angeles?
„Já. Þar átti ég líka vinum að
fagna. Eins og kunnugt er dvelja
þar margir námsmenn héðan að
heiman og auk þess eru þar búsett-
ir nokkrir Vestur-Islendingar.
Guðmundur Jónsson, söngvari,
kunningi minn, sem er þar við
söngnám, er einskonar íslenzkur
ræðismaður í borginni.
Kaupsýslumaðurinn Gunnar
Mafcthíasson, sem á heima þar,
tekur opnum örmum á móti öllum
íslendingum er til borgarinnar
HEIMILISRITIÐ