Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 32
Þeir, sem óska ejtir rithandarskoð-
un, skulu skrija 50—SO orS á óstrik-
aða pappírsörk og scnda mér í ábyrgð-
arbréji ásamt iO krónum í þóknun,
najni og heimilisjangi. Utanáskrijt mín
er: Ileimilisritið (Eva Adams), Garða-
strceti 17, Reykjavík.
HÚSNÆÐIS- OG SKÓLAMÁL.
Sp.: Ég er í framhaldsskóla hér í
bænum og mig langar til að leita
álits þíns og ráða í málum, sem eru
mér mjög hugstæð.
1. Ég og fjölskylda mín erum ein
af mörgum, sem nú eru í húsnæðis-
vandræðum. Við búum sex í tveggja
herbergja íbúð, svo að þú getur í-
myndað þér næðið, sem ég hef við
lesturinn. Finnst þér þetta ekki bæði
ranglátt og hörmulegt ástand?
2. Hvers vegna er lítið sem ekkert
kennt í skólum af því sem viðkemur
daglegri umgengismenningu?
3. Hvaða álit hefurðu á leikfimis-
kennslunni í skólunum?
V. J.
Sv.: 1. Vissulega eru húsnæðismál
okkar í slíku ófremdarástandi, að
fátt er eins aðkallandi og það, að
bæta úr þeim. Ég álít, að það sé ákaf-
lega mikilvægt fyrir vellíðan hvers
einstaklings, að hann hafi herbergi
út af fyrir sig, þar sem hann getur
sinnt sínum áhugamálum og verið
einn um hugsanir sínar.
2. Þetta er mér einnig ráðgáta.
Það ætti vissulega að setja skóla-
kennsluna í nánara samband við hið
daglega líf heldur en nú er gert.
Fyrst og fremst þyrfti að kenna
nemandanum að læra og kappkosta
að vekja áhuga hans og skilning á
námsgreinunum. Þá mætti og kenna
honum leiðir til að sjálfmennta sig í
þeim greinum, sem hann hefur mest-
an áhuga á, m. a. með því að kenna
honum að nota söfnin og spjaldskrá
þeirra. Hann þarf að læra að vinna
sjálfstætt.
Ennfremur ætti að kenna honum
raddbeitingu, engu síður en stíl eða
skrift, mannasiði, viljaþjálfun, snyrt-
ingu, reglusemi, hjálp í viðlögum og
fræða hann um ýmislegt annað, sem
við kemur daglega lífinu. Það er t.d.
óverjandi, að ekki skuli vera haldið
uppi neinni fræðslu í kynferðismál-
um eins og tíðkast víða annars stað-
ar, svo sem í Noregi.
3. Leikfimisæfingar geta eins orð-
ið til ógagns eins og til gagns. Sumar
leikfimisæfingar geta verið nauðsyn-
legar fyrir einn en ónauðsynlegar
og jafnvel skaðlegar fyrir annan.
Þetta er ég hrædd um að leikfimis-
kennararnir hafi oft ekki nógu hug-
fast.
Þú til dæmis situr mikið við lestur
og nám. Þér hættir ef til vill við að
sitja hnokinn og boginn í baki, sem
30
HEIMILISRITIÐ