Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 23
vilja á því. Þú verður að líta á lof-
orð þitt við sjálfan þig eins bind-
andi og skriflegan samning.
2. Veldu þér félaga, sem vilja
styrkja þig í ásetningi þínum.
Hugsunarlaust fólk getur gert ó-
trúlega mikið ógagn með því að
hæðast að kunningjum sínum, sem
eru „bættir“. Og með því að
hvetja félaga sinn til að „taka
bara einn“ geta menn ónýtt allt
það góða, sem hinn kann að hafa
áunnið sér með ærni fyrirhöfn.
3. Sikpulegðu dagleg störf þín
fyrirfram, þannig að þú þurfir aldr-
ei að vera aðgerðarlaus. Gerðu
einnig áætlanir um, hvernig þú
ætlar að verja frístundum þínum,
neyttu óbreyttrar og næringar-
ríkrar fæðu á róttum matmáls-
tímum, gættu þess að hafa nægan
svefn og njóttu hollra skemmtana.
Þá er og réttur tími fyrir þig að
afla þér nú nýrra óhugaefna, sem
þú getur helgað þér í tómstund-
um þínum.
4- Láttu lækni þinn rannsaka,
hvort þig skorti nolckur fjörefna-
sambönd eða vitamín, og ef svo
reynist þarftu að fá hjá honum
leiðbeiningar um rétt mataræði
eða vitamínlyf. Ef þú þjáist af
vitamínskorti getur það haft þær
afleiðingar, að þú sért óánægður
bæði með þig og aðra og þannig
gert þér erfiðara fyrir.
5. Notaðu ekki einhver undralyf,
sem ráðlögð kunna að vera við of-
drykkju. Mörg þeirra eru skaðleg
og geta haft hættuleg áhrif á taug-
ar, hjarta eða lungu.
6. Útrýmdu hjá þér allri minni-
máttarkennt gagnvart þeirri stað-
reynd, að þú ert að reyna að hætta
að drekka. Hafðu það hugfast, að
ofdrykkja er veiki, sem þarf að
•lækna eins og aðra sjúkdóma.
Lifnaðarhættir ekki réttir
Menn, sem drekka meira en
góðu hófi gegnir, gera það oft
vegna þess, að þeir eru að ein-
hverju leyti ekki í réttu samræmi
við umhverfið. Sumir vilja ef til
vill vinna sér inn rneira fé en þeir
geta með góðu móti. Aðrir eru ef
til vill í stöðu, sem ekki hæfir skap-
lyndi þeirra og skapar því hjá
þeim sífellda óeirð og kvíða.
Hvort hægt er að lækna þessa
menn er undir því komið, að þeir
beti breytt lifnaðarháttum sínum.
Ef, til dæmis, eiginkona slíks
manns fellst á að nota minna fé
árlega framvegis, gæti hann ef til
vill byrjað nýtt líf í starfi, sem
væri vel við hans hæfi og þannig
fengið tækifæri til að losna úr viðj-
um áfengisbölsins.
Sumir drekka af því þeir eru ó-
ánægðir með sjálfa sig. Þeir von-
ast til að geta breytt persónuleika
sínum með aðstoð áfengisins. Þess-
um mönnum kann að vera nauð-
•syn að komast í annan félagsskap
og annað umhverfi, sem er betur
HEIMILISRITIÐ
21