Heimilisritið - 01.06.1946, Qupperneq 22
og hæfileika til fulls og hefur ek'ki
heldur algert vald á hreyfingum
handa og fóta. Að sjálfsögðu getur
liann þá ekki heldur borið ábyrgð
á tungu sinni og itilfinningum.
Sjálfsásakanir þær og iðrunarkval-
ir, sem menn vakna iðulega við
morguninn eftir víndrykkju, eru
oftast sprottnar af því, að þeir
hafá orðið sér til athlægis eða
skammar í ölvímunni, þótt þeir
með sjálfum sér hafi skilið, hvað
þeir voru að aðhafast.
Það er auðvelt að átta sig á þvi,
'hvers vegna maður, sem neytir á-
fengis í óhófi, verður kærulaus í
framkomu og hegðun. Siðferðileg
ábyrgð sljófgast og hegðun þeirra
versnar, þar til svo getur farið, að
slikir menn komi fram sem óhefl-
aðir siðleysingjar, fremji ofbeldis-
verk á sínum kærkomnustu og
verði jafnvel. óhæfir til að stunda
atrvinnu sína eða halda stöðu sinni
í þjóðfélaginu.
Hver er lækningin?
Hversu auðveldlega drykkju-
manninum tekst að losna við þenn-
an leiða vana, víndrykkjuna, er
undir því komið, hversu mikið
hann drekkur og hversu mikla
löngun hann hefur sjálfur til að
hætta.
Allflesta má fá til að hætta að
drekka, ef hægt er að opna augu
þeirra fyrir því, að þeir eru að
eyðileggja líf sitt með ofdrykkju.
20
Þeir missa atvinnuna, eiginkon-
una, misþyrma barni í ölæði; vinna
örlagarík óhappaverk.
Sá, sem ákveður að hætta að
drekka, gerir það vegna þess, að
honum hefur orðið ljóst, hversu
hrapallega hann hefur ofmetið þá
huggun og fróun, sem hann áleit
að áfengið gæti veitt sér. Þegar
bezt lét var það honum kostnað-
arsamur stundarflótti frá raun-
veruleikanum, sem e'kki varð um-
flúinn.
Þeir sem drekka í óhófi þurfa
oftast aðstoð annarra, til þess að
öðlast vilja og getu til að hætta að
drekka. Þá er sefjun, dáleiðsla og
önnur læknisfræðileg meðhöndlun
oft nauðsynleg. Einnig getur ver-
ið gott að höfða til tilfinninga
þeirra með trúfræðilegum umtöl-
um. Ágætlega hefur og reynst að
flytja slíka menn á drykkjumanna-
hæli og láta þá dvelja þar undir
læknishendi, án þess að opinbera
nöfn þeirra.
En ef þú drekkur ekki af ástríðu,
þá geturðu vanið þig af áfengis-
neyzlu hjálparlaust. Þó að þú haf-
ir veikleika fyrir víni geturðu sigr-
ast á löngun þinni, án aðgerða
hins opinbera eða annarra rót-
tækra meðala. Hér fara á eftir sex
hollráð þess efnis:
1. Þú verður að einsetja þér að
hætta að drekka. Fyrsta skilyTðið
fyrir því, að þú getir vanið þig af
vínnautn, er að þú hafir einlægan
HEIMILISRITIÐ