Heimilisritið - 01.06.1946, Qupperneq 33
er mjög óhollt og lýjandi. Þú þarft
því að styrkja bakvöðvana og verð-
ur að forðast að teygja á þeim. Þá
er sú leikfimisæfing, sem þú mátt
sízt iðka, sú, að beygja bakið stand-
andi og reyna af alefli að ná sem
lengst niður á gólfið með höndunum
án þess að beygja hnén. En einmitt
slíkar æfingar munu vera all-algeng-
ar nú.
Leikfimiskennarinn ætti að rann-
saka líkamsbyggingu sérhvers nem-
anda síns og ráðleggja honum að
iðka þær æfingar heima, sem hann
hefði bezt af. í byrjun hvers leik-
fimistíma mætti gera nokkrar al-
gildar hópæfingar og æfa svo dýnu-
stökk, glímur, sund, íþróttir, hand-
knattleik eða aðra leiki og leggja
áherslu á að styrkja vöðvana, en
sýna jafnframt lipurð og fagrar
hreyfingar.
ÚR VÖNDU AÐ RÁÐA.
Sp: Kæra Eva Adams.
Ég er trúlofuð strák, sem mér
þykir reglulega vænt um, en hann
liggur nú á sjúkrahúsi og þjáist af
þrálátum sjúkdómi. Það er óvíst,
hvort honum batnar nokkurn tíma.
Svo er það annar strákur, sem vill
giftast mér. Hann er heilbrigður og
hefur góða atvinnu. Ég veit að for-
eldrar mínir vilja að ég giftist hon-
um, en mér þykir ekki nærri því eins
vænt um hann.
Nú langar mig til að biðja þig um
að ráða mér heilt. Hvað á ég að
gera? Súsí
Sv: Það er mjög erfitt að skera
úr um vandamál sem þessi. Ég vil
ráðleggja þér að leggja fyrir þig
nokkrar samvizkuspumingar og
svara þeim af einlægni, áður en þú
tekur endanlega ákvörðun.
Treystirðu þér til að fóma þér
algerlega fyrir unnusta þinn? Elsk-
arðu hann svo heitt, að þú getir beð-
ið, jafnvel árum saman upp á von og
óvon, eftir því að honum batni? Ertu
reiðubúin að giftast honum þegar
hann kemur af spítalanum, ef hann
verður þá ef til vill óvinnufær? Og
geturðu þá séð fyrir ykkur báðum?
Ef þú vilt hætta á slikt, og finnst
þú geta fómað þér fyrir ást þína á
honum, þá er ást þín háleit og fög-
ur og þá þýðir þér ekki að reyna að
fara í kringum hana með því að
giftast öðrum. Það væri til þess að
eyðileggj a lífshamingj u ykkar beggj a
og þar að auki væri það ekki rétt
gagnvart þeim manni, sem þú mynd-
ir giftast.
Líklega gerðir þú bezt í því að
kanna hug þinn í nokkra mánuði.
Þá geturðu betur áttað þig. Ef til
vill batnar unnusta þínum fyrr en
varir og vandamálin leysast af sjálfu
sér. Ef til vill hættir þú að elska
hann á þessum tíma og verður ást-
fangin af hinum, sem þú talar um.
Og ef til vill hitturðu þann þriðja
og gleymir hinum báðum. Vegir lifs-
ins eru órannsakanlegir.
AÐ NÁ BURT MÁLNINGARBLETTUM
Sp.: Geturðu gefið mér gott ráð til
að ná málningu af gleri?
Kobbi.
Sv. Blandaðu óhrærðu kalki að einum
hluta saman við potassium carbonate (kalí)
að þremur hlutum. Berðu þetta á með
spaða og Játtu liggja á fletinum í dálítinn
tíma. Svo er auðvelt að ná málningunni
af. — Málningarblettum er einnig liægt að
ná af gleri með því að nudda þá með
tusku, sem dyfið liefur verið í heitt edik. —
Smábletti má einnig skafa af gleri með
brúninni á silfurpeningi.
HEIMILISRITIÐ
31