Heimilisritið - 01.06.1946, Side 48

Heimilisritið - 01.06.1946, Side 48
„Hvenær komuð þér þangað?“ „Þangað er ekki steinsnar og . ég tafðist ekkert á leiðinni. Stella — stofustúlkan hjá frú Copley, opnaði fyrir mér. Ég fór úr káp- unni uppi og gekk svo niður í dagstofuna. Fyrst var ég ein þar. Ég held Blakie hafi komið rétt á eftir. Frú Copley leit inn sem snöggvast. Eftir tíu mínútur eða kortér skrapp ég hingað til að vita, hvers vegna Marcia, mág- kona mín, kæmi ekki“. „Fóruð þér yfir garðana skemmstu leið?“ „Ég fór í gegnum hlið, sem er á milli húsagarðanna. Ég bjóst við að hún væri að tala við bróð- ur minn 1 bókastofunni. Klukk- an hefur þá verið fimm til tíu mínútur yfir hálfátta. Ég hafði litið á úrið, þegar klukkan var fimm mínútur yfir hálf, og auð- vitað festist þetta mér í minni, af því að Marcia var orðin of sein“. „Hvað svo?“ Nú var komið að því. Marcia einblíndi á varir Beatrice stirðn- uð af skelfingu og kvíða. Beatrice lagði vandlega og í mestu makindum litla fellingu á pils sitt með fingrunum. Eitt- hvað i fari hennar bar vott um efa, en loks sagði hún án þess að horfa á nokkum sérstakan: „Bróðir minn var dáinn. Marcia, konan hans, kraup hjá honum. Við kölluðum á lækni. . .“. Hún ætlaði ekki að skýra frá þvi. Beatrice, sem alltaf hafði haft ímugust á henni, ætlaði ekki að segja hvað hún hafði séð og hvað hana grunaði. Þetta var óvæntur greiði og næstum furðu legt göfuglyndi af konu, sem hingað til hafði ávallt sýnt henni miskunnarleysi, undirferli og kulda. Beatrice leit allt í einu til hennar og þær horfðust andar- tak í augu. En Marcia sá þar enga vináttu eða veglyndi. í augum hennar var kuldi og í- hygli. Hún hafði sagt þetta í einhverju augnamiði og sér til hagsbóta, en ekki til að hjálpa Marciu. Það var ekki um að vill- ast. En hvað lá þá á bak við? Verity var nú að tala, fremur önug. „Beatrice hafði komið, já, eitthvað tuttugu eða tuttugu og fimm mínútur yfir sjö. Blakie skömmu síðar. Hún vissi ekki nákvæmlega klukkan hvað. Já, Rob hafði verið úti að ganga og komið heim klukkan rúmlega sjö, kanske tíu mínútur yfir sjö“. „Getið þér glöggvað yður bet- ur á tímanum?“ „Það held ég varla. Ekki vissi ég að það aetti að fara að fremja morð“. Davies leit snögglega upp frá pappímum og gaf henni hom- 46 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.