Heimilisritið - 01.06.1946, Qupperneq 51

Heimilisritið - 01.06.1946, Qupperneq 51
FJÖGRA BLAÐA SMÁRI Örstutt gamansaga eftir Sylvanus HANN HEITIR Páll og er for- stjóri fyrir aUstóru fyrirtæki. Kona hans heitir Rut, og þau sitja bæði við morgunverðarborðið. Ilún vef- ur morgunsloppnum fastar að sér og er úrill á svipinn. Ilún vill reyna að megra sig og borðar því lítið. Páll hámar hinsvegar í sig matinn og les í Morgunblaðinu. „Er nokkuð í blaðinu?“ „Nei“. „Af hverju ertu þá að lesa það?“ „Hm“. „Þarftu endilega að sötra í þig kaffið með svona hryllilegum há- vaða?“ „Það er heitt“. „Það á 'kaffi að vera“. „Annað hvort er það sjóðheitt eða ískalt. Skelfingar sauður er þ>essi stúlka, sem við höfum“. „Þakkaðu fyrir, að við skulum yfirleitt hafa nokkra stúlku. Þá sjaldan þú ert heima ertu að finna að. Þú ættir helzt aldrei að koma heim“. „Ef ég hugsaði ekki nema um sjálfan mig, þá myndi ég ek'ki gera það“. „Svo að það er mín vegna, að þú kemur heim? Ég skal segja ykk- nr það! En það er guð vel komið að ég flytji heim til mömmu. Þú kannt aldrei að meta það sem ég geri fyrir þig. Segðu mér eitt, hlust- arðu á það, sem ég er að segja?“ . „Nei, en ég veit, hvað það muni vera“. „Þú ert andstyggilegur“. „Þú verður að hafa mig afsak- aðan, ég má ekki missa af stræt- isvagninum“. Svona var heimilisylurinn hjá Rut og Páli. Það er því ekki til- tökumál, þótt brúnin á honum væri ekki sérlega létt, þegar hann kom inn í skrifstofu sína, og að skrif- borði, Sem á var bunki andlausra og leiðinlegra verzlunarbréfa. Auð- vitað voru líka einhver vandræði með skrifstofufólkið. Það var eng- inn hægðarleikur að eiga við þessar skrifstofustúlkur. Fyrir skömmu hafði hann fengið afbragðs stúlku fyrir einkaritara og rétt á eftir býð- ur einhver nautshausinn henni að koma til sín fyrir 100 króna hærri laun á mánuði. í dag átti sú nýja einmitt að byrja. HEIMILISRITIÐ 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.