Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 64
f-
BRÓÐIR MINN
Bróðir minn á heima skammt frá
kaupstað nokkrum. í síðustu viku
fór hann einn daginn til kaupstaðar-
ins og var með fimmtíu krónur þeg-
ar hann fór, en þegar hann kom
heim um kvöldið, var hann með
hundrað og fimmtíu krónur á sér.
Hann keypti sér skó í kaupfélag-
inu og fisk sem veiddur hafði verið
í róðri þennan sama dag. Ennfremur
lét hann augnlækni, sem var þar á
ferð, skoða í sér augun.
Þessi bróðir minn fær alltaf greitt
vikukaup sitt með bankaávísun á
hverjum fimmtudegi og bankinn þar
í k^upstaðnum er aðeins opinn á
fimmtudögum, föstudögum og laug-
ardögum. Augnlæknirinn var stadd-
ur í kaupstaðnum alla daga vikunn-
ar, nema laugardaginn, og það gaf
ekki á sjó á þriðjudaginn og föstu-
daginn.
Hvaða dag fór bróðir minn í kaup-
staðinn?
ÁSTA KLIPPIR
Ásta á að sníða 2 sm. breiða renn-
inga úr 3 pappírsörkum. Stærð ark-
anna er 20 sm. sinnum 40 sm., og
lengd hvers rennings á að vera 20
sm. Ef Ásta er nákvæmlega 3 sek.
að klippa hvern renning, hvað getur
fiún þá lokið verkinu á skemmstum
tíma, án þess að brjóta nokkra örk-
ina saman?
KLAUFALEGT ORÐALAG.
Ekki fáir menn álíta það ekki
ónauðsynlegt að vera ekki óheiðar-
legir í samskiptum sínum við aðra.
Þýðir þetta sama og ef sagt væri,
að margir menn álíti nauðsynlegt að
vera heiðarlegir í samskiptum sín-
um við aðra?
Svarið játandi eða neitandi.
FAÐIR OG SONUR.
Ónafngreindur faðir, sem nú er
fimm sinnum eldri en sonur hans,
verður eftir fimmtán ár aðeins helm-
ingi eldri en þessi sami sonur hans.
^Hvað er faðirinn gamall nú?
Á HVAÐA BLAÐI?
Á hvaða blaði er blaðsíða 49 í 100
blaða bók?
SPURNIR.
1. Hvað er það einkum, sem hindr-
ar, að menn komist upp á tind hæsta
fjalls heimsins, Mt. Everest?
2. Hvaða slanga er eitruðust?
3. Er hvítt litur?
4. Hvað heitir verksmiðjan, sem
framleiðir smjörlíkið „Bláiborðinn“?
5. Hvaða spendýr getur alls ekki
gefið frá sér hljóð?
Svör á bls. 64.
62
HEIMILISRITIÐ