Heimilisritið - 01.10.1949, Side 26

Heimilisritið - 01.10.1949, Side 26
bogans. „Ungfrú Linda Holst?“ spurði hann. „Ég er Viktor Berner, en þar eð við erum bæði góðir \dnir Georgs híartins, leyf- ist okkur vænti ég að kalla hvort annað skírnarnöfnunum. Það gleður mig, að þér skylduð' koma, Linda“. Hann var Ijómandi myndar- legur, en hafði þó eiginlega ekki neitt sérkennilegt við sig, og við lá, að hann fyndi helzt til mik- ið til sín. „Þér eruð miklu laglegri en ég hafði gert mér í hugarlund“, sagði hann mjúkur í máli. Það var hlýtt og vistlegt í salnum. Fólkið var í óða önn að' matast, enginn farinn að dansa. Hljómsveitin tók samt að leika vals. „Nú, þarna kemur lagið okkar aftur“, sagði Linda. Er Viktor leit á hana undrandi, bætti hún við: „Ég vinn í hljóðfæraverzl- un. Hefur Georg ekki sagt yður það?“ „Nei, hann hefur gleymt því“, sagði Viktor. Hann snéri sér að þjóninum og bað um flösku af víni. „Eigum við að dansa?“ spurði hann. Hún stóð á fætur, ákveðinn í því að skemmta sér og njóta kvöldsins. Þegar þau komu aftur að borðinu sagði Linda: „Þér áttuð í rauninni mikið á hættu, er þér buðuð mér út, án þess að hafa séð mig“. „Ég hafð'i heyrt rödd yðar“. „Já, segja: halló. En af því verður ekki m'ikið ráðið“. „Það var óvenju skemmtilegt halló. En hvað um yður sjálfa? Attuð þér kannske ekki neitt á hættu?“ „Jú“. Hún hugsaði sig um andartak, hvort hún ætti að skjóta sér á bak við þennan kynlega, þokukennda Georg Martin, en gerði það ekki. „En það gat ekki neitt komið' fyrir, enda þótt þér væruð mesti þorpari“. „Við gætum orðið skotin hvort í öðru. Myndi yður finn- ast það ægilegt?“ Hann var útfarinn flagari, og bar það raunar með sér. Hann var að vísu myndarlegur, en ef maður hefði séð hann á kvik- mynd, myndi manni strax hafa orðið Ijóst, áð honum væri ætlað hlutverk dólgsins. „Hvað finnst yður sjálfum?“ spurði hún. „Um það er vður áreiðanlega bezt kunnugt". „Ó, þér eigið \dð, að ég sé svo reyndur?“ sagði hann brosandi. „Viljið þér rétta mér saltið?“ sagði hún til að leið'a talið að öðru. Um það var ekki neinum blöð- um að fletta, að hann var ósvik- inn kvennabósi. Þegar hann 24 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.