Heimilisritið - 01.10.1949, Blaðsíða 62
hún kveið fyrir að vera í spítalanum
í marga mánuði í viðbót.
„Þú skalt koma því svo fyrir, að þú
getir losnað þaðan eftir mánuð, þá get-
um við farið eitthvað saman“, sagði
faðir hennar.
,,Þú veizt það, pabbi, að það myndi
vera óskynsamlegt af okkur að gera það,
en mér finnst afskaplega elskulegt af
þér að stinga upp á þessu. Hef ég ekki
gleymt að segja þér það að undanförnu,
hve þú ert elskulegur, pabbi?“
Hún gat þraukað þann tírna, sem
eftir var, fyrst hún hafði þraukað fram
að þessu. Það kæmi upp í vana.
En um kvöldið fór hún — það var
eins og henni væri sagt að gera það —
að heimsækja móður Fergusar. Hún átti
ekki gott með það, þó að henni á
hinn bóginn væri ljúfsár gleði að því
að horfa í augu, sem voru mjög lík
augum Fergusar og hafa þetta andlit
fynr sér, sem minnti á hann.
Wyatt læknir var í sjúkravitjun og
Amy var ekki heldur heima, svo að frú
Wyatt var ein.
Þær töluðu fyrst um alla heima og
geyrna, en síðan sagði Allison henni frá
vinnunni, sem hún átti í vændum, í
þeiri von, að það bærist til Fergusar.
„Og nú er loksins útlit fyrir, að ég
komist á hina grænu grein“, sagði Alli-
son. „Faðir minn álítur, að það sé rétt
fyrir mig að nota tækifærið. Það er eng-
in framtíð fyrir mig í spítalanum".
Hún var forviða á því, að skuggi
færðist yfir andlit frú Wyatt.
„Mér þykir þetta leitt, Allison, en
auðvitað hefur þú á réttu að standa".
„Leitt?“
„Já, það er nú svo. Mér hefur þótt
vænt um að vita af þér með Fergusi".
Hún gat ekkert sagt við þessu, ekk-
ert, sem gat þurrkað burt áhyggjurnar
í augum móður Fergusar. Það var ckki
hlutverk Allisons að segja henni frá
Marciu Lord. Ef til vill gat hún sér
til — hún jafnvel hlaut að gera það —
ástæðuna fyrir því, að Fergus kom svona
sjaldan heim núna. Hann hafði öðrum
hnöppum að hneppa, svo langt frá
þessari litlu götu sem Marcia var fram-
andi þessu umhverfi.
Þær horfðu hvor á aðra.
En hann hefur - ekki gleymt móður
sinni, hugsaði Allison. Hann er að
safna pcmngum til þess að geta keypt
handa henni hluti, sem hún kærir sig
ekki um lengur.
„Hvernig er það með áætlun ykkar
hjónanna? Ætlið þið í ferðalagið?"
Elísabet Wyatt brosti, án nokkurs
biturleika.
„Ég er nærri hætt að gera áætlanir,
Allison. Það er svo margt, sem skeður
í þessari fjölskyldu“.
Framh. í næsta hefti.
Verðlaunasamkeppnin um
landslið knattspyrnumanna.
Eins og kunnugt er kepptu Islendingar
og Danir í knattsp.yrnu, 7. ágúst s. 1. og
töpuiíu okkar menn með 5:1. I tilefni af
leik þessum efndi Heimilisritið til verð-
launakeppni, og áttu menn að reyna að
gizka rétt á. hverjir valdir yrðu í lið okk-
ar. Aðeins einn maður sendi rétta tilgátu
og var það Haraldur Jónasson, Skaftahlið
11. Verðlaunin, sem hann hlýtur, eru 36
næstu hefti af Heimilisritinu.
60
HEIMILISRITIÐ