Heimilisritið - 01.10.1949, Blaðsíða 51
Ekki tók betra við, ]>e(jar
Eddi fékk loksins þá tegund
af sígarettum, sem hann
hafði lengi saknað.
EKKI EIN
BÁRAN STÖK
Smásaga
EDDI HARRIGAN, sem var
óbreyttur hermaður, sat á kassa
fyrir framan tjaldið sitt ein-
hvers staðar í Þýzkalandi. Hann
var að lesa bréf. Að venju var
hann ósköp góðlátiegur á svip-
inn, en nú varð hann æ langleit-
ari og þungbúnari á svipinn.
„Hvað er að', Eddi?“ spurði
góður vinur Edda, Ike Collins.
„Ertu með bréf frá Mabel, kær-
ustunni þinni?“
„Jú, það er víst“, svaraði
Eddi og var lágróma.
eftir E. Nagel
„Nú, og samt varstu að
kvarta yfir því í gær, að hún
skrifaði þér aldrei línu“.
„Já, víst var ég að því“, sagði
Eddi og lét lítið yfir sér.
„Nú, hvað' er þá að?“
„Ekki annað en það', að Ma-
bel er ekki lengur kærastan
mín. Fyrir þremur mánuðum
gifti hún sig einhverjum þræli
þarna heima. Nú heitir hún frú
Alexander Smith. Ég á hálf bágt
með að átta mig á þessu“.
HEIMILISRITIÐ
49