Heimilisritið - 01.10.1949, Page 36
„Það er nú kannske fullmikið
sagt að segja, að ég hafi áhuga
á að kynna mér samborgara
mína“, sagði frú Vallency, „en
hvað sem því líður, þá munu at-
huganir mínar verða á enda,
jafnskjótt og ég hef fundið það
sem ég leita að“.
Þjónn einn kom að borðinu og
tók að leggja á það diska og
hnífapör handa frú Vallency;
mér fannst tækifærið tilvalið til
þess að draga mig í ldé, og gekk
yfir að mínu eigin borði.
Hálftíma síðar kom Louis til
mín, og ég notaði strax tækifær-
ið til þess að' spyrja hann nánar
um hina fögru, fölu konu.
„Mér finnst eins og ég hafi séð
nafnið hennar áður“, sagði ég,
„en ég man ekki hvar“.
„Hún heitir ekki Vallency —,
að minnsta kosti ekki að réttu
lagi. Hún nefnir sig Vallency, en
Vallency er föðurnafn hennar.
Eiginlega heitir hún frú Anna
Holden“.
„Utlit hennar virðist benda til
þess, að hún hafi þjáðst mikið“,
sagði ég.
„Það hefur hún líka gert“,
sagði Louis. „Fyrir hálfu ári
stóð hún frammi fyrir dómaran-
um, ákærð fyrir morð. Ivviðdóm-
endurnir ráðslöguðu í tólf
klukkutíma, áður en þeir loksins
úrskurðuðu hana „saklausa".
Ur réttarsalnum varð að aka
henni beina leið í sjúkrahúsið;
ég held að hún liafi dvalist þar
þangað' til fyrir um mánuði“.
DAGINN EFTIR, þegar ég
kom aftur niður í borðsalinn, tók
ég eftir því, að ég sat alveg við
hliðina á frú Vallency. Hún sat
með stóran matseðil fyrir fram-
an sig, er huldi andlit hennar að
nokkru leyti.
I fyrstu hélt ég, að hún liefði
ekki hugmynd um, hvað fram
færi í kringum sig, en mér varð
fljótlega ljóst að mér skjátlað-
ist. Það' kom fyrir að henni yrði
litið til mín — en hún mundi
ugglaust ekki eftir því, að við
höfð'um verið kynnt, því það
varð ekki á henni séð að hún
þekkti mig aftur. En hún hafði
samt auga með því sem fram fór.
Það var eins og hún væri að
skyggnast um eftir einhverjum
sérstökum. Þetta var einmitt um
mesta annatímann í Hótel Mil-
ano og þess vegna var stöðugur
straumur fólks inn um dvrnar.
Þegar hún hafði snætt og
henni hafði verið borið kaffi, var
eins og hún róaðist dálítið; hún
kveikti sér í sígarettu og hallaði
sér á þægilegri hátt aftur á bak
í stólnum. Skömmu síðar borg-
aði hún fyrir sig, stóð upp og
gekk út úr salnum, en frammi
við dyrnar stöðVaði hún Louis
yfirþjón og skiptist á nokkrum
34
HEIMILISRITIÐ