Heimilisritið - 01.10.1951, Side 17
artvöföldun, nema því aðeins,
að mjólkurmagnið ykist jafn-
framt.
Hjá konum hefst mjólkur-
myndunin að ráði á öðrum eða
þriðja degi pftir barnsburð og
er þá um 20 grömm. Eftir hálf-
an mánuð er mjólkurmagnið
orðið um það bil hálfur lítri, og
á 25.—28. viku eftir barnsburð
er mjólkin um það bil 1 lítri á
dag — og eftir það minnkar
hún smám saman.
Það er ekkert smáræðis starf,
sem mjólkurkirtlarnir þurfa að
inna af hendi til að framleiða
mjólkina, og það sést af annarri
lífeðlisfræðilegri uppgötvun frá
síðustu árum. Það hefur sem sé
verið sannað, að til þess að kirt-
ill geti framleitt 1 gramm af
mjólk þarf um það 400 sinnum
meira blóðmagn að hafa runn-
ið um starfsfrumur hans en ella.
Á meðan mjólkin er í kirtlin-
um, er hún skipti í tvo staði ef
svo má að orði komast — ann-
ar hlutinn er kominn út í hin
stærri frárennslisgöng, en hinn
hlutinn liggur dýpra inni í kirtl-
inum. Til þess að þessi „innri
hluti“ mjólkurinnar nái að kom-
ast út, er nauðsynlegt að hor-
món frá heiladinglinum komi
til hjálpar, og í heild er mjólk-
urmyndunin háð miklum fjölda
hormóna, bæði frá eggjastokk-
um, hjánýrum og heiladingli.
Ýmsir vísindamenn álíta, að
eggjastokkarnir komi heila-
dinglinum til að mynda tvö hor-
món I og II, sem svo aftur orka
á mjólkurkirtlana — en um allt
þetta vita menn enn lítið.
En svo mikið vita menn með
vissu, að mjólk er mismunandi
samansett eftir því úr hvaða
flokki spendýra hún er. Þess
vegna er óvíst, að hægt sé að
nota eina tegund mjólkur í stað
annarrar — kálfur þrífst ekki
sérlega vel á kaplamjólk — og
stóra spurningin, sem fjöldi vís-
indamanna um heim allan er
nú að fást við, er þessi: Er kúa-
mjólk, þegar allt kemur til alls,
ákjósanlegur drykkur fyrir börn
og fullorðna?
Áður fyrr var einasta tilhugs-
unin um að breyta kúamjólk-
inni á einhvern hátt, skoðuð
sem einskonar guðlast, skrifar
dr. Spur — en nú er mönnum
orðið ljóst, að það er í rauninni
nauðsynlegt. Fyrir menn er kúa-
mjólkin mjög þungmeltanlegur
vökvi. Þegar kaseinogenið um-
breytist við meltinguna í kasein
(ostefni), myndar það stóra
kekki, en hjá þessum ókosti er
þó hægt að komast, ef mjólkin
homogeniserast, en það þýðir
aðeins, að fituagnimar eru
minnkaðar og þeim dreift jafnt
um mjólkina. Verra er það, að
við erum ekki fær um að nota
OKTÓBER, 1951
15