Heimilisritið - 01.10.1951, Side 45
hann cr að líkindum ekki heldur ör-
uggur með sjálfan sig og vildi gjarnan
hafa eins gott jafnvægi og þú. — Hann
mun sjálfsagt öfunda þig af ýmsu. Það
skaltu hafa í huga, í stað þess að öf-
unda hann. Þú hcfur ýmislegt, sem þú
gætir verið hreykin(n) af. Líttu á veiku
hliðar annarra, til þess að þér veitist
auðveldara að byggja upp sjálfsvirðingu
þína, en ekki í aðfinnslu augnamiði.
Hafðu það hugfast, að á einhvcrju sviði
stendurðu öðrum framar.
Þegar þú brýtur hcilann um það,
hvernig þér gangi, og hefur áhyggjur
út af framtíðinni, skaltu hugleiða sigra
þína og afrek, fremur en mistök þín,
sem verða á vegi allra. Oll mikilmenni
hafa gert sig sek um mörg frumhlaup
— og hví skyldir þú láta það verða þér
að falli, þótt þú misstígir þig nokkrum
sinnum?
FREKNUR
Svar til „Tótu" o. fl: — Það kostar
mikla þolinmæði að ná af sér freknum.
Brintyfirilti og sítrónusafi eru áhrifa-
rík meðul til þcirra hluta, en hættu-
minna fyrir húðina er þó að nota
agúrkusafa. Nuddaðu þá húðina dag-
lega með sneið af nýrri agúrku. Fegr-
unarstofurnar hafa fleiri ráð, ef þú
spyrð eftir þcim, auk þess geturðu hul-
ið freknurnar með „pancakc" eða ein-
faldlega mcð kremi og púðri.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „FáfróÓrar": — Sjálfsagt ert þú
ekki ein um það, að hafa þjáðst af ást-
arskorti. Stúlka, sem hefur tvo yfir tví-
tugt, hcfur vcnjulega orðið ástfangin,
þótt ekki sé nema af einhverjum
draumaprinsi. Hinsvegar þarf það ekki
að vera neitt óeðlilegt, eins og þú kallar
það, þótt þú hafir ekki enn orðið ást-
fangin. Um ,,samkynshncigðina“ get ég
ekki rætt að sinni. Megrunarpillur fást
í lyfjabúðum, ef þú vilt fara þá leið.
Til „Kellu": — Hárrot cr algengt eft-
ir mikil vcikindi, en kjarngóður mat-
ur, ásamt járn- og maltlyfjum styrkir
hárvöxtinn aftur. Gott er að nudda hár-
svörðinn 2—3 í viku upp úr eftirfar-
andi blöndu: 2 tesk. laxcrolíu, 2 tesk.
glyserin og 2 tesk. vínandi (má vera
brennsluspíritus).
Til „GráhærSrar": — Það er því mið-
ur ekkert fyrir þig né aðra að gera, sem
verða gráhærðir snemma, nema að láta
lita hárið. Og það skaltu ekki gera sjálf,
hcldur fá reynda og vandvirka hár-
greiðslukonu til þess.
Til „Tveggfa /5 ára": — Þið eigið
alls ekki að ansa strákum, scm kalla í
ykkur úti á götu. Það er hlægilegt, að
nokkur stúlka skuli gera sig svo lítil-
fjörlega að svara pilti, sem ávarpar hana
á götu. Samkvæmt alþjóðasiðum ávarp-
ar karlmaður ckki ókunnugar stúlkur á
götu, nema hann hafi ástæðu til að
halda að hún sé lauslætisdrós. Þess vegna
er sú stúlka, sem svarar ókunnugum
karlmanni úti á götu, alveg óafsakanleg.
Til „Bjargar“: — Þakka þér kærlega
fyrir bréfið þitt. Það er alltaf ánægju-
legt að finna, að maður getur gert eitt-
hvað til góðs.
Til „Konný': — Það cru víst til á-
gætar stúlkur, sem æfa megrunarleikfimi
hér í bænum. Slíka leikfimi ættirðu að
stunda. — Piltinum ættirðu hiklaust að
hætta að skrifa, annað lýsti skorti á
stolti. — Skriftin er ágæt, en stíllinn
cr dálítið hátíðlegur.
Eva Adams
OKTÓBER, 1951
43