Heimilisritið - 30.05.1953, Blaðsíða 62
hann. ,,Eg vona að þú hafir ekk-
ert á móti svolitlucn blæstri. Far-
angurinn látum við senda á eftir
okkur með lestinni til Teeford.“
Hann bætti við, eins og honum
fyndist einhverra útskýringa þörf :
, .Marjorie fannst leiðinlegt að geta
ekki komið með til að taka á cnóti
þér; hún var víst fyrir löngu bú-
in að tala um að fara í útreiðar-
túr með einhverjum í dag.“
,,Það er allt í lagi.“ Hún brosti
til hans. ,,Og hvernig líður föður
ykkar ? Pabbi bað mig fyrir svo
mörg skilaboð til hans, að ég
man víst ekki eftir helmingnum !“
Pétri tókst að koma farangri
hennar gegnum tollskoðun í flýti.
Jafnvel tollþjónar eru mannlegir
og taka stundum tillit til bros-
hýrra augna og ljósra lokka. Auk
þess var eitthvað sérstakt í fari
Klöru þennan dag — hvert orð
og hver hreyfing leyndi illa
hjartaglóð og vaknandi, sælu-
kenndum fögnuði í hugarfylgsn-
um hennar.
Pétur varð var við þetta í öku-
förinni til Teeford, og þar sem
hann vissi sínu viti, taldi hann
sig hafa ástæðu til að vona, að
það væri í einhverju sambandi
við hann sjálfan.
1 ljósi þessarar skoðunar var
það honu.m til lítillar uppörvunar
að verða þess varan, að hún svar-
aði honum stundum ekki, ef hann
sagði eitthvað við hana síðari
hluta leiðarinnar heim. Hún virt-
ist verða eitthvað svo undarlega
annars hugar. En svo lét hann
falla ofur eðlilega athugasemd um
nágrannafólk sitt:
,,Næstu nágrannar okkar eru
Ralph Horton og móðir hans. Þau
fluttu þangað, þegar Sir Richard
dó. Eg skil ekki, hvað gamli mað-
urinn var að gera, þegar hann arf-
leiddi Ralph að eigninni.“
Þá vaknaði áhugi hennar
skyndilega. Hún leit á hann stór-
um augum.
,,Horton. £g held ég hafi heyrt
talað um það fólk. Segðu m.ér
eitthvað meira um það.“
Hann lýsti því eftir föngum.
,,Mér geðjast ekki að Ralph
Horton sjálfum. Hann er áreið-
anlega beggja handa járn. Og
kerlingin móðir hans er mesta
skass, held ég. Augun í henni
eru síður en svo stór, en þeim
mun varasamari. Petunia — það
er dóttir hennar — ja, hún er ekki
stúlka að mínu skapi.“
,,Hafa þau ekki margt vinnu-
fólk ?“ spurði Klara, og það var
talsverður undirtónn í rödd henn-
ar.
,,0-jú-ú,“ sagði hann. ,,Þau
hafa til dæmis hálfkátlegan ástr-
alskan bryta, sem lítur út eins og
aðalleikari í sakamálamynd.
Mætti segja mér að hann kynni
60
HEIMILISRITIÐ