Heimilisritið - 01.07.1956, Side 12

Heimilisritið - 01.07.1956, Side 12
hennar hcda einungis valdið mér erfiðleikum og vandræðum. Það er viss tegund af konum, sem á mjög auðvelt með að telja sér trú um það, að þær séu ást- fangnar af lækni sínum. Þetta er allt svo furðu einfalt. Þær eru ein- mana og skortir jafnvægi og hjónabandið er á afturfótunum. I augum slíkra kvenna er læknirinn einhver dularfull persóna — full- ur samúðar, en í hæfilegri fjar- lægð vegna stöðu sinar. Hann getur hún heimsótt og verið ein hjá. Það er hægt að trúa honum fyrir öllum leyndar- málum án þess að óttast iðrun. Frá sjónarmiði konunnar myndar þetta allt sálarleg tengsl milli hennar og læknisins. Læknirinn verður að vera ákveðinn Einn kvensjúklingur minn kem- ur oft á stofuna til mín og trúir mér fyrir nákvæmum smáatriðum úr samlífi þeirra hjóna, og þessa frásögn dulbýr hún sem lýsingu á sjúkdómi sínum, sem læknirinn þarf á að halda. Eg verð enn að gera mér að góðu að sitja þolinmóður og hlusta á hana. Þrátt fyrir það, geri ég mér fyllilega ljóst, að þessi kona hefur yndi og ánægju af því að ryðja þessu öllu úr sér frammi fyrir manni, sem hún situr 10 ein hjá á læknisstofunni. Ég hef komizt að þvr, að sem betur fer get ég komið henni niður á jörð- ina með því að spyrja hana kalt og ákveðið: „Hvernig hægðir haf- ið þér? Eru þær reglulegar?" Læknirinn skilur það, áður en hann hefur stundað lækningar lengi, að hann vekur forvitni og rabbgleði kvensjúklinga sinna. Þetta kann að hljóma yfirlætis- lega en það er samt staðreynd. Sannleikurinn er sá, að á milli lækna og kvenna er mikil samúð. Þeir hjálpa konunum að koma börnum þeirra í heiminn. Þeir þekkja mestu leyndarmál þeirra, þeir eru trúnaðarmenn þeirra, og þeir fá að vita ýmislegt, sem kon- unni dytti ekki í hug að segja nánustu vinum eða vinkonum. ★ ★ ★ Ég vil gjarnan taka það fram — þráit fyrir allt, sem ég hef skýrt hér frá — að sambandið á milli kvenna og lækna er í lang- flestum tilfellum heilbrigt og eðli- legt. En jafnvel heilbrigðustu kon- ur íinna sér oftast eitthvað tilefni til þess að heimsækja „nýja lækninn." Sjúkdómseinkenni þeirra eru ef til vill ekki tilbúin, en þau eru hins vegar einkenni, er enginn gaum- ur hefur verið gefinn lengi. Flest- ar konur eru ekki í neinum vand- HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.