Heimilisritið - 01.04.1957, Blaðsíða 6
PRÍNSESSA SELD HÆSTBJÓDANDA
Frumburður furstans og
filmuprinsessunnar
tryggði ekki einungis
skattfrelsi Monaco-búa,
heldur einnig tekjur
í ríkissjóð.
MAÐUR í hvítum slopp með
litla leðurtösku í hendinni ruddi
sér braut í gegnum mannþröng-
ina fyrir utan höll Rainiers
fursta þriðja í Monaco.
„Nei,“ hrópaði maður einn,
„þarna er læknirinn! Nú skeður
eitthvað. Mikið var!“
Fólkið flykktist um manninn
í hvíta kyrtlinum. Hann gat
hvorki komizt aftur á bak né
áfram.
„Er nokkuð að frétta, læknir.
Eru hríðirnar byrjaðar? Fæðir
hún bráðum?“
Maðurinn í hvíta sloppnum
hristi höfuðið. En áður en hann
gæti svarað þessum áleitnu
spurningum heyrðist hvell kven-
mannsrödd:
„Hann er ekki læknir. Þetta er
„Figaro“ Fiori! Hann er bara að
fara upp í höllina til þess að
raka furstann.“
Hlátrasköllin glumdu við og
Jean, kallaður Figaro, Fiori, sá
sér leik á borði að laumast inn
í höllina til þess að vinna þarfa-
verk sitt.
ÞANNIG var andrúmsloftið í
Monaco í sambandi við fæðingu
Caroline prinsessu. En daginn,
sem hún fæddist, hafði enginn
búizt við því. Ameríski ræðis-
maðurinn í Nizza, — mr. Louis
Thompson, kom til hallarinnar
klukkan níu að morgni til þess
að ræða einhver viðskiptamál
við Rainier fursta. Hann sat í
4
HEIMILISRITIÐ