Fréttatíminn - 20.12.2013, Síða 68
R agnar Freyr Ingvars-son hefur notið mikilla vinsælda sem matar-
bloggari undir heitinu „Lækn-
irinn í eldhúsinu“ og fyrir
jólin gaf hann út veglega mat-
reiðslubók undir sama nafni
sem hentar bæði byrjendum í
eldhúsinu og lengra komn-
um. Í framhaldi af þessum
vinsældum er hafin vinna við
matreiðsluþætti með Ragnari
sem sýndir verða
á SkjáEinum með
vorinu. „Bókinni
minni hefur verið
ákaflega vel tekið
og ég er óendan-
lega þakklátur
fyrir þessar hlýju
móttökur. Ég
finn aðallega fyr-
ir gleði í hjartanu
og spenningi að
þetta áhugamál
mitt skuli vera
orðið svo verð-
launandi þáttur
í lífi mínu. Og
það er vissulega
gaman að svona
margir hafi
áhuga á því sem
ég er að sýsla í
eldhúsinu,“ segir
hann.
Ragnar býr í
Lundi í Svíþjóð þar sem hann
starfar sem gigtarlæknir.
Hann er giftur Snædísi Evu
Sigurðardóttur sálfræðingi.
„Við erum búin að vera saman
17 ár núna um áramótin – gift
í næstum 14 ár,“ segir hann.
Saman eiga þau þrjú börn,
Valdísi Eik 13 ára, Vilhjálm
Bjarka 8 ára og Ragnhildi
Láru 16 mánaða, og munu
fjölskyldumeðlimirnir koma
við sögu í nýju þáttunum sem
teknir verða upp á heimili
þeirra í Lundi.
Hann segir að þættirnir
verði um alvöru mat. „Ég ætla
að sýna hvað það er í raun
einfalt að elda góðan mat frá
grunni. Það eina sem þarf er
áhugi. Mér finnst ótrúlega
gaman að elda mat, að borða
góðan mat, njóta góðra vína,
að njóta þess með vinum og
vandamönnum. Svo finnst
mér ofsalega gaman að tala
um mat og að skrifa um mat-
inn sem ég er að elda.“
Ragnari vefst tunga um
tönn, aðspurður hvað honum
finnist skemmtilegast að elda,
og segir loks að honum finn-
ist gaman að elda allan mat.
„Sérstaklega eitthvað sem
tekur tíma en þarf þó ekki
að vera flókið.“ Hann leggur
áherslu á að góður matur sé
eldaður frá grunni. „Það þarf
að hafa gaman af matargerð-
inni og það allra mikilvægasta
er að borða matinn saman við
matarborðið og deila þannig
matnum og deginum saman.“
Ragnar segir að hann myndi
aldrei nokkurn tímann bjóða
upp á tilbúinn mat í matar-
boði. „Eitthvað sem er fullt
af aukaefnum verður aldrei á
boðstólum hjá mér.“ Og hann
hefur einfalt en þó mikilvægt
ráð til fólks fyrir jólahátíðina,
þá miklu matarhátíð: „Kaupið
gott hráefni. Þá verður eftir-
leikurinn einfaldur.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Eitthvað
sem er fullt
af aukaefn-
um verður
aldrei á boð-
stólum hjá
mér.
Ný vefverslun á michelsen.is
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík - sími 511 1900 - www.michelsen.is
DAISY LOKKAR
21.900 kr.
DAISY HRINGUR
29.900 kr.
DAISY HÁLSMEN
18.900 kr.
Glæsilegar jólagjafir
Ný þáttaröð með lækninum í eldhúsinu, Ragnari Frey Ingvars-
syni, er í vinnslu og verður sýnd á SkjáEinum með vorinu.
Ragnar er gigtarlæknir í Lundi og verða þættirnir teknir upp
í eldhúsinu hans þar. Hann gaf út sína fyrstu matreiðslubók
fyrir jólin og seldist fyrsta prentun upp á mettíma. Fjölskylda
Ragnars verður honum innan handar í nýju þáttunum.
Læknirinn í sjónvarpinu
Ragnar Freyr
Ingvarsson ætlar
að kenna fólki að
elda góðan mat
á einfaldan hátt
í matreiðsluþátt-
unum sem
teknir verða upp
í eldhúsinu hans í
Lundi.
Íslenskur Mosa-agat
náttúrulegur fjársjóður
68 viðtal Helgin 20.-22. desember 2013